June 28th, 2010 by admin
Nú keppast fjölmiðlar við að éta upp úr áróðursfréttum lögreglunar af haldlagningu stórhættulegra eiturlyfja sem hæglega hafði verið komið fyrir í bifreið í Norrænu með það að markmiði að smygla til Íslands.
Glæpalýðurinn hefur að sjálfsögðu verið fangelsaður & lagana verðir hrósa happi að hafa stöðvað þetta umfangsmikla smygl á þessu stórhættulega eitri, & komið þar með í veg fyrir ótal dauðsföll & heilsbrigðisvandamál.
En hvað var nú þetta hræðilega eitur sem þetta fólk hugðist eitra fyrir æsku vor með?
Jú Amfetamín, pissugult á flöskumm, voða fínt & víst af sterkustu gerð & í meira magni en nokkur sinni fyrr.
En bíddu, ég hef á ævinni hitt fullt af fólki sem fær amfetamín bara hjá lækninum sínum & unir vel við sitt?
Börnum er gefið þetta ef þau eru óþekk í skólanum & svona.
Það er sumsé þannig í pottinum búðið með eiturlyfjabrask hér á íslandi að það er einokun í bissnesnum, & það eru doktorarnir sem mega bara kála fólki með dópi.
Ef ykkur dettur eitthvað annað í hug þá eruð þið sennilega glæpahyski hvorteðer & ættuð að skammast ykkar!
Góðar Stundir
Posted in Almennt | 1 Comment »
June 26th, 2010 by admin
Posted in Ljósmyndun | No Comments »
June 24th, 2010 by admin

Í vetur sem leið auglýsti ég á facebook eftir vefhönnuð sem væri til í að smíða fyrir mig lítinn ljósmyndavef gegn greiðslu í formi ljósmyndar að eigin vali, sem Helgi Páll Einarsson gekkst við & úr varð enn ein útgáfan af zeranico.com
Helgi verandi vel gefinn ungur maður valdi myndina hér að ofan sem er skemmtilegt í ljósi þess að hún er klárlega ein af mínum eftirlætis portrait myndum.
Myndin er tekin úti við húsvegg heimilis þessa gamla manns austur í Úkraínu, nánar tiltekið í Krasnyi Luch sem er lítill kolanámubær í austurhluta Úkraínu, þar sem hann sat og naut kvöldsólarinnar með ektakonu sinni sem vildi ekki fyrir nokkra muni fá af sér ljósmynd, og hafði eiginlega af því stórar áhyggjur að ég vildi hafa af þeim fé með þessum gjörning.
Fregnir hafa borist okkur hjónum af andláti þessa gamla manns & situr konan hans nú ein út við húsvegginn & hvílir lúin bein sín.
Athygli skal vakin á því að myndirnar mínar er velfelstar hægt að fá keyptar fyrir sanngjarnt verð í föstu formi.
Myndin af ofan var prentuð af Myndval í mjódd á hágæða ljósmyndapappír & römmuð inn í fallegan viðarramma.
Góðar Stundir
Posted in Ljósmyndun | No Comments »
June 18th, 2010 by admin
Um þessar mundir hafa orðið ákveðin kaflaskipti í mínu lífi hvað atvinnumál varðar.
Eins og þeir sem þekkja mig vita hef ég undanfarin ár starfað við endursölu og viðgerðir á tölvubúnaði ásamt því sem ég hef sinnt ljósmyndaverkefnum eftir getu og eftirspurn.
Nú er staðan hinsvegar þannig að ég hef sagt starfi mínu sem tölvulæknir lausu & mun á næstu misserum reyna að afla mér lífsviðurværis með Ljósmyndun ýmiskonar og sölu á afurðum því tengdu.
Því langar mig vinur minn að biðja þig að hafa mig í huga ef þig vantar að láta ljósmynda fyrir þig.
einnig vil ég vekja athygli á að velflestar myndir eftir mig sem birst hafa á internetinu eða annarstaðar er hægt að fá keyptar á hágæða prenti í öllum stærðum, en síðar verður mögulega ráðist í að setja upp sölusíðu þar sem kaupa má myndir mínar beint.
Fyrir þá sem ekki þekkja til þá má sjá myndir eftir mig á eftirfarandi vefsvæðum
www.zeranico.com
flickr.com/photos/zeranico
Þakkir
Posted in Almennt | 3 Comments »