Kreppubílar

January 10th, 2010 by admin

Ég ætla að vera með kreppuljósmyndasýningu fljótlega á bílamyndum mínum frá Úkraínu.

Ég er búinn að prenta myndirnar kreppustyle heima á blekarann & er næsta skref að finna eins ódýra ramma & mögulegt er.

Síðan er pælingin að leigja bás í kolaportinu í byrjun febrúar t.d þar sem myndirnar yrðu til sýnis & sölu á kreppuverði að sjálfsögðu.

Meira um það á seinni stigum málsins.

Viðb: Myndirnar verða um 25 talsins 26X17cm með smá hvítum kanti í svörtum ramma. Myndirnar verða seldar í einu eintaki hver á sérstöku kreppuverði.

Posted in Almennt

One Response

  1. Pjétur

    Glænýjar upplýsingar benda til að sýningin verði haldin á ísafirði í maí næstkomandi!

Skrifaðu athugasemd

Please note: Comment moderation is enabled and may delay your comment. There is no need to resubmit your comment.