Að ég hef nákvæmlega 17 mínútur til að segja ykkur sannleikann.
Samkvæmt nákvæmum útreikningum mínum tekur mun minni tíma að fara með vandaðann óskeikulan rógburð um ástina sem þið þráið öll svo heitt en munið líklega aldrei höndla.
En þið getið huggað ykkur við það að fólk stundar mun meira kynlíf í kreppum en þegar vel árar.
Ekki að það leiði ykkur eitthvað nær svarinu við lífsgátunni, en það styttir ykkur stundir & þið gleymið að þið eruð svöng.
Skömmtunarmiðar verða afhentir í gula húsinu við miðstræti.
Skóreimar fást á gamla genginu hjá Steinar Waage.
Dinglaðu tvisvar sinnum á efstu bjölluna ef þú vilt fara upp, & einu sinni á þá fjórðu talið að neðan ef þú vilt standa í stað.
Ef enginn ansar skaltu baða út höndunum & fara með fimmtán maríubænir, eða alveg þangað til engisprettan á neðstu hæðinni stingur blárri blokkflautu út um þakgluggan, þá skaltu stinga litla fingri hægri handar inn um bréfalúguna.
Varlega en ákveðið.
Viltu kaffi eða te?
Blásýran er búin & Gvuð er ekki heima, þú verður að gera þér að góðu að bíða & vona að vagninn verði ekki hættur að ganga til þurrðar þegar sveitasælan dvín.
Það er sérstaklega óvinsælt að fara úr skónum inn í skáp.
Byssukúlur eru einungis afgreiddar á heila & hálfa tímanum nema á pálmasunnudögum.
Metravörur s.s kaðlar eru öllum aðgengilegar eftir sólsetur.
Allar umsóknir um geðheilbrigði skulu merktar með fingrafari vísifingurs hægri handar þeirra sem rétthentir eru.
Örvhentir vinsamlegast sýnið biðlund.
Nú virðist vera þannig komið fyrir miðborg Reykjavíkur að hún er að breytast í fátækrahverfi.
Húsum er illa & ekkert við haldið & oftar en ekki enda þau sem skjól útigangsmanna, þ.e.a.s þau sem borgin kaupir ekki á uppsprengdu verði til varðveislu, hvað sem það svo þýðir fyrir borgarmyndina.
Væri ekki bara ráð að flytja það fólk sem er ennþá með réttu ráði tímabundið burt úr þessu ghettói & jafna þetta við jörðu?
Það væri þá hægt að byggja fallega miðborg sem hefði einhverja heildarmynd & sjarma.
Reyndar halda mýmargir því fram að miðborgin sé ákaflega sjarmerandi þrátt fyrir alla þá annmarka sem á henni eru, en auðvitað er það þannig að hverjum finnst sinn fugl fegurstur svo þetta fólk er bara ekkert dómbært á hversu sjarmerandi þetta er.
Sem utanaðkomandi aðili sem þó hef dvalið löngum stundum í miðborginni, en ég hef meðal annars gengið laugaveginn oftar en fjórir 101 krúttkynslóðar treflahommar munu gera á lífsleiðinni, & veit því vel hversu subbulega ljótt þetta drasl þarna niðurfrá er.
Við gætum t.d reist dönsk múrsteinshús í staðinn fyrir bárujárnsdópgrenin, danir reyndust okkur nú vel hérna í gamla daga & finnst mér full ástæða til að endurbyggja miðbæinn í svoldið dönskum stíl, því allir vita jú að íslenskur stíll er ekki till …. þetta kallast kraðak.
þetta drasl var að stórum hluta byggt af litlum efnum af almúgafólki sem bara passar ekki við ríkidæmið & velmegunina sem við erum jú heimsfræg fyrir, því ættu allir að sjá að miðborg Reykjavíkur er ekkert nema smánarblettur á annars dyggðum prýddri ásjón okkar íslendinga.
Ég á mér nokkur tilverustig í þessu lífshlaupi ef svo mætti segja.
Ég hef fyrir því staðfestar heimildir að hingað komi fólk af öðrum hnöttum sem ég hef haft búsetur á í þeim tilgangi að vekja mig til vitundar um hina & þessa hluti sem full ástæða er til að ég átti mig betur á áður en ég get hafið för mína yfir hafið til fyrirheitna landsins.
Það er rífandi gangur í þessu svo það er líklega ekki langt að bíða.
Dont go to church on sunday
Dont get on my knees to pray
Dont memorize the books of the bible
I got my own special way
Bit I know jesus loves me
Maybe just a little bit more
I fall on my knees every sunday
At zerelda lees candy store
Well its got to be a chocolate jesus
Make me feel good inside
Got to be a chocolate jesus
Keep me satisfied
Af því ég er svo lélegt skáld en þó mikill lífskúnster þá vitna ég í dægurlög þegar ég vill segja ykkur sannleikann.
“people often talk about beeing scared of change but for me I´m more afraid of things stayin the same cause the game is never won by standing in any one place for too long”
Svo er full ástæða til að benda ykkur sem minna vitið á lausnina á lífsgátunni, en ég fann hana nú nýlega.
Þið verðið að horfa lengra en nef ykkar nær ef þið ætlið að ná þessu.
Ég má til með að benda þeim ljósmyndaáhugamönnum sem hingað kunna að villast á að skoða kvikmyndina Control. (& reyndar bara öllum áhugamönnum um góðar kvikmyndir)
Það kann að vera að ég hafi áður minnst á þessa mynd þar sem ég sá hana fyrir einhverju síðan, en vissi ekki þá að myndinni er leikstýrt af mjög mögnuðum ljósmyndara að nafni Anton Corbijn sem þarf eflaust ekki að kynna fyrir akademískum hluta þeirra ljósmyndara sem hingað kunna að villast s.s faðir mínum & hugsanlega einhverjum fleirrum lærðum mönnum.
Anton þessi hefur t.d gert plötukover fyrir að því er virðist flesta þá tónlistarmenn samtímans einhverju máli skipta s.s U2, Rolling Stones, Nick Cave & the Bad Seeds, Metallica ofl ofl, en svosem hef ég einungis krafsað í yfirborð verka hans, en það sem ég hef séð finnst mér ákaflega smart.
Stíllinn er sterkur og kemur bersýnilega fram í ofangreindri kvikmynd sem er sannkölluð veisla fyrir augu og eyru, en þess má til gamans geta að í kjölfarið á að horfa á hana hef ég loksins lært að meta hljómsveitina Joy Division sem er kannski heldur seint í rassinn gripið, en betra er seint en aldrei.
Mér finnst líka ansi magnað að sjá hversu vel aðalleikarinn nær að kópía hreyfingar Ian Curtis á sviði sem eru vægast sagt hrikalega töff.
Meistari Megas varð á vegi mínum í lágmenningarsetrinu kolaportinu á dögunum & gat ég ekki með nokkru móti setið á mér að biðja hann um mynd þar sem ég var vopnaður myndavél sem faðir minn hafði nýlega látið mér í té.
Meistarinn svaraði náttúrulega eins & honum einum er lagið, “Já svona Snapshot” & hélt því næst áfram að grúska í vínilnum.
Ég er orðinn alveg eins & þið, ég engist um af fryggð yfir hörmungarkláminu. Hvernig á ég að geta leyst lífsgátuna svona stórum gallaður & raun ber vitni?
Það er kannski af því að hjarta mitt slær fyrir Úkraínsku þjóðina sem ég er svona hrifinn af myndbandi þeirra Mínus pilta þó ég viti mætavel að svona lagað er ódýrt & jafnvel lágkúrulegt, eða skjátlast mér kannski bara?
Auðvitað eru götubörnin sem hafast við í holræsakerfum Kænugarðs falleg eins og ég & þú & full ástæða til að vekja athygli á bágborinni stöðu þeirra sem þessi hugaði kvikmyndagerðamaður hefur einmitt gert.
Það hefur löngum reynst vænlegt til árangurs á erfiðum tímum að leiða hugan að þeim sem hafa það jafnvel enn verra, & jú þrátt fyrir svartan mánudag & ský á lofti efnahagshiminhvolfsins eru það óttalegir smámunir í samanburði við það sem sumt fólk þessa heims þarf að sætta sig við.
Ísland Bezt í Heimi hættir að hljóma eins & gömul lumma þegar maður eldist, en samanburðurinn er samt kannski ekki nægur til að taka því sem óyggjandi sannindum enn sem komið er.
Ég má hreint til með að pósta þessu stórkostlega tónlistarmyndbandi sem ég sá hjá stórvésír Birki núna áðan, annars ættuði bara að hundskast til að lesa Birki, sjáið ekkert eftir því neitt.