Sumar í borginni

April 25th, 2007 by admin

Summer in the city means cleavage cleavage cleavage
And I start to miss you, baby, sometimes
I’ve been staying up and drinking in a late night establishment
Telling strangers personal thingsSummer in the city, I’m so lonely lonely lonely
So I went to a protest just to rub up against strangers
And I did feel like coming but I also felt like crying
It doesn’t seem so worth it right now

And the castrated ones stand in the corner smoking
They want to feel the bulges in their pants start to rise
At the site of a beautiful woman they feel nothing but
Anger, her skin makes them sick in the night nauseaous, nauseaous, nauseaous
-

Regina Spektor

Posted in Almennt | 1 Comment »

hugsanlega

April 24th, 2007 by admin

Mér finnst alveg forkastanlegt að það skuli þykja ástæða að kalla til sérfæðinga til að ræða hvað mögulega gæti gerst ef opnað yrði fyrir þann möguleika að konur sem ekki geta átt börn með eðlilegum hætti ráði til þess svokallaða leigumæður.

Ætli kastljósið taki næst á því hvað myndi sennilega, kannski, örugglega gerast ef skammbyssur yrðu seldar í fiskbúðum á höfuðborgarsvæðinu gegn framvísum örorkuskírteinis?

Posted in Almennt | 1 Comment »

Sería

April 22nd, 2007 by admin

Í þessum töluðu orðum er ég í óða önn að berja saman röð Portrait mynda af fjölda ólíkra einstaklinga sem allir verða steyptir í sama form, konur og menn, svartir og hvítir, í ýmsum stéttum þjóðfélagsins.
Allir menn eru jafnir, líka í myndunum mínum.

Það er full ástæða fyrir ykkur að vera jafn spennt og ég sjálfur fyrir niðurstöðunum sem má vænta áður en mjög langt um líður ef módelin þá láta eitthvað sjá sig!

Posted in Ljósmyndun | 1 Comment »

Uppdeit

April 18th, 2007 by admin

Könnunin hérna fyrir neðan sem var frekar illa tekið í, sem mér þykir miður, er liður í smá gæluverkefni sem ég er aðeins að melta með mér og má vera að verði hrint í framkvæmt en kannski ekki í þeirri mynd sem upphaflega var áætlað en líklegast er bezt að láta sem minnst uppi hvað það varðar þar sem reynslan sýnir að framkvæmdin leikur oftast ekki eins í höndunum á mér og hugmyndaframleiðslan, en sjáum til.

Annars ber það helst til tíðinda að hljómsveitin sem ég er gildur limur í hyggst leika á tónleikum í bítla og glæpabænum keflavík nú í kvöld, nánar tiltekið á öldurhúsinu Paddys (kann að vera vitlaust stafað) ásamt kátum piltum í hljómsveitinni Jan Mayen.

Þar verður frumflutt fyrsta og eina coverlag sveitarinnar Rhondda and the Runestones sem mér finnst líklegt að komi ansi skemmtilega á óvart og finnst mér margt benda til að stjórnmálaflokkar keppist um að moka í okkur fé í þeim tilgangi að fá að nota í baráttu sinni um sæti á þingi.

Yfir og út

Posted in Almennt | 1 Comment »

Frægð og frami

April 12th, 2007 by admin

Hverjir eru 3 frægustu núlifandi íslendingarnir að þínu mati?
komment óskast a.m.k 10 stk!

Posted in Almennt | 9 Comments »

Identity crisis

April 11th, 2007 by admin

Ég var spurður að því um daginn hvort ég væri anarkisti!
eftir svolitla umhugsum svaraði ég að líklega væri ég frekar kommúnisti…svo fór ég að pæla hvort það gæti verið að ég væri Anarkista kommúnisti eins og Peter Kropotkin ofl líklega ákaflega smartir gaurar, en eftir þrálát fundahöld upp í höfðinu á mér sem líklega er statt á bólakafi **** (þú veist hvar þ.e.a.s ef þú ert meðlimur í samtökum iðnaðarins) er lokaniðurstaðan sú að ég er bara vitleysingur!

Þykir ekki smart að vera vitleysingur annars?

Posted in Almennt | 4 Comments »

pÁsk

April 10th, 2007 by admin

Stundum rekst ég á breiðskífur sem eiga hug minn allan um nokkurt skeið, og sýnist mér á öllu að 23 með Blonde Redhead, sem ég sá einmitt spila á tónleikum nú rétt fyrir páska, muni falla í þann hóp.

Hin stórgóða Kristin Hersh lék einnig nokkur vel valin lög sem var hreint til fyrirmyndar, en að fá að bera augum 2 konur af slíku kalíberi og Hersh og söngfuglinn austurlenski í ljóshærða rauðhausnum eru, spilandi á rafmangsgítara, varð mér næstum ofviða, en það má líklega rekja til þess að ég er af þeirri manngerð sem dröslast með tittlingin á sér hvert sem skal haldið?

Já var ég búinn að segja að það er fátt eins zexý og kona að spila á rafmagnsgítar?

Posted in Almennt | 7 Comments »

Mac´s

April 3rd, 2007 by admin

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

Pásk

April 3rd, 2007 by admin

Það líður að uppskeruhátíð frjálsræðisins er það ekki?
eða hvað er annars málið með þessa páska?

Ég veit að Sigurður er búinn að ráðstafa sér á föstudaginn þann langa sem Ésú missi bæði saur og þvag á golgata, og er hefð fyrir svipuðum æfingum á mínu heimili þennan dag, kannski af því það er fátt annað spennnandi í boði.
Annars er ég boðin í samsæti af fínni gerðinni þennan dag svo það er full ástæða til að kætast, og alveg spurning hvort ástæða sé til að klæða sig upp.

Amen

Posted in Uncategorized | 1 Comment »