April 30th, 2009 by admin
Yfirleitt fer það nett í taugarnar á mér að fólk skuli taka sér bessaleyfi til að nota myndirnar mínar í eitthvað sem þeim finnst sniðugt & er slíkt í langflestum tilfellum óásættanlegt athæfi í mínum bókum.
Í tilfelli Munnriðar fannst mér það aftur á móti nett fyndið & hef ég, ásamt Ásdísi (að því ég best veit) nú þegar veitt hljómsveitinni góðfúslegt leyfi til að nota myndina hljómsveitinni til gífurlegs framdráttar & tafarlausar heimsfrægðar.
Tómdæmi og aðrar upplýsingar um hljómsveitina má finna á myspace á vefslóðinni http://myspace.com/munnridur
Lifið Heil
Posted in Ljósmyndun | No Comments »
April 27th, 2009 by admin
Ég var vitni að því um daginn þegar spjátrúngslegur sölumaður Byggt og Búið hélt eina þá mögnuðustu söluræðu sem ég hef um dagana séð.
Fórnarlömbin hjón á mínum aldri voru alveg að kokgleypa þetta & hafa vafalaust haldið heim á leið hýr á brá með spánýja endurhannaða & últrateknó 2009 árgerð af SODASTREM TÆKI!
Posted in Almennt | No Comments »
April 26th, 2009 by admin
Ég fæ ekki alveg skilið hversvegna Samfylking geldur ekki fyrir afhroð sín & hórdóm í bæli sjálfstæðisdólgsins.
það virtist duga þessi barbabrella þeirra að setja Jóhönnu í skipsstafninn með fögur fyrirheit & blásið fax.
Hún er jú kannski eitthvað skárri en hitt skassið, en einhvernveginn grunar mig að það sé sama rassgatið undir henni þegar öllu er á botninn hvolft.
Er ekki alveg örugglega rétt skilið hjá mér að Sjálfstæðislokkur & Samfylking geti miðað við þessar niðurstöður myndað ríkisstjórn & sett okkur svoldið meira á hausinn?
Húrra Húrra Húrra!
Posted in Almennt | 1 Comment »
April 25th, 2009 by admin
Ég hef ákveðið að taka mér fyrir hendur ljósmyndaverkefni sem eiginlega hræðir mig pínulítið.
Viðfangsefnið er alvöruþrugnið og ógnvekjand kannski afþví að ég veit ekki hvernig það endar.
Ég óttast einnig að ég kunni ekki að valda því…
Posted in Almennt | 1 Comment »
April 22nd, 2009 by admin

© Pjétur Geir Óskarsson - zeranico.com
Bronica SQ-A, Ilford HP5+
Posted in Ljósmyndun | 3 Comments »
April 22nd, 2009 by admin
Ég var að uppgötva mér til mikillar ánægju að ekki er ég einungis giftur frábærri konu sem er öllum þeim kostum gædd sem góð eiginkona gæti mögulega verið, heldur hefur mér einnig hlotnast það sem er nærtækast að kalla Muse!
Stundum er lífið galdri líkast
Posted in Almennt | No Comments »
April 21st, 2009 by admin
Konur tvær, önnur íslensk í breiðari kantinum & hin yngri kona, glæsileg & grannvaxin sitja við snæðing.
Þær vinna nú bara saman í þessum ræstingum & svona, þekkjast ekkert þannig eða neitt.
Yngri konan nagar gulrót glöð á brá meðan sú eldri gúffar í sig súkkukökusneið eins & hún eigi lífið að leysa, þegar gellur í kellingunni, “þú ert kanína!”.
Sú yngri kímir þá í kampinn ofurblítt & segir hátt & snjallt á sinni bjöguðu íslensku “Já & þú ert Feit!”
Posted in Almennt | 1 Comment »
April 19th, 2009 by admin
Svart skalða vera, nú líka get ég haft myndirnar pínu stærri, mikið voðalega er þetta fínt…
Posted in Almennt | 3 Comments »
April 19th, 2009 by admin
Ég var að fatta að myndavél þarf ekki endilega að vera bara myndavél.
Hún getur líka verið Fashion Statement!
Það er líka eilítið kómískt að það skuli vera í hátísku núna meðal kvenna að vera með stuttar svartlakkaðar neglur, mér persónulega finnst það svoldið 2006-2007!
Posted in Almennt | 2 Comments »
April 18th, 2009 by admin

© Pjétur Geir Óskarsson - zeranico.com
Horizon Perfekt - Ilford Delta 3200
Posted in Ljósmyndun | 2 Comments »