Orð dagsins

February 26th, 2007 by admin

Þegar ég kom að vægast sagt útlitslaskaðri bifreið minni í dag og gerði mig líklegan til að aka af stað rak ég augun í gulan post-it miða undir öðru þurrkublaðinu.

Þar var ritað í hástöfum “SKILDU EFTIR DÓSAOPNARA NÆST!” og undir teiknaður svokallaður fýlukall ….. sem lítur einhvernveginn svona út —-> :(
Engar frekari skýringar var að finna á þessari orðsendingu og verð ég að viðurkenna að þetta ollu mér talsverðum heilabrotum fram eftir degi …..

Einhver sem vill gefa sig fram og jafnframt gefa skýringu á þessari undarlegu orðsendingu?

Posted in Uncategorized | 6 Comments »

Verndartollar

February 23rd, 2007 by admin

Ég hef heyrt dæmi þess að sannkristin samfélög hafi látið fé af hendi rakna til að losna við að Marilyn Manson haldi tónleika innan þeirra girðinga, en Marilyn þessi þykir ekki góð fyrirmynd þeirra er vilja halda í heiðri kristnum gildum og því til mikils að vinna að halda honum frá ungviðinu.
Einnig er frægt úti í hinum stóra heimi að kaupsýslumenn ýmiskonar greiði mafíósum svokölluð verndargjöld til að fá að starfa í friði og spekt.

Í Baugstíðindum í morgun er aftur á móti greint frá að yfirvöld Reykjavíkurborgar hafi gert æðstu mennntastofnum þjóðarinnar tilboð, sem reyndar er ekki farið ofan í saumana á, en það felur í sér að Borgin greiði þeim skaðabætur ef þeir láti af áformum sínum að opna spilakassabúllu í svokallaðri Mjódd sem segja má að sé hjarta Ghettósins.

Ekki kom fram hvort Háskólamenn hafi þegið þetta boð en þetta þykir mér skjóta ákaflega skökku við og þykir mér af þessu ljóst að knýjandi þörf er á almennilegum mafíósum hér á landi, það er algerlega ótækt að háskólar séu að standa í stússi með fjárhættuspil.

Posted in Uncategorized | 3 Comments »

Ísland Bezt í heimi!

February 22nd, 2007 by admin

Það er ljóst að ekki verður af fyrirhugaðri ráðstefnu klámhunda hér í borg eins og til stóð.
Það má segja að það sé jafn illa fyrir þessu aumingjans fólki komið og Ésú og Maríu hérna um árið, eða öllu heldur sýnu verr þar sem bændur hafa ekki einu sinni boðið þeim hlöðuskjól hvað þá meir.

aftur á móti viljum við bjóða sérstaklega velkomna kínverska fjöldamorðingja og bandaríska umhverfishryðjuverkamenn, þar sem það er sennilega þjóðhagslega hagkvæmara að líta fram hjá almennum mannréttindabrotum, fjöldamorðum og eyðileggingu náttúruauðlinda en einhverju fólki sem vill selja ríðingar til sótsvarts almúgans.

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Ljósmyndasýning

February 18th, 2007 by admin

Mig langar að óska Árna vini mínum til hamingju með mynd ársins á sýningu Blaðaljósmyndarafélags Íslands en ég fór og skoðaði sýninguna í dag.
sýningin í ár er að vanda glæsileg og margt góðra mynda þarna, t.d er Gúndi þarna með einhverjar myndir en hann er klárlega einn af mínum eftirlætis ljósmyndurum sem byggja þetta land.

Ég hvet alla sem hafa einhvern áhuga á ljósmyndun að leggja leið sína í Gerðarsafn og skoða málið.

svo er ég sannfærður um að Sigurjón nokkur Guðjónsson eigi eftir að koma ansi öflugur inn á næsta ári en hann á að mínu mati eina af skemmtilegri myndum sýningarinnar í ár.

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Grinderman

February 14th, 2007 by admin

Grinderman Kemur eins og ferskur andvari í annars litlausa tilveru mína, segiði svo að gamlir menn geti ekki rokkað.

my face is finished
my body´s gone
and i can´t help but think standing up here in all this applause
and gazing down at all the young and the beautiful
with their questioning eyes
that I must above all things love myself!

Posted in Uncategorized | 4 Comments »

Amin

February 13th, 2007 by admin

The Last King of Scotland er ansi hress mynd um smjattpattann og blökkukónginn ægilega Idi Amin sem kallaði ekki allt ömmu sína.

Samt held ég að ég verði að mæla frekar með Rise and fall of Idi Amin og þá helst fyrir þær sakir að hinn stórkoslega firrti persónuleiki Amin fær þar betur byr undir vængi þrátt fyir að myndin sé almennt illa leikinn og gerð af litlum efnum.

Hann var alltént hress kallinn það verður ekki um það deilt!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Ésú hf

February 9th, 2007 by admin

Þessi gella var víst einu sinni í kláminu.
En núna er hún í Ésú!
Það eru fleiri svona kvensur á myspace og hefur maður séð þær kalla sig Hookers for Jesus og annað álíka smart.

Ástæðan fyrir að ég er að tauta þetta er tilkynning sem þessi kona lét frá sér fara undir fyrirsögninni “Sex Industry Kills One More” en það er átt við fyrrnefnda Önnu mína sem geyspaði golunni núna í gær ….

Hvernig hún Shelly mín fær út að kynlífsiðnaðurinn hafi slátrað Önnu er ég ekki alveg að skilja en svosem ekki að undra þar sem ég er líklegast treggáfaður í meira lagi.

Hafandi aðeins rýnt í boðskap þessa boðbera fagnaðarerindisins þar sem mikið er tíðrætt hvað kynlífsiðnaðurinn veltir miklum fjármunum (allt í þágu andskotans auðvitað) að ógleymdum sálum sem hirtar eru í gjaldþrotaskiptum þegar gert er upp að ferli loknum í umræddum bransa, fór ég alveg óvart að velta fyrir mér hvað Ésúbransinn, sem reyndar virðist náskyldur bransi hér á landi a.m.k, er að raka saman miklu fé á ársgrundvelli.

Er þetta ekki bara orðinn einhver bissness hugsjón að vera í þessu Ésúbraski?

Ég held að ríkisstjórninn ætti að drífa í að einkavæða gömlu Þjóðkirkjuna sem ekkert fútt er í lengur, það hljóta að vera einhverjir stórhuga feðgar sem geta poppað hana upp og gert úr henni einhverja ævintýralega gróðamaskínu, allt í nafni Ésú samt auðvitað.

Amen

p.s. Ég er á engan hátt talsmaður kynlífsiðnaðarins né aðskilnaðarstefnu ríkis og Kirkju!

Posted in Uncategorized | 5 Comments »

Hörmungar

February 9th, 2007 by admin

Ég er í öngum mínum yfir fregnum þess efnis að hin brjóstgóða vinkona mín Anna Nichole Smith skuli vera öll.
Samt skilst mér að Samantha Fox sé við hestaheilsu svo það er kannski ekki öll von úti enn um að brjóstgóðar konur haldi velli í þessum vonda heimi sem öllum virðist granda…

Ef að líkum lætur mun ég birta eitthvað af ljósmyndum teknar á svokallaða filmur en það er dótið sem menn notuðu til að ljósmynda áður en Digital djöfullinn hóf innreið sína með megapixlum og geðveiki.
Til þess arna hef ég verið að fikta við forláta Konica 35mm vél að ógleymdri sovéskri medium format vél sem félaginu áskotnaðist á undraverðan hátt.

víst sjálfur Heldriverinn er genginn digital djöflinum á vald sé ég mér ekki annað fært en að halda á lofti heiðri analog tækninnnar eitthvað inn í öldina.

Óðar Ztundir

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

cult or cure?

February 5th, 2007 by admin

Mér finnst fátt eins hallærislegt og þegar ljósmyndarar gerast svo gróflega sekir um ófrumleika að þeir kópía nánast nákvæmlega einhverjar töff myndir sem þeir hafa séð.

Einhver ónefnd dæmi hef ég séð um dagana og þá aðallega á einhverjum áhugaljósmyndaravefum sem svosem er fyrirgefanlegt þegar menn eru að prófa sig áfram í áhugamennsku og leikaraskap, en mig rak hreinlega í rogastans þegar ég sá meðfylgjandi auglýsingu í einhverju snifsinu sem troðið er inn um bréfalúgur landsmanna, helst þegar heimilisfólk sefur, sem er svo sláandi lík mynd af Heidi nokkuri Klum, sem ég held ég fari rétt með að hafi verið tekin fyrir Calvin Klein auglýsingaherferð, að ég leyfi mér að fullyrða að ekki sé um tilviljun að ræða eða hvað finnst ykkur?

myndirnar hlið við hlið í hærri upplausn má sjá hér og dæmi nú hver fyrir sig!

Þess má svo til gamans geta að myndin af Heidi er fengin að láni á myspace síðu Heidi og hef ég fulla trú á að það sé sársaukalaust af hennar hálfu!

Posted in Uncategorized | 5 Comments »

Líkamlegt atGervi

February 3rd, 2007 by admin

Ég mun seint teljast maður mikill aflrauna!
Satt að segja hefur skrokkurinn á mér verið meira og minna í hvíldarstöðu síðan ég var patti og sparkaði í bolta vestur á fjörðum.
en í gær dró til tíðinda er ég fór ásamt Vinnufélögunum á einhverja Bootcamp æfingu sem er skemmst frá að segja að endaði með að undirritaður kastaði upp af líkamlegri áreynslu, en ég get fullvissað ykkur um að ég missti ekki kúlið eitt augnablik og gaf Íþróttaálfum ekkert eftir vel framan af, eða alveg þangað til ælan stóð í fallegum strók út um andlitið á mér.

Hvort svona vitleysugangur verður endurtekinn skal ég ekki segja til um að svo stöddu en þó verð ég að viðurkenna að ég skemmti mér talsvert við að hlaupa og sprikla í rigningu og drullu í þessum prýðilega félagsskap.

Posted in Uncategorized | 2 Comments »