January 31st, 2007 by admin
Ég má til með að benda þeim sem hugsanlega, mögulega, sennilega gætu verið áhugasamir um svokallaðar jaðarkvikmyndir á nýjan vef Græna Ljóssins sem var að fara í loftið og keyrir vitanlega í Eplica
Ekki bara það að vefurinn sé flottur heldur finnst mér sérstaklega skemmtilegt að einhver skuli sinna því að færa okkur eitthvað annað á hvítu tjöld borgarinnar en það sem rennur miðsvæðis niður ánna.
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
January 24th, 2007 by admin
Þó margir kunni að hafa horn í síðu myspace er það á margan hátt stórkostlegt.
sem dæmi má nefna að þar hef ég fundið flestar af þeim stórkostlegu hljómsveitum sem ég hlustaði á þegar ég var að vaxa úr grasi en hefur efni þessara sveita verið fremur ill aðgengilegt núna þegar tuttugasta og fyrsta öldin hefur rutt sér til rúms.
Sem dæmi má nefna í því tilliti nokkrar hljómsveitir, og skora ég á alla þá sem hafa ekki aldur til að þekkja þetta dót að tékka nú á.
Flux of pink Indians
Killing Joke
Anti-Nowhere League
Sex Pistols
The Exploited
Crass voru svo þarna í eigin persónu en yfirgáfu staðinn mögulega af pólitískum ástæðum…..
Það kann að vera að ég sé að gleyma einhverju en þetta er í það minnsta rjómi þess er ég hafði mætur á þegar ég var að slíta mínum fyrstu kínaskóm.
Segiði svo að Illa heimsveldið sé alslæmt!
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
January 24th, 2007 by admin
Stundum veltir maður fyrir sér hvort draumar hafa einhverja raunverulega þýðingu.
Oft tengjast þeir einhverju sem er að hrjá mann þennan ömurlega tíma sem maður er vakandi og með fulla meðvitund, en svo eiga þeir til með að koma manni gjörsamlega á óvart og vera allt að því entertaining.
Núna nýlega dreymdi mig að ég var á gangi við nokkra félaga á laugaveginum gamla og góða.
Það var svosem ekkert í frásögur færandi ef við hefðum ekki gengið fram á Michael nokkurn Schumacher þann þýska.
Hann var eitthvað mjög önnum kafinn við að koma mótorhjóli sem hann var á í ökuhæft ástand og var augljóslega mjög áfjáður að koma því af stað hið fyrsta að því er virtist af því hann var í einhversskona kappakstri merkilegt nokk.
Við félagarnir gengum svosem bara framhjá honum en þegar við vorum komnir spölkon frá honum hnyppti ég glaðhlakkalega í einn félaga minna og spurði hvort hann hefði veitt því eftirtekt að skósmiðurinn var í nákvæmlega samskonar skóm og ég sjálfur.
Það bara hlýtur að vera fyrirboði einhvers stórkostlegs að dreyma að maður sé í eins skóm og jafn mikill maður og Mikjáll þessi fyrrnefndi.
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
January 22nd, 2007 by admin
hin ýmsu þjóðarbrot hins íslenska kommúnistaflokks tóku sig saman og grilluðu væna flís af skítugum grís í gær í ghettóinu.
asnalegt að grilla í frosti samt, en kommúnistar láta það ekki á sig fá á meðan kapítalísku svínin halda sig innandyra og kjamsa á kavíar eða einhverju sem Guði þeirra er þóknanlegt.
síðan finnst mér ekki til mikils ætlast að menn sem misnota börn og ungmenni sér til dægrastyttingar taki af okkur ómakið og fremji snyrtilegt sjálfsvíg, einhverstaðar úr alfaraleið helst, svo ekki þurfi að kosta útför, en allir vita að slíkt getur verið afar kostnaðarsamt.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
January 19th, 2007 by admin
Það eru allir að masa um hið svokallaða Byrgismál þessa dagana.
Rassálfarnir í þinginu eru engin undantekning, nema þeir kalla það utandagskrár umræður eða eitthvað álíka fágað á meðan við hin erum bara svona að skvaldra þetta kannski þegar við eigum að vera að sinna störfum okkar.
Einn vitleysingurinn lét hafa eftir sér í fréttablaðinu að ábyrgðin á málinu lægi að hluta til hjá honum, en skildi það þýða eitthvað að hann lýsi yfir ábyrgð á þessu sem ég myndi vilja kalla pólitískt hneyksli öðru framar?
haldiði að það séu einhverjar líkur á að hann segi af sér í kjölfarið?
Ég leyfi mér stórlega að efast um slíkt, og væri satt að segja nokkuð bjartsýnnn að komast á fjárlög með nýju meðferðarstöðina sem ég hyggst setja á laggirnar byggða á kennningum vísindakirkjunnar í bland við mínar eigin hugmyndir um hvernig særa skal þessa hneigð íslendinga að moka í sig hugbreytandi efnum út og suður fyrir fjall.
Annars er þetta ósköp hressandi skandall svona í skammdegisþunglyndinu og ekki að sjá annað en að þessu sé hvarvetna tekið opnum örmum, allténs þekki ég engan sem ekki vill ólmur sjá títtnefndan forstöðumann keflaðann með óæðri endann hnarrreistan í átt til himnafeðgana.
Amen
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
January 17th, 2007 by admin
Sortnaðir geislar
sólar sem djúpt er hniginn
myrkva líf þitt og löngu fallin vígin
og einsemdin hún er svo dimm og átakanlega köld
litlir sætir strákar verma og lýsa upp þín kvöld
Ég heyrði það í draumi
jú, ég heyrði það svo skýrt
dömueðlið er af dyggðum rýrt
ég heyrði það í draumi þú skalt heiðra eigið kyn
og lítinn sætan strák er ljúft að eiga fyrir vin.
-Megas
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
January 16th, 2007 by admin
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
January 16th, 2007 by admin
Ég get sagt ykkur fyrir víst að maður verður margs vísari við það eitt að sitja að kaffisumbli með félögum úr samtökum iðnaðarins.
Meðal annars get ég þakkað þessum dásamlega félagsskap það að vita hvað Felching er, en fyrir skömmu síðan var mér algerlega ókunnugt um þetta fyrirbæri sem ég reikna mér til að geti verið afar skammarlegt t.d á kaupsýslufundum í 101 Reykjavík þar sem slíkt bæri á góma.
Ég rembist nú og reyni þrátt fyrir búsetu í breiðholti að tileinka mér lífshætti þeirra sem lifa og hrærast í þessu víðfræga póstnúmeri 101, en mér sýnist á öllu að slíkt háttalag sé einkar vænlegt til árangurs í lífinu gervöllu, en líklega verð ég seint meira en hálfdrættingur í þeim málum.
Þó verður það að teljast mér til framdráttar að hafa sniffað lím og þvegið á mér hárið í vaskinum inni á hlemmi.
Annars má ég til með að hlekkja á stórvésírinn og ástmann minn SvarTTrast fyrir þá sem hafa gaman af nett skitsófrenískum ljósmyndum.
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
January 15th, 2007 by admin
Hvernig er það finnst ykkur það ekki bölvaður rasismi af íslenskum kvikmyndahúsum að sýna ekki nýjasta verk Anti Jew Warriorsins Gel Mibson með enskum texta?
Ég meina það er ógrynni af “íslendingum” sem tala hvorki íslensku né Maya mállýsku.
Er við Mibson að sakast eða Íslensku kvikmyndamafíuna?
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
January 14th, 2007 by admin
Mamma mín er snillingur.
Ekki bara er hún snillingur heldur er hún líka besta mamman í allri veröldinni, og þykir mér líklegt að ef ekki væri fyrir hana þá væri heldur illa fyrir mér komið.
Sumir segja að á bakvið alla stóra menn séu sterkar konur, og þá held ég að þar sé frekar átt við mæður þeirra en eiginkonur, samt kann að vera allur gangur á því.
það er a.m.k alls ekki sjálfgefið að vera fæddur í þessa illu veröld af góðu fólki sem lætur sér annt um mann lang fram eftir aldri.
og af því að mig grunar að mamma komi til með að þesa þetta þá segi ég bara, Mamma ég elska þig!
Posted in Uncategorized | 3 Comments »