Liecence to Kill
Nú keppast fjölmiðlar við að éta upp úr áróðursfréttum lögreglunar af haldlagningu stórhættulegra eiturlyfja sem hæglega hafði verið komið fyrir í bifreið í Norrænu með það að markmiði að smygla til Íslands.
Glæpalýðurinn hefur að sjálfsögðu verið fangelsaður & lagana verðir hrósa happi að hafa stöðvað þetta umfangsmikla smygl á þessu stórhættulega eitri, & komið þar með í veg fyrir ótal dauðsföll & heilsbrigðisvandamál.
En hvað var nú þetta hræðilega eitur sem þetta fólk hugðist eitra fyrir æsku vor með?
Jú Amfetamín, pissugult á flöskumm, voða fínt & víst af sterkustu gerð & í meira magni en nokkur sinni fyrr.
En bíddu, ég hef á ævinni hitt fullt af fólki sem fær amfetamín bara hjá lækninum sínum & unir vel við sitt?
Börnum er gefið þetta ef þau eru óþekk í skólanum & svona.
Það er sumsé þannig í pottinum búðið með eiturlyfjabrask hér á íslandi að það er einokun í bissnesnum, & það eru doktorarnir sem mega bara kála fólki með dópi.
Ef ykkur dettur eitthvað annað í hug þá eruð þið sennilega glæpahyski hvorteðer & ættuð að skammast ykkar!
Góðar Stundir
Posted in Almennt
June 28th, 2010 at 6:47 pm
Aðrar stórfréttir á Íslandi i dag: íslensk húsmóðir utan af landi hyggst sýna á sér geirvörturnar opinberlega í fyrsta sinn á ævinni í búlgörsku fagtímariti um brjóst & bíla.
Landsbyggðin stendur á öndinni af eftirvæntingu & hafa nú þegar myndast langar biðraðir við Eymundsson í Austurstræti.