Linsupælingar
January 31st, 2010 by admin
Mig langar að vita hvort einhver hérna hefur prófað að nota svona gamlar manual focus linsur á EOS DSLR vé (EOS 5D í mínu tilfelli)l, Canon FD eða jafnvel gamlar Nikkor linsur, og ef einhver væri hvort sá væri til í að deila reynslu sinni af því, kostum & göllum, hvort einhverjir adadterar séu verri en aðrir osfrv..
Ástæðan fyrir að ég er að spá í þessu er sú að þessar gömlu linsur er oftar en ekki hægt að fá talsvert ódýrari en nýju fínu auto focus linsurnar með rauðum & gylltum hringjum…. jú jú maður er lengur að manual fókusa en ég er yfirleitt ekkert að drífa mig svo ásamt því sem ég hef ágæta þjálfun í að fókusa handvirkt.
Helst ber ég losta til fastrar linsu á bilinu 100-150mm í portrettur & annað tilfallandi!
Posted in Ljósmyndun
April 16th, 2010 at 6:08 am
canon ef 85mm f1.2 reynar með þessum árans autofókus sem þú berð allann þennan kala til… en þú þyrftir aldrei að hugsa um að kaupa aðra linsu, full frame sensor og þessi gripur er einfaldlega allt sem lífið býður uppá.
Hún var líklega eina hepnaða tilraun mín til að kaupa mér hamingju, af mörgum aumkunarverðum tilraunum áður en hún kom inní líf mitt…