Linsupælingar
Mig langar að vita hvort einhver hérna hefur prófað að nota svona gamlar manual focus linsur á EOS DSLR vé (EOS 5D í mínu tilfelli)l, Canon FD eða jafnvel gamlar Nikkor linsur, og ef einhver væri hvort sá væri til í að deila reynslu sinni af því, kostum & göllum, hvort einhverjir adadterar séu verri en aðrir osfrv..
Ástæðan fyrir að ég er að spá í þessu er sú að þessar gömlu linsur er oftar en ekki hægt að fá talsvert ódýrari en nýju fínu auto focus linsurnar með rauðum & gylltum hringjum…. jú jú maður er lengur að manual fókusa en ég er yfirleitt ekkert að drífa mig svo ásamt því sem ég hef ágæta þjálfun í að fókusa handvirkt.
Helst ber ég losta til fastrar linsu á bilinu 100-150mm í portrettur & annað tilfallandi!
Posted in Ljósmyndun | 1 Comment »
