February 28th, 2009 by admin

Það er svolítið langt síðan ég hef farið á jafn kúl tónleika & í gær & verið jafnframt eini ljósmyndarinn á staðnum, hefur kannski enginn gaman af að ljósmynda tónleika lengur?

Ég sjálfur er reyndar nánast hættur að nenna slíku nema í undartekningatilvikum, en nú eru sumsé hressar myndir af Mick Jagger íslands ásamt föruneyti í pípunum.

Ég segi ykkur svo kannski seinna hvernig ég tæklaði óeinkennisklæddu lögreglumennina sem ztöðvuðu för mína síðastliðna nótt.

Lifið Heil

Posted in Almennt | 1 Comment »

February 27th, 2009 by admin

Hvernig væri að gera portrait seríu af 10 hættulegustu glæpamönnum íslands.

Hverjir skildu skipa þann hóp?

Posted in Almennt | 4 Comments »

February 25th, 2009 by admin

Ég er kominn með svarið við skotum þess efnis að það sé bara gamaldags & úrelt að ljósmynda á filmur.

Ég meina myndiru segja radio amatör að hætta þessu rugli og fá sér bara síma?
nú eða nota bara skype!

Ég er nú einu sinni photo amatör…

Posted in Almennt | 2 Comments »

Róbert Daði Friðriksson f.1972 - d.2009

February 22nd, 2009 by admin

Róbert Daði

© Pjétur Geir Óskarsson - zeranico.com

Það var fyrir fáum dögum að mér bárust þær hörmulegu fréttir að vinur minn & félagi væri fallinn frá.
Útför hans var á föstudaginn síðastliðinn & er myndin hér að ofan tekin við það tækifæri.

Róbert Daði eða Daði eins & hann var alltaf kallaður vestur á ísafirði var einn af mínum fyrstu vinum & jafnvel þó samneyti okkar hafi verið ákaflega lítið eftir að við komumst á fullorðinsaldur hef ég ávallt litið á hann sem kæran vin minn.
Til dæmis var hann söngvari í fyrstu hljómsveitinni sem ég átti þátt í að stofna & hét hún Hrer.
Ásamt mér & Daða var þar innanborðs Ágúst Guðmundur Atlason jafnaldri okkar & mikill vinur minn en hann lék á trommur & ég á rafbassa.
Æfingarhúsnæðið var kjallaraherbergi að heimili Daða við túngötu á ísafirði & lékum við á einum hljómleikum í sal barnaskóla ísafjarðar við mikinn fögnuð bekkjarfélaga okkar.
Segja má að Daði hafi hætt á toppnum hvað tónlistariðkun varðar en ég veit ekki til að hann hafi verið í hljómsveitum eftir þetta.

Ég á bágt með að festa fingur á hvað tengdi mig Daða á þann hátt sem raunin er, en þó leiðir okkar hafi skilið fyrir fermingu skildu þær aldrei að því leyti að mér hefur alla tíð verið afar hlýtt til Daða.
Það var aldrei svo að ég hitti hann á förnum vegi að við tókum ekki stutt tal saman, en honum fannst til dæmis sérstaklega gaman að rifja upp af einhvert af þeim strákapörum sem við í tókum upp á þegar við vorum púkar & þá var undantekningalaust hlegið hátt á báða bóga.

Þó líf Daða hafi á margan hátt einkennst af miklum & djúpum erfiðleikum man ég aldrei eftir honum öðruvísi en brosandi & það er nákvæmlega þannig sem ég mun minnast hans mína daga.

Fjölskyldu Daða votta ég mína dýpstu samúð & raunar öllum þeim sem þekktu Daða en ég held að allir sem hann þekktu hljóti að geta sammælst um að þar hafi farið góður drengur of snemma.

Bless Daði!

Posted in Almennt | 5 Comments »

80´s var svoldið málið…

February 20th, 2009 by admin

Arnar & Pjétur

Fatta samt ekki alveg klippinguna, þetta hefur heflaust verið hálft paunk & hálfur metall…

Posted in Almennt | 5 Comments »

February 19th, 2009 by admin

Ég er voðalega ánægður með götumyndina sem ég var að setja í hausinn, þið getið séð hana stærri hér ef þið viljið ….

Þetta grobb var í boði Foldginger

Posted in Almennt | No Comments »

I M F

February 19th, 2009 by admin

International Mother Fuckers

© Pjétur Geir Óskarsson - zeranico.com

Posted in Ljósmyndun | 6 Comments »

February 17th, 2009 by admin

Vitiði hvort einhver af íslensku útrásarvíkingunum keyptu sér ljón í góðærinu?

Ég meina ljón kostar ekkert á við t.d einkaþotu en er samt miklu svalarara!

Posted in Almennt | No Comments »

February 17th, 2009 by admin

Ég var að eignast þýskan pennavin sem hefur gríðarlegan áhuga á gömlu íslensku pönki, ægilega smart.

Posted in Almennt | 4 Comments »

February 16th, 2009 by admin

Eftir drykklanga íhugun & flettingar í virðulegustu bók heimilisins, nefninlega rússnesk-íslensk orðabókinni, sagði hún Lyudmyla mín með sinni hljómfögru rödd…

Þú ert Grobbari!

Posted in Almennt | 2 Comments »

« Previous Entries