February 29th, 2008 by admin
Ég komst að því í gær hve gífurlega háður ég er farsímanum mínum.
Verandi frekar utangátta týpa hef ég oftsinnis týnt honum en hingað til hef ég fundið hann eftir skipulega leit, en í þetta skipti var útlitið svart og allt útlit fyrir að honum hefði hreinlega verið stolið eða ég týnt honum einhverstaðar úti þar sem lítill sem enginn möguleiki væri á að hann kæmi í leitirnar.
En viti menn, heiðarlegur samborgari minn sem fann hann úti í snjónum hringdi til allrar lukku í farsíma konunnar & í kjölfarið kom honum aftur í mínar hendur.
Við hefðum getað séð stærri skandal en þegar Paris Hilton týndi sínum farsíma hérna um árið, en nú þegar hættuástandinu hefur verið aflýst er ég að hugsa um að gera ráðstafanir & taka a.m.k öryggisafrit af símaskránni.
Lengi lifi heiðarlegir samborgarar!
Posted in Almennt | No Comments »
February 28th, 2008 by admin
“Never pose your subjects, let them move about naturally.
All great photographs today are snapshots.”
- Martin Munkácsi
Posted in Almennt | 1 Comment »
February 28th, 2008 by admin
Posted in Almennt | No Comments »
February 28th, 2008 by admin

Holga 120 - Kodak Tri-X 400
Ég fann þetta forláta portrait í filmubúnkanum mínum frá i sumar.
Einhvernveginn fór það framhjá mér þá en ég sé núna að þetta er eitt af mínum flottustu portraitum, enda hefur það þokað sér rakleitt í fyrsta sæti lista yfir þær myndir sem þykja hvað áhugaverðastar af flickr myndunum mínum.
Það er vel við hæfi að birta það hérna núna þar sem fyrirsætan, Fiona Cribben, a.k.a Rhondda er nú á laugardaginn að ýta úr vör sinni fyrstu myndlistarsýningu.
Opnunin er á næstkomandi laugardagskvöld á ekki verri stað en Gallerí Gel sem staðsett er á Hverfisgötu 57 37, einhvernveginn held ég að það sé agalega fínn staður að sýna myndlist á.
Myndlist Fionu er líka létt geggjuð!
Ég ætla alltént að gera mér ferð ofan í bæ & vera við þessa opnun.
Posted in Almennt | 2 Comments »
February 27th, 2008 by admin
Nú er farið að leggja drög að annari ferð minni til heimkynna fjölskyldu minnar í Úkraínu.
Fyrsta ferð okkar hjóna sem farin var í fyrra einkenndist mikið af undirbúning & framkvæmd prójektsins My big fat Ukrainian Wedding, & því gafst ekki eins mikill tími til að dokjúmenta stemminguna þarna eins & ég hefði viljað þó úr því hafi komið talsvert af skemmtilegum myndum sem m.a rötuðu á mína fyrstu sýningu sem er nýafstaðin á Mokka.
Nú, þar sem ég er staðnum meira kunnugur & hef haft góðan tíma til að íhuga hvað skemmtilegast væri að skrásetja af því sem þarna er að sjá er mikill hugur í mér & er planið að reyna að gera eina stóra seríu í það minnsta sem gæti ef vel heppnast verið mjög áhugaverð.
Ekki skemmir fyrir að inn í ferðina er fléttuð heimsókn til Litla Bretlands, nánar tiltekið Litla Cambridge, þar sem ég á ekki von á öðru en konunglegum móttökum.
Nú er s.s leiðinlegt en í Júní verður gaman!
Posted in Almennt | 1 Comment »
February 26th, 2008 by admin
Siggi talaði um daginn fjálglega um ágæti þess að eiga ekkert sjónvarpstæki, & skoraði m.a á mig að mæla með vísindalegum hætti hve langan tíma á viku eða mánuði það væri opið fyrir viðtækið mitt, & var engu líkara en honum þætti ég opna glugga til vítis þegar ég kveiki á helvítis tækinu & opna þar með fyrir frjálsan aðgang illra anda & vætta inn á fallegt heimili mitt.
Vissulega má færa rök fyrir því að sjónvarpsgláp sé óhollt & heiladrepandi í of miklu magni, en annar vágestur sem flest fólk hefur tekið opnum örmum & boðið velkomið inn á heimili sín er mér hugleikinn í dag.
Sjónvarpið á ekki roð í lýðnetshangsið.
Á internetinu geta húsmæður orðið súpermódel, rolur stjórnmálaskörungar, virðulegir húsfeður sjúkir pervertar osfrv osfrv, & er ég þá ekki einu sinni að telja til online tölvuleikina þar sem hversdagsleikinn breytist á augabragði í ævintýr með öllu tilheyrandi.
Möguleikarnir í raunveruleikaflóttanum eru óþrjótandi & verður sjónvarpið einhvernveginn voðalega saklaus dægrarstytting í samanburðinum.
Dæmi eru um að internetið hafi hjálparlaust klofið heilsteypt hjónabönd í herðar niður á skömmum tíma ásamt því sem þetta hangs hefur nánast gert úti um að samgangur sé á milli heimila fólks.
Í ljósi þessarar glænýju upplýsinga vil ég hvetja alla hippa sem sitja í kommúnum með apple tölvurnar sínar í fanginu syngjandi halelúja söngva á netinu um gildi þess að hafa ekkert sjónvarp að taka skrefið nú til fulls & hætta þessu lýðnetshangsi, heimsækja mömmu sína, fara í heimsókn í næsta hús & bjóða upp á hass nú eða bara rölta niður laugaveginn & prófa að klinka samborgara sína fyrir rækjusamloku.
Ég er farinn að horfa á sjónvarpið!
Posted in Almennt | No Comments »
February 25th, 2008 by admin
Muniði eftir Betu Rokk?
Hún var aðal stjarnan hérna í blogginu í gamla daga, og viti menn hún er ennþá í hörku stuði!
Ég bíð óþreyjufullur eftir að einhver snjall kvikmyndagerðarmaður geri mynd eftir bókinni sem hún skrifaði hérna um árið, ég hef nefninlega ekki ennþá komist yfir að lesa hana sökum anna, ætli Balti geti ekki massað þetta?
Posted in Almennt | No Comments »
February 25th, 2008 by admin
Ég er í grunninn svona náungi sem keppist við að hafa skoðanir á öllum andskotanum, þ.á.m júróvision þáttöku okkar íslendinga.
En nú er svo komið fyrir mér að ég hef ekki eina einustu skoðun á því & hef ekki einu sinni heyrt þau lög sem þreyttu hatramma keppni um þennan vafasama heiður að keppa fyrir hönd íslands í þessum sérevrópska leðjuslag, já leðjuslag segi ég fjandakornið.
Afsakið ég ætla að bregða mér afsíðis og kasta upp.
Posted in Almennt | 5 Comments »
February 24th, 2008 by admin

Meira á Flickr
Posted in Almennt | 2 Comments »
February 23rd, 2008 by admin
Ég get ekki setið á mér með að lýsa yfir megnustu óánægju með mynd ársins á sýningu blaðaljósmyndarafélagsins þetta árið.
Maður gæti haldið að þetta væri Jabba the Hutt á leiðinni í partíið þarna í Eyes wide shut.
Myndin finnst mér bara einfaldlega ekki vera í þeim gæðaflokki sem verðlaunamyndir undanfarinna ára hafa verið.
Burtséð frá því ætla ég að skunda glaðbeittur í kópavoginn að skoða sýninguna á morgun.
Posted in Ljósmyndun | 7 Comments »