Plötur ársins..

February 19th, 2010 by admin

Tilnenfningar til Íslenskra Tónlistarverðlauna liggja fyrir

en hversvegna er ekki flokkur “Rokkplata ársins”? er ekki full mikil einföldun að dægurlagatónlist skuli einungis hafa einn flokk, ég meina hvað eiga Dikta og Hjaltalín sameiginlegt annað en að vera bæði hópar fólks sem smíðar tónlist?

Ég hef bara hlustað á 2 af þessum plötum sem tilnfendar eru til Poppplötu ársins en það eru þær Amanita Muscaria með Lights on the Highway & Get it together með Dikta.

Dikta platan fór ágætlega af stað & viðurkenni ég fúslega að hafa spilað á repeat fleirri en eitt lög af plötunni, slík var hrifningin.
Aftur á móti fór að bera á mikilli ógleði og heilaverkjum þegar líða tók á hlustunina og þegar Thank You var farið að vera eins & þrálátur hausverkur var mér nóg boðið & snarhættri allri inntöku að því marki sem mér var kleift. þannig að það má kannski segja að platan geti verið sú besta en í leiðinni sú versta, sem hlýtur að vera merkilegt?

Lights on the Highway platan hefur fengið allt öðruvísi hlustun & er enn að vaxa þó það séu á henni lög sem mér finnst hálf leiðinleg.
Mér finnst svoldið slíta plötuna úr samhengi að hafa verið búinn að dauðnauðga Paperboat sem hlýtur að vera eitt besta lag plötunar löngu áður en ég fékk eintak í hendur en önnur stærri en um leið minna útvarpsvæn lög vinna það sennilega upp, má þar helst nefna Coffin Nail, Heart of Moon & Meorabilia.

Aðrar plötur á þessum lista þekki ég því miður ekki en reyndar eru ekki nema tvær þarna til viðbótar sem ég sé fyrir mér að ég muni skoða en það eru plötur Kimono & Múm, Hjaltalín sullið höfðar ekki til mín hvernig sem ég reyni þó ég spái þeirri plötu samt sigri.

Þessi niðurgangur var í boði sjálfstæðisflokksins!

Posted in Tónlist

Skrifaðu athugasemd

Please note: Comment moderation is enabled and may delay your comment. There is no need to resubmit your comment.