Gamli maðurinn með gleraugun

June 24th, 2010 by admin

_MG_9811

Í vetur sem leið auglýsti ég á facebook eftir vefhönnuð sem væri til í að smíða fyrir mig lítinn ljósmyndavef gegn greiðslu í formi ljósmyndar að eigin vali, sem Helgi Páll Einarsson gekkst við & úr varð enn ein útgáfan af zeranico.com

Helgi verandi vel gefinn ungur maður valdi myndina hér að ofan sem er skemmtilegt í ljósi þess að hún er klárlega ein af mínum eftirlætis portrait myndum.
Myndin er tekin úti við húsvegg heimilis þessa gamla manns austur í Úkraínu, nánar tiltekið í Krasnyi Luch sem er lítill kolanámubær í austurhluta Úkraínu, þar sem hann sat og naut kvöldsólarinnar með ektakonu sinni sem vildi ekki fyrir nokkra muni fá af sér ljósmynd, og hafði eiginlega af því stórar áhyggjur að ég vildi hafa af þeim fé með þessum gjörning.

Fregnir hafa borist okkur hjónum af andláti þessa gamla manns & situr konan hans nú ein út við húsvegginn & hvílir lúin bein sín.

Athygli skal vakin á því að myndirnar mínar er velfelstar hægt að fá keyptar fyrir sanngjarnt verð í föstu formi.
Myndin af ofan var prentuð af Myndval í mjódd á hágæða ljósmyndapappír & römmuð inn í fallegan viðarramma.

Góðar Stundir

Posted in Ljósmyndun

Skrifaðu athugasemd

Please note: Comment moderation is enabled and may delay your comment. There is no need to resubmit your comment.