May 29th, 2008 by admin
það verður samt opið hérna, kaffi á könnunni & gamlir pistlar á tilboði.
Ég verð þó fjarri góðu gamni & kem ekki til með að veita af brunni visku minnar hér næsta mánuðinn eða svo.
Þar sem hugur minn reikar & er nú kominn a.m.k hálfa leið til Úkraínu, nánar tiltekið til Southampton, sé ég enga ástæðu til að vera eitthvað að velta fyrir mér tilgang lífsins að svo stöddu, það má bíða.
En þið ykkar sem þekkið persónulega til Sigurðar Bang vil ég biðja um að fylgjast mjög náið með ferðum hans í okurverslanir, s.s Nóatún, 10-11 & aðrar verslanir sem kenna sig við klukkur.
Sérstaklega vil ég biðja ykkur um að fylgjast með gosdrykkja & sælgætisinnkaupum hans, en hann eins & kunnugt er hefur sett sér enn eina lífsregluna & þarf á ykkar stuðning að halda meira nú en nokkru sinni.
Lifið Heil
Posted in Almennt | 1 Comment »
May 25th, 2008 by admin
Ég hef lengi gengið með þá hugmynd í kollinum að gera litla seríu af myndum af rusli.
Pælingin var að vekja athygli á því með myndrænum hætti hve einnota tilveru við lifum & hrærumst í, & jafnvel framreiða með myndunum tölulegar upplýsingar um magnið af tilteknu sorpi við framleiðum á t.d ársgrundvelli.
Í vikunni hljóp ég til & réðst í verkefnið & smíðaði þessar myndir sem má nú sjá í hinum enda tilveru minnar hér á lýðnetinu, www.zeranico.com ,en af ástæðum sem ég nenni ekki að tíunda ákvað ég að fara ekki lengra að sinni með þetta litla gæluverkefni mitt.
en þið ykkar sem hafið áhuga á að skoða getið til gagns & gamans velt fyrir ykkur meðan þið rennið yfir myndirnar hvort þið getið mögulega komist af með að kasta minna af drasli.
Í þessum pælingum mínum varðandi sorp & í framvindunni að fara að taka myndirnar & vinna í þeim kom reyndar fram sá flötur að ruslið væri jú atvinnuskapandi & orðið einhversskonar hlekkur í lífsviðurværi okkar í allri þessari einnotkun, sem útilokað væri að afmá eða minnka svo einhverju muni.
Þó finnst mér ákveðin sóun eiga sér stað sem draga mætti á einfaldan hátt úr, til dæmis á pappír í formi dagblaða & annars rusls sem borið er inn um lúgurnar hjá okkur til þess eins að enda (í mínu tilfelli) ólesið út í tunnu.
Góðar Stundir
Aukreitis fyrir ljósmyndaperverta:
Myndirnar eru teknar á Bronica SQ-A Medium format 6×6 vél með 80mm linsu á Kodak Porta 800 filmur
Posted in Ljósmyndun | 2 Comments »
May 23rd, 2008 by admin
Þetta er það fyndnasta sem ég hef lesið lengi.
Guð forði mér frá því að styggja einhverntíma Stormskerið.
Posted in Almennt | No Comments »
May 23rd, 2008 by admin
Á innan við mánuði hefur Löggjafavaldið tvisvar séð ríka ástæðu til að stöðva akstur minn um götur borgarinnar með það fyrir augum að bösta mig fyrir ölvun við akstur, sem er í sjálfu sér eilítið fyndið þar sem ég bragða aldrei áfengi & hef ekki gert í á annan áratug.
Einhverjir vilja meina að ég komi fólki fyrir sjónir sem ég sé á þriðja glasi, & grunar mig að afgreiðslustúlka á benzínstöð sem ég átti okurviðskipti við í gær hafi einmitt dregið þá ályktun & tilkynnt lögreglu í ljósi þess að ég fór með gamanmál í samskiptum mínum við hana, en allir vita að maður fer ekki með gamanmál við ókunnuga nema maður sé annað hvort drukkinn eða skrýtinn nema hvorutveggja sé.
En ástæða mín fyrir þessum skrifum er ekki sú að mér finnist eitthvað óeðlilegt að lögreglan skuli sinna starfi sínu svo dyggilega, heldur er ég meira ósáttur við framgöngu þessara riddara réttvísinnar, & þar sem ég borga þeim laun í formi skatta tel ég mig hafa fullan rétt á að hafa á því skoðun.
Ég er jafn löghlýðinn borgari & næsti maður & kann því afar illa að komið sé fram við mig eins og ótýndan glæpahund, ásamt því sem mér finnst sjálfsögð kurteisi að þessir piltar biðjist afsökunar á því að þeir hafi skyldu sinnar vegna þurft að tefja för mína, þegar gengið hefur verið úr skugga um að ég sé allsgáður, en mér hefur einmitt fundist menn hálf svekktir með að þeim skuli ekki hafa tekist að nappa enn einn stýrisstút sem er mjög undarlegt.
Sekur uns sakleysi hefur verið sannað virðist vera nýja slagorð Lögreglunar í Reykjavík!
Posted in Almennt | No Comments »
May 20th, 2008 by admin
Undanfarin misseri hef ég otað mínum tota á á flickr eins & flestir þeir sem myndavél þykjast geta valdið.
Efasemdir um gildi þess að vera yfir höfuð að eyða púðri í það hafa vaxið uppi í höfðinu á mér & hafa nú náð áður óþekktum hæðum með þeim afleiðingum að ég hef ákveðið að draga mig í svokallað hlé frá þessu rúnki.
Rétt eins & dpchallenge bólan kom & fór sýnist mér þessi flickr bóla vera að renna af mér hægt & bítandi alveg burtséð frá því hvort það meikar einhvern sens eður ei.
Rétt er að minna á í þessu samhengi að myndir eftir mig má sjá á www.zeranico.com & mun ég þar ota þeim ljósmyndaverkum sem mér finnst raunveruleg ástæða til að sýna gestum & gangandi.
Posted in Almennt | 1 Comment »
May 19th, 2008 by admin
Víst Doktorinn sér sér fært að hafa opinberar skoðanir á Júróvisjon & finnst það sér & sinni fjölskyldu ekki til neinnar minnkunar verandi gamall pönkhundur, hlýt ég að mega opinbera leynda þrá mína að Úkraína beri sigur úr býtum í þessari heimsmeistarakeppni í lágkúru.
Posted in Tónlist | No Comments »