Smell smell

March 31st, 2007 by admin

Djö langar mig í polaroid myndavél.
Ef einhver á svoleiðis sem hann er ekki að nota þá væri ég mögulega til í að gera kauptilboð í gripinn.

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Á fóninum

March 30th, 2007 by admin

mínum núna er breiðskífa hljómsveitarinnar jonee jonee Svonatorrek

Það sem mér finnst skemmtilegt er að eiginkonu minni finnst hljómlistin sem þar líður í gegn minna sig á Rhondda & the Runestones sem er um þessar mundir að undirbúa heimsyfirráð eða dauða, þó það síðarnefnda sé líklegra til að verða ofan á!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Analog

March 25th, 2007 by admin

Upp á síðkastið hef ég verið að kljást við að taka myndir upp á gamla mátann og framkalla sjálfur undir leiðsögn mikils Meistara!
Sýnishorn af þeim æfingum má sjá á flickr síðunni minni góðu sem er hlekkjað í hérna undir “about”, þangað til nægjanlegt magn hefur safnast til að opna sérstakt svæði undir slíkar myndir hér á síðunni.
og svona til að færa analog fetishin í enn hærri hæðir hef ég komið mér upp tækjum til að spila vínilplötur svo það má búast við að frístundum mínum á næstunni verði að stórum hluta eytt í myrkrakompu og út um víðan völl að finna ómetanlegar vínilskífur til að þeyta eftir erfiða daga á skrifstofunni.

Lengi lifi nostalgían!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Tónleikar

March 24th, 2007 by admin

Posted in Uncategorized | 7 Comments »

vísitala

March 19th, 2007 by admin

Hefur hráefni til húsbygginga hækkað um 200 prósent á síðasta áratug?
hafa vinnulaun fólks í byggingaiðnaðinum hækkað svona mikið?
Ég fæ ekki betur séð en að blokkirnar sem spretta upp eins og gorkúlur um allar trissur séu meira og minna reistar af píndum pólverjum sem eru pískaðir áfram af jeppakeyrandi jakkalökkum!

Hverjir eru það sem hagnast, er það skríllinn?
Ég segi fyrir mig að ég skil ekki allar þessar vísitölur og fagurgala sem menn beita fyrir sér í þessum efnum, en mér er deginum ljósara að það er ókleift fyrir mann í minni stöðu að eignast íbúðarhúsnæði.
En bankamaðurinn fitnar og byggingaverktakinn hlær dátt að maurunum sem spíta í lófana og æða út á akurinn til að eignast steypu fyrir dauðann.

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

RhondDa & the Runestones

March 15th, 2007 by admin

Rhondda & the Runestones

Þessi fjölþjóðlegi hópur öfgafólks í Reykjavík mun troða upp á ógleymanlegum tónleikum annað kvöld á Bar11 og hvet ég hér með alla til að mæta og verða vitni að því þegar hættulegasta hljómsveit íslands stígur á stokk og lætur gamminn geysa.

Einnig munu troða upp hljómsveitirnar Appólónía og Who Knew.

Posted in Uncategorized | 5 Comments »

Punks on Film

March 12th, 2007 by admin

Verandi með ólæknandi fetish fyrir gömlum myndavélum stóðst ég ekki mátið þegar ég rakst á gamla Yashica Mat á fornsölu hér í bæ og keypti kvikindið umsvifalaust!
Ég fæ ekki betur séð en að vélin virki fullkomnlega og er því fátt annað en að setja í hana filmu og prófa.

Annars er von til að mínar fyrstu filmumyndir rati á netið nú á næstu dögum þar sem fyrirhugað er að fara í Filmuframköllun 101 í boði Heldriver seinna í dag.

Yfir!

Posted in Uncategorized | 5 Comments »

Opinbert Leyndarmál

March 11th, 2007 by admin

Nú þegar Leyndarmál lífsins er orðið obinbert og því vart hægt að tala um leyndarmál lengur hlýtur að mega reikna með að allt fari að ganga eins og í sögu í heimsmálunum.
Spurning samt hvort einhverjir eru ekki ósáttir við að það sé búið að skvíla þessu með jafn afgerandi hætti og raun ber vitni…..

Þetta er kannski bara enn ein sjálfshjálparbókin?
en þar sem ég les sjaldan eða aldrei bækur þá er þetta kannski mín leið að sjálfshjálp.
þegar allt annað bregst þá eru sjálfshjálparbækur/myndir jú eina leiðin til að losna undan okinu sem maður sjálfur óneitanlega getur oft á tíðum verið.

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Tímavélin

March 9th, 2007 by admin

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Klámið

March 8th, 2007 by admin

Ég verð að viðurkenna að ég er flemtri slegin að hámenntað fólk í einhverjum fræðum sem ég get vart borið fram slysalaust skuli flokka myndefni sem þetta klámfengið í meira lagi.

Þó ég telji mig vera frekar kynferðislega hugsandi mann fór ég gjörsamlega á mis við umrædda ögrun myndarinnar þegar hún kom mér fyrst fyrir sjónir.

Er ekki af nógu að taka annars fyrir fólk sem kýs að vera í heilögu stríði gegn klámi og tengdu efni, þar sem slíkt efni er mjög auðveldlega hægt að nálgast nánast í hverju götuhorni?

Fyrir áhugasama má lesa nánar um þetta á síðustu opnu fréttablaðsins í dag en vísað er í bloggfærslu Femínistans íðilfagra sem innihaldsins vegna var ókleift að vitna í sem reyndist þegar betur var að gáð búið að farga…..

svo er verið að tala um að æska vors lands sé á villigötum!

viðb: Ég sé mig knúinn til að bæta hér við broti úr lýsingu dr Guðbjargar á myndinni en hún er eftirfarandi.

“Hún er tilbúin til þess að láta taka sig aftan frá. Með munninn opinn býður hún lesendum af karlkyni að setja skaufa sína upp í sig.”

Góðar stundir

Posted in Uncategorized | 6 Comments »

« Previous Entries