Fuck

October 30th, 2007 by admin

Hversu brilliant nú á tímum torrentageðveiki er fyrir hljómsveit að heita Fuck ,og gera plötur sem heita Fuck Motel og Pretty slow?

Allavega gafst ég fljótt upp að reyna að verða mér úti um einhver tóndæmi á lýðnetinu fyrir utan það sem finna má á heimasíðu þeirra, og heiti ég hér með þeim sem getur torrentað þetta vænni sneið af úkraínskri eplaköku.

Reikna má með að illa heimsveldið sem rekur hljómplötuverslanir í Reykjavík eigi þetta ekki heldur svo maður þarf virkilega að leggja sig í líma við að nálgast efni þessara snillinga ……

Vel þess virði myndi ég halda þó!

Posted in Tónlist | 1 Comment »

Það er

October 30th, 2007 by admin

Kominn snjór í henni Reykjavík…..

Þessi mynd er samt tekinn einhverstaðar upp á heiði en fannst við hæfi að birta hana núna svona upp á fílinginn bara.

Posted in Ljósmyndun | No Comments »

er þetta einhvernveginn svona?

October 28th, 2007 by admin

Hann Sigurjón vinur minn er mikill hugsuður og veltir þar af leiðandi undarlegustu hlutum fyrir sér eins og t.d þessu

Þar sem ég er maður mikilla útúrsnúninga og einkar svag fyrir að samlíkja hlutum ákvað ég að tilta dæminu aðeins í eitthvað sem frekari fordæmi eru fyrir og væri það um það bil svona eftir þessar æfingar mínar.

  • Maður A sækir sér eiturlyf með ólöglegum hætti með Iceland express til útlanda. Hann gerir það afar sjaldan, kannski eitt gramm á 3-4 grömm á ári.
  • Maður B sækir sér aldrei eiturlyf til útlanda. Hann fær hinsvegar reglulega helling í nefið frá vinum sínum sem eru duglegir að smygla (fyrir sjálfa sig) með Iceland express. Maður B mokar því sirka 12-15 grömmum í nefið á sér á ári.

Maður A er augljóslega smyglari og sennilega í tengslum við rússnesku mafíuna og þarf því að deyja.

Maður B mun líklega deyja líka, en þá bara af því hann er aumur fíkill og þeir eru jafnan duglegir að mata sig með byssukúlum og útblástri bifreiða svo dæmi séu tekin þegar þeir komast í öngstræti.
þannig að hvor um sig tekur út sína refsingu og þarf að mæta almættinu flekkaður af synd.

Ég fæ sumsagt ekki betur séð en að báðir mennirnir þegar öllu er á botninn hvolft hljóti sömu refsingu en svosem fyrir ásjón dómstóla kjötheima væri smyglarinn vitanlega litin alvarlegri augum þar sem augljóst er að brotavilji hans er á mun þróaðra stigi en viljalausa neytandans, sem er jú bara að reyna að moka einhverju í svartnættið innan í sér án þess að vita að það er ekkert nema Ésú sem getur fyllt það, engin kemísk efni eða torrentaðar B kvikmyndir frá Ömmu ríku koma þar að nokkru gagni!

Ég þarf vart að taka fram að þessi samlíking er í boði Iceland Express!

Posted in Almennt | No Comments »

Vintage

October 27th, 2007 by admin

Veit einhver góða íslenska þýðingu á Vintage?

Allavega þá þykir mér vintage afar fínt, hvort sem um er að ræða myndavélar, hljóðfæri hljómflutningsbúnað og margt margt fleira tæknilegs eðlis sem bara aint made like they use to.
Líklega er ég þó bara að verða sérvitur vitleysingur með aldrinum.

Myndin hér að ofan er reyndar stafrænd með nútímalegu skrani, en mér fannst þetta tannlausa glott þessa úrvinda píanós bara hreint út sagt ómótstæðilegt og engu líkara en það sé með háðung að spotta allt einnota draslið sem ekki getur einu sinni brosað þegar það er orðið ónýtt, eins og þetta gamla píanó þó gerir með þeirri reisn sem öllum ætti að vera ljós, þó það nú húki úti í kulda og vosbúð og líklegt að það hafi sungið sinn síðasta chopin um dagana.

Amen

Posted in Ljósmyndun, Tónlist | No Comments »

Panorama

October 26th, 2007 by admin

Ég ákvað að reyna fyrir mér að taka Panorama um daginn ….. í stað þess að fara leiðina sem flestir fara ákvað ég að taka þetta alla leið og stitcha myndina saman in camera í stað þess að gera það í photoshop eða einhverjum álíka hugbúnað sem er að sjálfsögðu mun meira krefjandi.

útkoman er í besta falli arty en töff finnst mér hún og er ég að spá að gera þetta aftur og fara þá í þrjá ef ekki fjóra ramma.

Mikið afskaplega er þetta nördaleg færsla

Posted in Ljósmyndun | No Comments »

Iceland Airwaves

October 25th, 2007 by admin

Árshátíð tónlistarmanna Iceland Airwaves er afstaðin með öllum þeim kræsingum sem því fylgdi.

Þó ég hafi séð lítið af dagskrárliðum sá ég þó hljómsveit sem er eftir þessa helgi í miklum metum hér á skriffara mínum í betri hluta breiðholtsins, nefninlega þríeykið undursamlega Prinzhorn Dance School.(gúglaðu eins og vindurinn ef þú þekkir það ekki)

Talsverð eftirsjá er þó að hafa ekki séð Fjallabræður og Smoosh en annað mátti svosem fara sinn veg og framhjá mér í löngum boga.

Ljósmyndun fór fyrir ofan garð og neðan um þessa hátíð og held ég bara að myndin hér við þennan lók sé sú skásta sem ég mun láta frá mér fara tengt þessum viðburði sem Iceland Airwaves er.

Auðvitað vil ég þakka öllum sem komu og hlýddu á Rhondda & the Runestones þreyta sitt fyrsta og vonandi ekki sitt síðasta flug á þessari hátíð en ljóst er að sveit sú hefur síður en svo sungið sitt síðasta ……

Posted in Ljósmyndun, Tónlist | No Comments »

One liner

October 23rd, 2007 by admin

Lögreglan stöðvar för mína , grunar mig um ölvun við akstur og biður mig kurteisislega að setjast inn í bifreið sína

Lögreglumaður 1:
“Átt þú einhver mál í kerfinu hjá okkur vinur”

Ég:
“Já en þau eru sennilega síðan þú varst með bleyju”

Hvar eru kvikmyndatökuvélarnar þegar svona á sér stað?

Posted in Almennt | 3 Comments »

Inngangur

October 22nd, 2007 by admin

Fyrir u.þ.b fjórum árum þegar ég var að hefja feril minn sem bloggari skrifaði ég eins og vindurinn um allan fjandann og hreinlega bara ekki neitt.
Kapp er best með forsjá segir einhverstaðar og er ég ekki frá því að ég beri kinnroða yfir ýmsu sem ég hef látið flakka bæði hér og annarstaðar á blessaða lýðnetinu, en svosem kemur það ekki til með að skipta neinu helvítis máli þegar ég fer á fund við skapara minn hvort ég móðgaði einhvern með bloggskrifum eður ei.
Svo ég sé mér ekki annað fært en að halda á þar sem frá var horfið!

Ég hreinlega veit ekki hvaða pól ég kem til með að taka í hæðina í þessari atrennu minni við að halda úti bloggi, hvort þroskasagan kemur með sögum af keisaranum forðum daga eða hvort ég tíunda hvað mér finnst Pútín vera stórkostlegur þjóðhöfðingi verður að koma í ljós.

Eitt veit ég þó að ég hef gaman af að skrifa hugrenningar mínar ásamt því sem ég tel þetta ágætis tól til að koma því á framfæri hvað ég er að sýsla í listsköpun og öðru sem einhverjir fáir útvaldir hafa einhvern áhuga á.

Hinir geta verið á moggablogginu að ræða viðkvæmar tilfinningar eða kommenta á fréttir líðandi stundar.

Ég þakka þeim sem hlýddu.

Posted in Almennt | No Comments »

Airwaves band ársins

October 22nd, 2007 by admin

Posted in Tónlist | No Comments »

Skúbb

October 19th, 2007 by admin

Einhverjir fjölmiðlar hafa tekið við sér og birt tilkynningar um sýninguna mína sem nú stendur sem hæst á Mokka sem er hið besta mál, og vona ég að það verði til þess að sem flestir fari og skoða þetta.

Fréttablaðið sagði að nánari upplýsingar væri að finna um þetta á www.zeranico.com sem er óttalega fátæklegt sem stendur og er í raun bara linkur inn á þetta blogg hérna, þannig að ef einhver er hér að villast í leit að gúmmelaði og mögulega myndum og slíku þá vil ég benda þeim að fara á flickr síðuna mína en þar er að finna eitthvað af myndum sem ég hef föndrað við í gegnum tíðina.

Einnig þætti mér voða vænt um ef fólk léti í ljós skoðanir sínar á þessari sýningu hvort sem þær eru mér í hag eður ei.
Skiptir þá einu hvort fólk notar kommentakerfið hér á vefnum eða sendir mér bara línu á zeranico(hja)gmail.com

Takk fyrir mig!

Posted in Almennt | 2 Comments »

« Previous Entries