Sérkennilegt að velferðarsamfélag sem borgar háa skatta eins & ísland þurfi að kaupa púðurkerlingar fyrir milljónir á milljónir ofan til að einhver nenni að leita að okkur þegar við týnumst.
Jú jú ég hef alveg samúð með björgunarsveitum & allt það en ég fíla ekki þessar auglýsingaherferðir þeirra sem höfða til meðvirkninnar sem landinn er svo sligaður af.
Skilaboðin eru einfaldlega þau að þú eigir að skammast þín, ofan í rassgat helst, fyrir að kaupa ekki þetta rusl.
Ég meina duga skattarnir mínir virkilega ekki fyrir nokkrum köllum á jeppa að kemba umferðareyjur bæjarins ef ske kynni að ég myndi snappa?
Nýjustu fregnir herma að einvala lið Hagfræðinga leggi nú nótt við nýtan dag við að reikna út plássið sem sparaðist við flatskjávæðingu landans á (góð)árinu sem nú er að líða undir lok.
Jafnvel svartsýnustu menn binda miklar vonir við að söluverðmæti plássins umreiknað í zimbabve dollara nái að dekka launakostnað seðlabankans allt til dauðadags Davíðs Oddsonar, sem hefur verið ákveðið að muni verða 17. júní það herrans ár 2015.
Markaðsherferðin sem mun bera nafnið Eignastu fermeter á Íslandi® ku vera langt á veg komin & hafa nú þegar arabískir olíufurstar ásamt öðrum fjársterkum aðilum sýnt prójektinu, sem þykir lýsa eintómri snilld íslenskra hagfræðinga, gríðarlegan áhuga.
Átt þú lesandi góður, fermeter sem þú ert hættur að nota?
- færslan er innblásin af minni eigin athugasemd við þessa færslu katrínar punktur is.
Í stað þess að gera einsskonar ljósmyndaannál eins & ég gerði í fyrra ákvað ég að smíða lítið sætt dagatal sem nú hefur verið gert aðgengilegt hér í hægri valmyndinni & þjónar sama tilgangi, sem er í raun þegar öllu er á botninn hvolft ekki annar en að fylgjast með sjálfum mér þróast og þroskast sem ljósmyndara!
Að sjálfsögðu mun Kviksyndasteinsteypan sjá um útgáfu & sölu á þessum gersemum þar sem önnur útgáfufélög hafa ekki sýnt þessu stórvirki snefil af áhuga, en vel kæmi til greina að prenta þetta & selja með lítilli álagningu ef áhugi reynist einhver.
Segiði svo að ég sé ekki súpermódel helvítin ykkar?!?
Ég vil nota þetta tækirfæri og þakka þeim sem horfðu á myndirnar mínar & lásu þetta blogg á árinu sem senn er á enda fyrir samveruna, ásamt því sem ég óska ykkur hjartanlega gleðilegra jóla & farsæls komandi árs.
Megi ríkisstjórnin verða brennd á þréttandabrennu!
Konunni sem ég er giftur fannst í dag full ástæða til að við fengjum veglegan afslátt af umsömdu kaupverði á The Boys from Chicago með Íkarus í kolaportinu í dag, í ljósi þess að hún hafi fæðst í Sóvíetríkjunum.
Til upplýsinga fyrir þá sem ekki vita þá prýðir ljósmynd af Leonid Brezhnev & nokkrum galvöskum píónerum umslag þessarar fornfrægu plötu, en engar heimildir eru til um að greiðslur hafi nokkurntíma borist sovéska lýðveldinu fyrir notkun á myndinni í þessum tilgangi.
Því get ég ekki annað séð en að þessi krafa konu minnar hafi verið fyllilega réttmætt & verður málinu nú skotið rakleitt til háheilaga kommúnistadómstólsins í Moskvu.
En skyldu rússneskir pönkarar vera búnir að fatta djókið í að gefa út plötu með ljósmynd af Davíð Oddsyni á koverinu?
Í myndskeiðinu hér að ofan fylgjumst við með aðalpersónu Ne le dis à personne, lækninum geðþekka François Cluzet láta hugann reika um ástina sína sem var svo falleg & sönn, en var svo hrifsuð úr höndum hans af dauðanum skelfilega sem allir óttast svo mjög.
Lagið sem hljómar undir atriðinu er síður en svo af verri endanum, en mér finnst þessi gamla Jeff Buckley ballaða klæða þetta atriði með eindæmum vel.
Fjármögnun sjóðsins hefur gengið vonum framar & hefur stjórnin því ákveðið að ekki sé eftir neinu að bíða með aðgerðir þær er snúa að því að ræna öllum innistæðum hans & brenna á neyslubálinu sem á endanum á að svíða rasshárin á skaparanum.
Fyrsti liður í þeirri aðgerð hefur verið ákveðin, en hann snýr að kaupum á notaðri stafrænni myndavél af gerðinni Canon EOS 5D.
Kaupverðið hefur verið fastsett í 130.000 íslenskum krónum sem þykir svíða hæfilega bæði fyrir seljanda að ógleymdum fjárfestum sjóðsins.
Öllum þeim sem halda að þeir geti orðið að einhverju liði í þessum ráðahag er bent á að senda tölvupóst til zeranico (hja) gmail punktur komm, eða hringja í síma 847-9132.
Ég sagði tannlækninum mínum að hann gæti verið þakklátur fyrir það að þurfa ekki að halda uppi einhverju innihaldslausu kjaftasnatti um daginn & veginn við viðskiptavini sína meðan hann þjónustar þá.
Hann vildi þó meina að í stéttinni væru rómaðir kjaftaskar, en það hljóta þá væntanlega að vera náungar sem hafa yndi af að hlusta á sjálfa sig tala.