September 30th, 2008 by admin

Bronica SQ-A, Ilford HP5

Posted in Ljósmyndun | No Comments »

Og allir saman nú

September 30th, 2008 by admin

Davíð var feitur dvergur
á eigin vegum hann gekk
hann fór til að fella risann
og marga litla milljarða hann fékk

Einn lítinn milljarð í bankann hann setti & bankinn fór hring eftir hring
hring eftir hring & hring eftir hring já bankinn fór hring eftir hring

Upp í loftið hentist hann
& felldi lítið krónugrey!

Posted in Almennt | No Comments »

Portrait á manninn sem ég ekki fann

September 27th, 2008 by admin

Vetrinum ætla ég að eyða að eins miklum hluta & ég get í að þjálfa mig í ljósmyndun af meiri alvöru en ég hef hingað til gert.

Svo þegar ég fer næst til Úkraínu væri plan að ráðst í að gera fleirri portrait í þessum dúr, nú eða fara bara til Mexico City að mynda vini hans Antonio sem er svo prýðilegur þrátt fyrir að líta út fyrir að borða börn í morgunmat.

Þá gætum við kannski farið að tala um að ég hafi áorkað einhverju af viti!

Posted in Ljósmyndun | 1 Comment »

Félagsmál

September 27th, 2008 by admin

Mikið finnst mér ánægjulegt að maður sem hefur einhverja vigt skuli stíga fram & varpa ljósi á það apakattastjórnarfar sem hér ríkir.

Sú tilfinning mín að allt sé í eðli sínu rotið & verði á endanum að skít er kannski ekki eftir allt saman svo galin?

Annars eru ekki allir auðapar & stórathafnamenn svo galnir, ég þekki allavega einn sem er alveg skínandi prýðilegur.

Posted in Almennt | No Comments »

September 26th, 2008 by admin

Ef þú hefur ekki eitthvað að verma þér á í þessum kalda heimi þá munt þú einnig verða kaldur & grár.
þú vilt ekki vera nakin & snauður inn að innstu sálarkimum eftir að dæmið hefur verið reiknað til enda, er það?

Það er óvíst að það séu einhver spil eftir!

Posted in Almennt | No Comments »

Skelfing og Ótti

September 26th, 2008 by admin

Þessar niðurstöður hafa gjörsamlega eyðilagt fyrir mér daginn!

Posted in Almennt | 3 Comments »

Rússneskt Biker-Rokk

September 26th, 2008 by admin

þann tíma sem ég dvaldi í úkraínu í sumar sat ég m.a góðar 20 klukkustundir samtals að láta bleka á mér handlegginn.
Þegar það átti sér stað lét húðlistamaðurinn tónlist hljóma úr farsíma sínum á eldhúsborðinu ásamt því sem hann sötraði bjór og reykti sígarettur eins og vindurinn sjálfur.

Tónlistin var að vonum sér í lagi undarleg en þó kunni hann vel að meta þá stórgóðu hljómsveit System of a Down sem laumaði sér inn á milli rússneskra  Biker rokk slagara, sem hann söng með & gerði látbragð þegar við átti til að gera mér á einhvern hátt ljóst að um mjög mikin töffaraskap væri að ræða.

Ég sé núna mest eftir að hafa ekki fengið afrit af þessum kræsingum, ég geri það næst!

Posted in Tónlist | No Comments »

Kynjakonur

September 25th, 2008 by admin

Mér finnst konur miklu meira pleija sig sem kynverur í blogheimum en karlar, afhverju skyldi það vera?

Posted in Almennt | 3 Comments »

Blek stúdía

September 25th, 2008 by admin

© Pjétur Geir Óskarsson - www.zeranico.com

Posted in Ljósmyndun | 1 Comment »

Leiðinlegir Útvarpsmenn

September 25th, 2008 by admin

Ég óttast að titillinn Leiðinlegasti útvarpsmaður Íslands sem Ómar Bóner hefur hingað til átt skuldlausan hljóti að vera í voða nú þegar Búbbi semtapaðiölluíkreppunni Mortens hefur tilkynnt að hann muni setjast við hljóðneman á því háheilaga útvarpi allra landsmanna RÚV.

Þetta eru kannski dauðakippir miðilsins bara?
Hvað sem því líður hlýt ég sem heiðvirður skattgreiðandi að mótmæla þessari ráðningu eindregið & án alls vafa!

Posted in Almennt | 1 Comment »

« Previous Entries