Chris Usher

July 30th, 2008 by admin

Þið sem eruð vel að ykkur vitið eflaust hver þessi Chris Usher er, en þið hin sem vitið það ekki en hafið áhuga á ljósmyndun ættuð að tékka á honum á http://www.chrisusher.com/

Ég veit þetta er ammrískt, en það verður bara að hafa það!

Posted in Ljósmyndun | No Comments »

Krókó Pókó

July 29th, 2008 by admin

Við getum prísað okkur sæl yfir að Krókódílamaðurinn sé hættur fyrri iðju sinni, því ómögulegt er að vita hvaða áhrif títtumrætt lag Baggalútar hefði haft á hann.

Þó kann að vera að lagið sé til þess fallið æra óstöðugan & grái fiðringurinn grípi hann aftur & enn heljartökum með þeirri banvænu greddu sem allir viti bornir menn muna svo gjörla.

Reikna má með að Laufey sé ekki jafn fótafim að hlaupa uppi ljóta kallin & þarna um árið svo það er engan vegin fyrirsjáanlegt hvað mun gerast á næstum misserum!

Góðar Stundir

Posted in Almennt | No Comments »

Plebbaskapur

July 29th, 2008 by admin

Mér er alls ekki ljúft að viðurkenna það en ég hugsa stundum eins & Plebbi.

Dæmi: Ég á nokkura ára gamla bifreið sem ég skulda svolítið í & er nú kominn tími á að dytta að einu & öðru sem þó flokkast undir almennt viðhald á bifreið.

Um daginn fékk ég þá snilldar hugmynd að í stað þess að punga út fyrir viðhaldi á þessari bifreið & fara með hana í skoðun eins & skyldan segir til um gæti ég keyrt hann inn í bifreiðaumboð þar sem sölumenn, tvöfaldir ef ekki þrefaldir í roðinu gætu gert við mig svokallaðan skiptidíl.

Þeir fengju s.s gamla bílinn minn & létu mér í té nýrri druslu.
Ég myndi kvitta undir & aka á brott í fallegri bíl en allir sem eru komnir af léttasta skeiði vita að frúin hlær í betri bíl frá honum þarna skítbuxa sem seldi svo mikið af druslum í gamla daga.

Það segir sig eiginlega alveg sjálft að svona hugsa bara Plebbar

Posted in Almennt | No Comments »

July 28th, 2008 by admin

hvað er málið með að láta Batman tala eins & black metal söngvara þegar hann er í skrúðanum?

Posted in Almennt | No Comments »

Óspektir á Almannafæri

July 26th, 2008 by admin

Helga Hóseasyni, sem stundum er kallaður Mótmælandi Íslands, barst í kvöld óvæntur stuðningur á horninu sínu framan við Beco, en þar er hann gjarnan með spjöldin sín skemmtilegu sem fæstir skilja upp né niður í.

Þar fóru hamförum, við litla kátínu Helga reyndar, hljómsveitin Atómstöðin, en hún er um þessar mundir að kynna nýútkomna plötu sína sem auðvitað skartar ljósmynd af Helga eftir undirritaðan.

Ég að sjálfsögðu mætti í gullskónum með stafræningjamyndavélina mína & myndaði þennan merka viðburð eftir því sem geta mín og búnaður gáfu tilefni til, en valdar myndir eru nú þegar til sýnis á Flick´r ævintýrinu sem ég hef nú ákveðið að ég sé ekkert of góður til að nota til að sýna ykkur myndir.

Skítt með Krossláf

Posted in Ljósmyndun, Tónlist | 2 Comments »

Miðgarður í mynd

July 24th, 2008 by admin

Sigurjón Guðjónsson er einn af þeim mönnum sem ég hef vingast við í gegnum alnetið prýðilega, & þótt kynni okkar hafi farið að mestu fram yfir netið tel ég okkur hafa orðið ágætlega til vina.

Ég veit ekki með ykkur en ég hyggst keyra þarna í rassgat til að vera við opnun hans fyrstu einkasýningar, en allar upplýsingar um hana má finna hér.

Sjáumst

Posted in Ljósmyndun | 4 Comments »

Öld Déjoðana

July 23rd, 2008 by admin

Miðað við hve mikið er til af skemmtilegum íslenskum hljómsveitum þykir mér heldur dapurt hversu vandratað er inn á skemmtistaði í miðborg reykjavíkur sem bjóða upp á lifandi tónlist.

Mér finnst sem þetta hafi stökkbreyst á fáum árum úr því að vera þokkalegt yfir í að vera skítlélegt.

Eru fleirri en ég sem upplifa þetta, eða er ég kannski homminn í þessu sérstæða máli?

Posted in Tónlist | No Comments »

Tímun

July 22nd, 2008 by admin

Ég hef ekki lyft myndavél síðan ég kom heim úr sumarleyfinu, utan eitt skipti sem ég tók nokkrar studio myndir af ungri keflavíkursnót.

Það er þó ekki svo að ég sé uppiskroppa með hugmyndir að ljósmynda prójektum, þar er af nógu að taka.

Sagt er að vinnan göfgi manninn, en þó leyfi ég mér að fullyrða að hún standi í vegi fyrir sköpunarkraftinum sem leysist úr læðingi þegar ég er einhverstaðar einn með myndavél.

Ég segi einn þó viðfangsefnið kunni að vera af holdi og blóði, það er bara í allt öðru veldi!

Segðu sís!

Posted in Ljósmyndun | 1 Comment »

Ofmat?

July 21st, 2008 by admin

Það er ekki á degi hverjum sem kvikmynd gerir sér lítið fyrir & hrifsar til sín toppsætið á lista imdb yfir bestu kvikmyndir allra tíma.

Einhvernveginn held ég þó að um ofmat sé að ræða, en þó gætum við í fyrsta sinn í sögunni séð látinn mann hljóta óskarsverðlaun fyrir frammistöðu á hvíta tjaldinu!

Posted in Almennt | No Comments »

Tikk Takk

July 21st, 2008 by admin

Ég merki það í fari mínu að ég hef alveg sérstaklega mikinn áhuga fyrir klukkum.

Það lýsir sér m.a þannig að ef ég er staddur í skranbúðum svosem Ikea, Rúnkfatalagernum og Tiger, svo ég tali nú ekki um ef ég asnast inn í sjoppu sem verslar með antik, sé ég nær undantekningalaust eina eða fleirri klukkur sem ég finn hjá mér knýjandi þörf til að bera heim.

Ég bý ekki enn svo vel að eiga fallega antik klukku sem gengur hárnákvæmt & tikkar svo undurfallega, svo ég þarf líklega að ráða á því bót.

Ég er handviss um að þá verð ég fyrst almennilega uppfylltur og hamingjusamur!

Posted in Almennt | No Comments »

« Previous Entries