Brúðkaup
February 1st, 2010 by admin
Ég hef einungis tvívegis verið beðinn um að taka ljósmyndir við brúðkaup.
Í fyrra skipti var það Ásdís Rán Gunnarsdóttir sem spurði mig hvort ég gæti tekið að mér að mynda brúðkaup hennar & eiginmanns hennar, sem ég man því miður ekki hvað heitir, en við hana sagði ég að ég tæki því miður ekki að mér að ljósmynda brúðkaup.
Seinna skipti var það fyrrum mágkona Barbara Hafey sem leitaði til mín þegar hún gekk í það heilaga með sínum ektamanni honum Guðmundi hinum prýðilega & tók ég það glaður að mér þó um hátíð væri.
Ég er sennilega ekki brúðkaupsljósmyndaratýpan bara….
Posted in Almennt
April 16th, 2010 at 5:41 am
enga hógværð, það hafa nú naftogaðir einstaklingar viljað fá brúðkaupsmyndatökur… það lítur enginn á það sem “namedropping” þótt þú segir frá því þegar Bjössi Bolla vildi fá þig í brúðkaupið. þvert á móti myndi ég telja þig meiri mann fyrir að hafa vakið athygli þeirrar stjörnu barnæsku okkar!