Ég M Ó T M Æ L I

October 31st, 2008 by admin

Hvað með að fara á morgun & mótmæla mótmælunum?

En svona grínlaust þá held ég að ég geti ekki annað en farið & skrásett auglýst mótmæli í miðborg Reykjavíkur á morgun.
Jafn sögulegt ástand hef ég ekki á minnni ævi upplifað & það væri hreinlega heimska að reyna ekki að skrásetja það með einhverjum hætti!

Ég vil þó taka fram að ég hef enga opinbera afstöðu í málinu!

Posted in Ljósmyndun | 1 Comment »

Dönsum til að Gleyma

October 31st, 2008 by admin

K R E P P U N N I

Og dönsum nú öll saman!

Posted in Almennt | 5 Comments »

Ú T R Á S

October 31st, 2008 by admin

Hver sagði að útrásin væri búin?

Posted in Almennt | No Comments »

T I L B O Ð

October 30th, 2008 by admin

þar sem mig grunar að það sé talsvert af ljósmyndaáhugafólki sem myndi mynda eilítið meira á svarthvítar filmur ef í boði væri ódýr framköllun.
Þar sem nú kreppir að & skapandi hugsanir fara að kræla á sér hef ég ákveðið að bjóða þeim sem hafa áhuga á að láta framkalla fyrir sig svarthvítar filmur hvort sem er 35mm eða medium format 120 eða 220 fyrir litlar 300 íslenskar krónur stykkið.

Um er að ræða handavinnuframköllun upp á gamla mátan, líklegast með ID-11 framkallara.

Svo má vel vera ef áhuginn er einhver að maður skoði að skanna eða afhenda prentuð contact sheets*

Áhugasömum er bent á að senda mér tölvupóst á zeranico(hja)gmail.com eða hringja í síma 847-9132

*prentun af filmum í raunstærð í myrkrakompu eða með tölvuprentun c.a A4 stærð hver filma.

viðbætir: athugið að hugmyndin er á algjöru frumstigi & ef viðtökur verða með betra móti má hugsast að ákveðið fyrirkomulag með móttöku & afhendingartíma verði smíðað öllum til hagsbóta & þæginda!

Posted in Almennt | 3 Comments »

October 30th, 2008 by admin

Getur einhver lögfróður sagt mér hvort það er lögbrot að hvetja fólk til þjófnaða & almennrar sjálfsbjargarviðleitni á opinberum vettvangi?

Ég var nefninlega að pæla í að halda svona námskeið þar sem ég myndi kenna fólki að hnupla úr búðum ásamt öðru nýtilegu.

Posted in Almennt | 2 Comments »

S V I K

October 29th, 2008 by admin

Þetta er eilítið undarlegt í ljósi þeirra upplýsinga sem hér eru tíundaðar.

Að okra á þurftalingum, Það er síminn!

Maður ætti náttúrulega bara að hætta að nota þetta helvítis internet!

Posted in Almennt | 2 Comments »

L A U S N

October 28th, 2008 by admin

Ég er búinn að pæla talsvert í hvernig ég tækla þessa hugsýki sem ég er haldinn varðandi efnahagsmál, gengi gjaldmiðla & hvað þetta heitir nú allt saman sem er mig lifandi að drepa, en þó sem betur fer aðallega í toppstykkinu á mér.
Málið er einfaldlega það að ég hef ekki snefil af áhuga á þessu djöfulsins rugli öllu saman & því vil ég það út úr sýsteminu.

Þar sem ég stóð nakinn undir heitri sturtunni datt mér það snjallræði í hug að nota gömlu góðu æðruleysisbænina sem Tóti Tyrfings kenndi mér hérna um árið inn á vogi & ég man ennþá þrátt fyrir allt sem á hefur gengið.
það er eitt dónalegt orð þarna þó sem skipta má út fyrir eitthvað sem hentar betur, en ég held þetta sé alveg prýðilegt að hugsa þetta yfir einu sinni eða oftar þegar maður er kominn með hausinn lengst upp í rassgatið á einhverjum pólitíkusum eða auðöpum.

og allir saman nú.

Guð* gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt
Kjark til að breyta því sem ég get breytt
& vit til að greinar þar á milli.

*útskiptanlegt orð sem minnst er á að ofan

Góðar Stundir

Posted in Almennt | No Comments »

October 28th, 2008 by admin

Undanfarið hef ég verið að hlusta á nýja hljómdisk Emilíönu Torrini.
Ef það væru til svona englar á himnum eins og prestarnir vilja meina þá er ég handviss um að þeir hefðu röddina hennar Emilíönu.

Posted in Almennt | 2 Comments »

T E R R O R

October 27th, 2008 by admin

mynd birt með góðfúslegu leyfi Þorkels Þorkelssonar en aðrar myndir úr þessari skemmtilegu seríu má sjá á heimasíðu hans sem & í Vetrargarði Smáralimsins.

Posted in Ljósmyndun | 5 Comments »

October 26th, 2008 by admin

Hinn siðmenntaði heimur hefur í gegnum aldirnar gengið í gegnum allt litrófið af hörmungum í formi styrjalda, þjóðarmorða & banvænna farsótta að ógleymdri hinni klassísku hungursneið.
Ekki er að sjá á þessu að við höfum lært neina sérstaka lexíu, hvað þá náð að rísa upp yfir breiskni okkar líkt & maður sem segir skilið við fyrri breytni sína, tekur poka sinn & gengur út í óvissuna á vit ævintýrana óttalaus & uppréttur!

Í því ljósi finnst mér ofurlítið skondið að fólk skuli trúa því af jafn djúpri sannfæringu & raun ber vitni að bankakreppan mikla árið 2008 muni leiða af sér einhvern stórkostlegan þroska & byltingu mannsandans.

Góðar Stundir

Posted in Almennt | No Comments »

« Previous Entries