Ég er að spá í að fara í kröfugöngu á morgun.
Ganga & gera kröfur, það er svoldið það sem maður í minni stöðu gerir.
Nútíminn er kröfuharður fjandi sem heimtar bara & heimtar, það er ekkert nóg að bara skrimta.
Meiri glamúr fleirri bensa, þessi helvítis kreppa er bara flensa.
Kaffitíminn milli þrjú & tuttugu mínútur yfir er bara dropi í hafið, við þurfum pásu klukkan fjögur & snittur klukkan sex.
Gúmmískó á línuna ársfjórðungslega, ekkert bévítans pex!
Sjáumst í göngunni, ég verð í gulum jakka með grænan hálsklút & í rauðum frakka með sexhyrnt þrívítt skilti smeð áletruninni, MEIRA PAUNK!
Hver er eiginlega þessi maður sem kann ekki að stafsetja (talar m.a um hljómsveitina Grílurnar) ,segir að Nick Cave & Kris Kristoferson séu falskir & Dylan og Megas ömurlegir söngvarar?
Er þetta maðurinn hennar Jónínu hans Jóns?
á ég að sprauta hann?
Ég hef líklega sagt það áður & get sagt það aftur að sumir ættu bara hreinlega að hafa vit á því að halda kjafti!
Er ekki frekar sérkennilegt að rafmagnsbílar skuli ekki vera almennari en raun ber vitni í ljósi þess hvað bensíndrekar eru gamaldags fyrirbrigði, svo ég tali nú ekki um olíulindir heimsins sem eru á hröðu undanhaldi?
Að eiga bíl eru lífsgæði sem ég er ekki tilbúinn að láta af hendi, en ef til boða stæði að festa kaup á rafmagnsbíl væri ég fyrstu manna að kaupa slíkan bíl, jafnvel þó hann væri hallærislegur og næði ekki nema 60km/h hámarkshraða.
Væri Ísland ekki líka príma kandídat til að vera brautryðjandi í notkun slíkra bifreiða á heimsvísu?
Með mikilli einföldun er hægt að flokka ljósmyndara í tvo flokka.
Í fyrst stað þá sem smíða ljósmyndir sem eru til þess fallnar að vekja athygli á kunnáttu ljósmyndarans, annað hvort á einhversskonar tækni nú eða hinu alræmda fótósjoppi.
s.s hughrifin eru eitthvað á þessa leið: Vá hvað þessi ljósmyndari er klár.
Í öðru lagi værum við að tala um ljósmyndara sem leitast við að segja einhverja sögu, koma einhverjum skilaboðum á framfæri, nú eða bara upphefja viðfangsefnið á einn eða annan hátt.
s.s viðfangsefnið verður aðalatriðið en ekki ljósmyndarinn!
Þið getið svo heimfært þetta á það sem ykkur listir.
Ég sé mig hreinlega tilneyddan að vekja athygli á göfugu starfi sem maður að nafni Jón Júlíus Sandal er að vinna á þúskjánum flotta & fína.
Jón þessi er sennilegast þekktastur fyrir að hafa verið söngspíra í þeirri fornfrægu hljómsveit Sogblettir, en er nú staddur í Noregi að vinna að einhverjum mjög merkilegum málum.
Hér má sjá það safn gamalla myndbanda sem Jón hefur hlaðið inn, mér & þér til skemmtunar & dægrastyttingar, en ég hafði sérstaklega gaman af að finna þetta myndband sem ég lími hér neðan við færsluna & hentar að mér finnst ákaflega vel til að gíra okkur upp fyrir helgina.
Ég ætla að fara í kvöld að sjá Jesus Christ Superstar í borgarleikhúsinu þrátt fyrir að hafa nánast ekkert heyrt um verkið nema neikvæðar umfjallanir.
Kannski þessvegna sá ég ástæðu til að fara, þá get ég verið á móti öllum hinum?
Ekki að mér sé ekki sama hvað einhverjum finnst um eitthvað, en eitt er víst að öll framsetning á dauða Ésú er hin besta skemmtun, eða deyr hann ekki alveg örugglega í stykkinu?