Í dag

November 30th, 2007 by admin

eru 365 dagar síðan ég gekk að eiga konuna mína með fremur látlausum hætti í embættismannahúsi ofan í bæ.
Hamingjuóskir eru in order og blómum og krönsum veitt viðtöku á heimili mínu!

Posted in Almennt | 7 Comments »

Myndaalbúm

November 28th, 2007 by admin

Nú þegar stafrænar myndavélar hafa fest sig rækilega í sessi hafa myndalbúm nánast horfið af yfirborði jarðar.
Að koma í kaffi til múttu og fletta jólamyndunum frá í fyrra, eða kódak augnablikum sumarleyfisins er bara ekki í boði lengur.

Nú hópast fólk saman við tölvuskjái þar sem þartilgert slideshow er látið rúlla, og í besta falli eru skástu skotin prentuð til innrömmunar eða birtar á einhverjum heimasíðum sem fólk getur skoðað í þægindum síns eigin heimilis.

Þó kann að vera að einhverjir fari með diska, minniskubba eða hvað sem sem hægt er að nota til að ferja þessar stafrænu myndir í þartilgert kompaní til prentunar eða prenti sjálft heima við, en samt held ég að tilhneigingin sé að velja úr bestu myndirnar til að setja í albúmin, öfugt við í gamla daga þar sem öll filman var prentuð og sett í albúmið án þess að neitt væri verið að pæla neitt mikið í því.

Sem ákafamaður um ljósmyndun með fullkomnunaráráttu á háu stigi á ég ekki eitt einasta myndaalbúm með mistækum en jafnframt skemmtilegum kódak mómentum úr lífi mínu og minna nánustu, sem afkomendur mínir geta flett í gegnum að mér dauðum, og grunar mig að því sé þannig háttað á mjög mörgum nútímaheimilum.

En ekki mikið lengur því ég áforma að ráða á þessu bót og skrásetja líf mitt með skipulegri hætti í framtíðinni, mér og minni fjölskyldu til ómældrar gleði.

Stundum finnst mér þessi tækni öll saman bara ekkert svo skemmtileg!

Posted in Almennt | 5 Comments »

Fornar Heimildir

November 28th, 2007 by admin

Um daginn komst ég á snoðir um það að hugsanlega er til VHS myndbandsupptaka af hljómleikum sem haldnir voru í alþýðuhúsinu á Ísafirði líklega árið 1983 eða 1984.
Þar stigu á stokk stórstjörnur bæjarins á þeim tíma og var svo sannarlega úr ýmsu að moða, og ber þar kannski helst að nefna hljómsveitina Allsherjarfrík sem var alísfirsk Paunk rokk hljómsveit og var vafalaust fremst í sínum flokki þarna vestur í rassgati á þessum árum.
Aðrar sveitir sem fram komu voru Sokkabandið sem ég held alveg örugglega að hafi verið skipuð eingöngu kvenkynsmeðlimum, a.m.k var móðir eins vinar míns þar innanborðs og lék á bassa af mikilli fimi, dúettinn AndstæðA (ritað með hringjum utan um A-in) sem lék pólitískt paunk á trommur og raddbönd með mjög skemmtilegum hætti og fleirri sem mér rekur ei minni til, en þessar tvær hljómsveitir voru mér nánast í guðatölu ásamt stóru hljómsveitum höfuðstaðsins sem vart þarf að nefna og allir þekkja.

Helsta ástæðan fyrir að mig langar að koma höndum yfir þetta myndband er reyndar sú að þar stígur undirritaður á stokk með dúettnum Tilviljun ásamt prestsyninum rauðbirkna.

Undanfarin misseri hef ég með hjálp skilaboðaskjóðunnar fínu og fallegu tekið upp samskipti við gamlan vin þarna á hjara veraldar og hefur þar mikið rifjast upp af uppátækjum misgáfulegum og er óhætt að segja að það sé hin besta skemmtun.

en ég held ég óski þess að jólanasiztasveinninn gefi mér afrit af þessari snældu í skóinn

Posted in Tónlist | No Comments »

Þögn

November 27th, 2007 by admin

Ég hef ekkert að segja merkilegt, en ég er í fávisku minni að detta inn á svoldið af músík sem mér er að skapi.
þetta er eitt af því.

Posted in Almennt | No Comments »

My way or the highway

November 26th, 2007 by admin

Svo er þetta eitthvað sem hentar vel með Súrmjólkinni

Posted in Almennt | No Comments »

Lókar

November 24th, 2007 by admin

Það eru til nokkrar skotheldar leiðir til að öðlast vinsældir í hinum stórkostlega bloggheimi sem svífur yfir vötnum og lækjum, og er þetta ein af þeim.
Stundum þegar mér hefur þótt lífið ömurlegt hefði mér þótt stórkostlegt að verða bloggg hetja sem hundruðir ef ekki þúsundir manna litu aðdáunaraugum upp til og færu í mínus þá daga sem ekkert væri fært til bókar.
Líklegast get ég þakkað Ésú mínum fyrir það að hafa ekki þá stórkostlegu hæfileika sem þarf til að hrinda svona ráðahag í framkvæmd.

Ekki ber að skilja sem svo að ég hafi lesið þessa Mengellu sem nú er látin spjaldana á milli nema síður sé, og man ég reyndar ekki eftir bloggi sem ég hef lesið af einhverjum áhuga utan veflóka vina minna og vandamanna, nema ef vera skildi hin hárbeitta ádeila og níðingsháttur þeirra Rantsmanna um árið sem keyrði um þverbak og endaði með að þeim var fleygt á bálköst hinna réttsýnu í opin dauða, mér til réttlátrar reiði og gremju.

Reyndar finnst mér vinsældahórdómur hversskonar, hjákátlegur og ömurlegur, og hallast ég helst að því að almenningsálitið hafi rangt fyrir sér og því það sem líklegt sé til vinsælda hljóti að vera rusl!

Góð lífsspeki ekki satt?

Posted in Almennt | No Comments »

Myndmál

November 24th, 2007 by admin

On the Night Train
Svona fyrir þá sem vita það ekki þá er flickr minn aðalvettvangur fyrir ljósmyndavitleysuna sem ég er illa haldinn af þangað til nýr myndavefur verður opnaður með hækkandi sól …..

Smella má á myndina hér að ofan til að komast í herlegheitin.

ástæðan fyrir að ég er að tíunda þetta er einfaldlega sú að það kom að máli við mig ágætur maður sem þótti ansi fátæklega myndskreytt þetta ömurlega vefsetur, og hefur hann líkast til eins og velflestir aðrir kært sig kollóttan hvað ég hef um þetta eða hitt að segja …..

Posted in Almennt | No Comments »

Nýjungar?

November 22nd, 2007 by admin

Ætli þetta sé það heitasta í vefhönnun i dag að vera með svona blörraðar myndir?

Leiðinda mistök á annars ágætum vef sem nýbúið að lappa upp á útlitið á …
Reyndar er mögulegt að maður þurfi að fá hjá þeim sérstök þrívíddargleraugu til að poppa þetta upp  þar sem slíkt er víst að ryðja sér voða mikið til rúms í kvikmyndabransanum!

Posted in Almennt | 1 Comment »

Bakþankar

November 22nd, 2007 by admin

Það var eilítið sniðugt að lesa Bakþanka Dr. Gunna aftan á Baugstíðindunum í dag þar sem niðurlag pistils hans er nánast nákvæmlega það sama og í þessum pistli hér sem ég skrifaði um daginn, fyrir utan auðvitað að Doktorinn er mun betur skrifandi en undirritaður enda með doktorsgráðu í allavegana rokki og örugglega einhverju fleirru …

Þetta getur bara þýtt eitt af tvennu, að ég og Doktorinn séum svona líkt hugsandi, eða hreinlega að hann komi hingað í skjóli nætur að sækja sér innblástur og hugmyndir.

Posted in Almennt | No Comments »

Tónleikar

November 20th, 2007 by admin

Mig langar að tilkynna ykkur um tónleika Rhondda & the Runestones , þá síðustu í bili sökum bráðrar óléttu söngkonu sveitarinnar, sem fara fram nú annað kvöld á ofur rokkbúllunni Organ.
Leikin verða lög af útgefinni EP skífu sveitarinnar ásamt óútgefnum hávaða.

Ekki nóg með að þessi byltingarkennda Kabarettpaunksveit stígi á stokk heldur munu Nintendo Metal piltarnir í Retron einnig fremja mjög svo framúrstefnuleg tónverk sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Aðgangur er fríkeypis og væri gaman ef sem flestir gætu heiðað okkur með guðdómlegri nærveru!

Mögulegt er að fyrstu 30 gestirnir fái frían banana, en það mál er á viðkvæmu stigi sökum samningaviðræðna við Bónusfeðga um spons!

Ást og Friður!

Posted in Tónlist | 2 Comments »

« Previous Entries