Plötur ársins..

February 19th, 2010 by admin

Tilnenfningar til Íslenskra Tónlistarverðlauna liggja fyrir

en hversvegna er ekki flokkur “Rokkplata ársins”? er ekki full mikil einföldun að dægurlagatónlist skuli einungis hafa einn flokk, ég meina hvað eiga Dikta og Hjaltalín sameiginlegt annað en að vera bæði hópar fólks sem smíðar tónlist?

Ég hef bara hlustað á 2 af þessum plötum sem tilnfendar eru til Poppplötu ársins en það eru þær Amanita Muscaria með Lights on the Highway & Get it together með Dikta.

Dikta platan fór ágætlega af stað & viðurkenni ég fúslega að hafa spilað á repeat fleirri en eitt lög af plötunni, slík var hrifningin.
Aftur á móti fór að bera á mikilli ógleði og heilaverkjum þegar líða tók á hlustunina og þegar Thank You var farið að vera eins & þrálátur hausverkur var mér nóg boðið & snarhættri allri inntöku að því marki sem mér var kleift. þannig að það má kannski segja að platan geti verið sú besta en í leiðinni sú versta, sem hlýtur að vera merkilegt?

Lights on the Highway platan hefur fengið allt öðruvísi hlustun & er enn að vaxa þó það séu á henni lög sem mér finnst hálf leiðinleg.
Mér finnst svoldið slíta plötuna úr samhengi að hafa verið búinn að dauðnauðga Paperboat sem hlýtur að vera eitt besta lag plötunar löngu áður en ég fékk eintak í hendur en önnur stærri en um leið minna útvarpsvæn lög vinna það sennilega upp, má þar helst nefna Coffin Nail, Heart of Moon & Meorabilia.

Aðrar plötur á þessum lista þekki ég því miður ekki en reyndar eru ekki nema tvær þarna til viðbótar sem ég sé fyrir mér að ég muni skoða en það eru plötur Kimono & Múm, Hjaltalín sullið höfðar ekki til mín hvernig sem ég reyni þó ég spái þeirri plötu samt sigri.

Þessi niðurgangur var í boði sjálfstæðisflokksins!

Posted in Tónlist | No Comments »

Brúðkaup

February 1st, 2010 by admin

Ég hef einungis tvívegis verið beðinn um að taka ljósmyndir við brúðkaup.

Í fyrra skipti var það Ásdís Rán Gunnarsdóttir sem spurði mig hvort ég gæti tekið að mér að mynda brúðkaup hennar & eiginmanns hennar, sem ég man því miður ekki hvað heitir, en við hana sagði ég að ég tæki því miður ekki að mér að ljósmynda brúðkaup.

Seinna skipti var það fyrrum mágkona Barbara Hafey sem leitaði til mín þegar hún gekk í það heilaga með sínum ektamanni honum Guðmundi hinum prýðilega & tók ég það glaður að mér þó um hátíð væri.

Ég er sennilega ekki brúðkaupsljósmyndaratýpan bara….

Posted in Almennt | 1 Comment »

Kvíðinn er verstur

February 1st, 2010 by admin

Ég viðurkenni að mér finnst erfitt að láta myndirnar mínar af hendi til einhvers annars, ég óttast alltaf viðbrögðin einhvernveginn & gildir einu um hvort þær eru á stafrænu formi eða á prenti.
Sérstaklega á þetta við um þegar mér hefur á einhvern hátt verið greitt fyrir myndefnið, þá er svona lítill púki sem hvíslar að mér að þetta sé nú vart peninga virði & ég væri bara þjófurur & ræningi að þyggja fé fyrir þetta smáræði.

Heldur hef ég svosem ekki selt mikið af verkum á prenti en einhvernveginn hef ég þó haft betri tilfinningu fyrir að láta fólki í té mynd á prentuðu formi sem ég hef fengið færi á að virða fyrir mér helst í nokkra daga áður en ég samþykki að hún sé nægilega góð.

Nú á dögunum seldi ég til myndlistarháhugamanns veglega seríu portretta af útigangsmönnum í reykjavík (sem flestar má finna á zeranico.com) en hann hefur nú keypt alls níu portrett, átta af þeim eru óafhend en prentin hef ég þó fengið í hendur & er næsta skref að finna þeim ramma við hæfi.

Mér hefur aldrei liðið eins vel & verið eins sáttur við að selja afurð mína í ljósmyndun en einhvernveginn hafa þessi portrett alltaf verið mér kær, & á margan hátt það flottasta sem ég hef gert í ljósmyndun!

Ekki skemmir fyrir að pappírsval & prentun á myndunum eru slíkt fyrirtak að ég hef aldrei séð annað eins á mínum myndum, en sú vinna skrifast alfarið á Christopher Lund þann víðfræga trommuheila & stórljósmyndara.

En rammarnir eru eftir…….

Posted in Ljósmyndun | 2 Comments »