Vitundin sefur

January 30th, 2008 by admin

Stundum heyri ég eða les orð sem mér finnst gaman að velta fyrir mér.
Nýjasta dæmið um slíkt orð er Vitundarvakning!

Sumir vilja meina að fólk sé meira og minna sofandi gagnvart umhverfi sínu og þurfi því að verða fyrir fyrrnefndri vakningu á meðan aðrir gætu fært rök fyrir því að nauðsynlegt væri að svæfa sig fyrir allri vitleysunni sem á sér stað á þessari aumkunnarverðu pláhnetu okkar.

Svo er spurning hvort maður þarf á slíkri vakningu að halda, ég efa ekki að það er einhver reiðinar býsn af fólki sem er tilbúið að segja svo vera og færa fyrir því löng og leiðinleg rök.

Eins leiðinlegt og þetta líf er á köflum held ég að hverjum manni sé hollt að vera hæfilega meðvitundarlaus en verða kannski fyrir 2-3 vægum vitundarvakningum á lífsleiðinni.

Ég get sagt ykkur frá minni vitundarvakningu einhverntíma kannski, svo gæti ég lesið ykkur pistilinn um ástina en hún hefur verið mér samferða bróðurpart lífs míns svo eitthvað sé nefnt en þangað til geturu spurt sjálfan þig hvort þú þurfir mögulega á vitundarvakningu að halda.

Góðar Stundir

Posted in Almennt | No Comments »

Hvíta Liljan

January 29th, 2008 by admin

Minnismerki um kjarnorkukvendið og fasistabanann Lydia Litvya a.k.a White Lily of Stalingrad.
Stjörnurnar tákna ljótu kallana sem hún kálaði.
Myndin er að sjálfsögðu tekin á sovéska myndavél.

Posted in Almennt | 1 Comment »

Hólí mólí

January 29th, 2008 by admin

Ég hef einhvern veginn haft það fyrir óskrifaða reglu að taka hóli tengdu ljósmyndun (reyndar á öðrum sviðum líka) með hæfilegum fyrirvara, nema kannski ef vera skildi þegar fólk er tilbúið að leggja út fé fyrir ljósmyndun minni, en það vita allir að peningar eru það allra heilagasta í þessum heimi og þá lætur enginn af hendi nema honum sé fúlasta alvara.

Nú hefur mér einmitt borist eitt slíkt hól og er það vel, en nánar um það síðar.

Posted in Almennt | No Comments »

Væll

January 29th, 2008 by admin

Mér finnst þessi borgarstjóri óttaleg veimiltítla.
Er hann í einhverju stikki fyrir gríni af því hann hefur átt í sálarkreppu og þurft að melda sig veikan frá vinnu af þeim sökum?
Ég hef heyrt að menn meldi sig veika mánuðum saman út af stressi einu saman í Danmörku svo þetta ætti nú ekkert að vera neitt feimnnismál hjá aumingja manninum.
Svo dansar skríllinn einhvern satanískan meðvirknisdans út af þessu væli.
Ég meina hver kaus þennan mann sem borgarstjóra?

Þetta er hallæris sýstem á þessu dóti öllu saman.
þetta er álíka úrelt og betamax og spur cola.

Hver vill koma með út í viðey að stofna fríríki?
Yoko Ono gæti verið forystusauður, … Lennon myndi fílaða!

Posted in Almennt | 1 Comment »

Áríðandi tilkynning

January 28th, 2008 by admin

Viðskiptavinir takið eftir.

Vorum að taka upp glænýja sendingu af ógleði og verkkvíða.
Getum einnig útvegað líkþorn.

Ósóttar pantanir verða seldar um leið og þær berast

Samblandið 

Posted in Almennt | No Comments »

Lokað

January 27th, 2008 by admin

Ég er að spá í að vera með lokað hérna á sunnudögum, maður verður einhverntíma að fá frí.

Posted in Almennt | 2 Comments »

Paunklagakeppni í heppni

January 26th, 2008 by admin

þetta er svoldið skemmtilegt þó textarnir beri þess augljósan keim að vera barðir saman af einhverjum manni sem setti sig í sérstakar pönkstellingar fyrir verknaðinn.
Viðlagið í Ísland er Fokk er þó skemmtilegt

Ísland er fokk
með fávitaflokk
og forljóta blokk
það sem við þurfum er meira rokk!

Verandi gjörsamlega misheppnaður lagahöfundur með óseðjandi áhuga á pönki hlýt ég að verða að þreyta þessa keppni eða hvað?

Mun Dr Gunni ekki taka þetta bara? …. mér fannst SH Draumur samt aldrei neitt spes, Doktorinn er samt alveg svalur.

Posted in Almennt | No Comments »

Operation Fame

January 25th, 2008 by admin

Ég er að spá í að fara að feta mig upp metorðastigan í blogheimum.

Mikilvægur þáttur í þessu framapoti er að skilja eftir mig saur í athugasemdakerfum þekktra bloggara ásamt því sem ég mun gera mér upp mikinn og ákafan áhuga á málefnum líðandi stundar s.s stjórnmálum, dánarfregnum og jarðarförum og hverju því sem kann að lenda á milli tannana á fólki.

Ef vel tekst til er hugsanlegt að ég verði kallaður til sem sérstakur álitsgjafi um einhver ákaflega merkileg mál í einhverjum af þeim sneplum sem sérhæfa sig í slíkum málum, ásamt því sem ég auðvitað mun uppskera óskipta aðdáun þeirra sem eru fávitar eða illa skrifandi nema hvorutveggja sé.

Eftir því sem ég hugsa málið betur verður mér æ ljósara að til þess að hámarka árangurinn í þessari ráðagerð minni sé ég mig tilneyddann til að minnka við mig vinnu um svona sirka helming eða þar um bil þannig að þetta verður þungur róður.

Hvort haldiði að muni fara mér betur að verða kommi eða hommi?

Posted in Almennt | 7 Comments »

Dans og Söngur

January 25th, 2008 by admin

Ég legg ekki í vana minn að horfa á söngvamyndir og hefur mér eiginlega hingað til þótt það afar hallærisleg framsetning á kvikmyndum, en í gær á sérstaktri forsýningu Sweeney Todd: The Demon Barber of Fleet Street skipti ég umsvifalaust um skoðun.

Ég veit ekki hvorn ég elska meira Johnny Depp eða Tim Burton, en þeir koma einmitt einnig báðir við sögu í einni af minni eftirlætiskvikmyndum Sleepy Hollow sem ég meig í mig af hrifiningu yfir fyrir einhverjum misserum.

Þetta er hreint undursamlegt segi ég.

Posted in Almennt | No Comments »

Anddyrið

January 24th, 2008 by admin

Þeim sem vaða hingað á skítugum skónum í gegnum anddyri zeranico.com ættu að vera ljóst að þar er eitthvað á seyði, en skv niðurstöðum mælinga minna eru þeir þónokkrir.

Pælingin er s.s að setja þar upp einhverskonar portfolio síðu líkt og tíðkast hjá snillingum sem leggja stund á ljósmyndun, en sökum anna og vankunnáttu mun það eflaust taka tímana tvenna.

Á næstu misserum mun þetta vonandi taka á sig einhverja aðlaðandi mynd og verða ægilega smart en þangað til munu þeir sem vilja endilega fara þar í gegn þurfa að klofa yfir klaufalegan viðbjóðinn.

Þið ættuð kannski að bókamerkja blog.zeranico.com nú eða skrá bloggið í áskrift, en ég hef einmitt nýtekið í notkun Google Reader langt á eftir öllum öðrum að sjálfsögðu og ég segi það satt að það er voðalega smart.

Lengi lifi Google

Posted in Almennt | 1 Comment »

« Previous Entries