Mér datt í hug & nefndi í msn samtali við katrínu að efna til friðsamlegra mótmæla við morgunblaðshöllina & krefjast þess að vefþjónarnir sem keyra moggablogginn viðurstyggilegu verði tafarlaust teknir niður & harðdiskar þeirra forsniðnir á vélbúnaðarplani í votta viðurvist!
Í framhaldinu væri hægt að krefja stjórnvöld um að flétta inn í næstu fjölmiðlalög að óheimilt væri með öllu að halda úti fréttaveitu með gagnvirkum hætti eins & kvalið hefur saklausa fréttaþyrsta landsmenn undanfarin misseri, aðallega af hálfu Morgunblaðsins.
Ég var að fatta að ég á handskrifað blogg í tveim frekar en einni línustrikaðri innbundinni bók einhverstaðar í draslinu mínu.
Þetta mun vera frá árunum 1992-1995 u.þ.b.
Ég þótti meira að segja með þokkalega rithönd.
Nú handskrifar enginn eitt eða neitt, fólk nennir varla að hafa fyrir að leggja metnað í að skrifa nafn sitt fallega á klósettpappírinn sem vellur út úr posunum í mammonshöllunum, enda kannski engin ástæða til.
Mikið held ég samt að fólk ætti erfitt með að villa á sér heimildir í bloggheimum ef beita þyrfti rithöndinni físískt!
Ég verð eiginlega að viðurkenna að ég er hálf miður mín yfir fráfalli Ármanns Jakobssonar úr RSS rúntinum mínum, hann var óumdeilanlega eftirlætis kreppubloggarinn minn.
Mér finnst að við ættum að fjölmenna heim til hans að mótmæla & heimta að hann sjái að sér.
Rússneskunámið gengur hægt, þó hef ég bætt einhverjum orðum í forðann síðan ég kom heim frá Úkraínu, en betur má ef duga skal. ég kemst ekki ýkja langt á því að geta boðið góðan daginn, sagst elska viðmælanda minn eða vera svangur.
það er kannski það sem þeir kalla að vera mellufær?
Svona af því það er svo voðalega gott fyrir sálarlífið að breyta til í kringum sig ákváðum við hjónin að umraða í betri stofu heimilisins í gærkveldi, sem er svosem ekkert í frásögur færandi.
Við þessa hrókun endaði plötuspilari heimilisins aðeins lengra frá viðtækjunum en hann hafði áður verið með þeim afleiðingum að RCA snúran dró ekki.
Með þessar upplýsingar í farteskinu skundaði ég sem leið lá í Elko sem ég geri alla jafnan ekki.
Jú aðvífandi afgreiðslutittur benti mér á þartilgerðan rekka, en við fyrstu sýn virtist mér ekki vera annað í boði en gullslegin RCA snúra fyrir rúmar 6 þúsund krónur, en þar sem ég er svo voðalega lítið snobbaður fannst mér engin sérstök ástæða til að tengja spilarann þó fínn sé með gullvírum.
Aftur var kallað í afgreiðslutitt sem jú gat bent mér á ódýrari möguleika í stöðunni en sú lausn kostaði samt litlar 2.440 krónur með engu gulli.
Þar sem ég er einkar fljótur að reikna ásamt því að vera ákaflega tæknilega sinnaður komst ég umsvifalaust að þeirri niðurstöðu að það væri verið að reyna að taka mig í óæðri endann & það á opinberum vettvangi, ég rauk því á dyr áður en titturinn gat svo mikið sem mundað vaselínið.
Ég tel mig vita fyrir víst að miðbæjarradíó eða íhlutir gætu selt mér svona snúru fyrir fáeina hundrað kalla en í ljósi þess að ég átti ekki leið í miðborgina fór ég sem leið lá í Byko í ópavogi sem voru til í að selja mér sambærilega snúru fyrir þúsund krónur, sem er þó alveg örugglega okur líka,en þó rúmlega helmingi ódýrara en í Elko.