Frelsari er vor fæddur

December 27th, 2006 by admin

Ésú kom ekki að vitja mín þessi jól frekar en önnur mér til mikilla vonbrigða.
Á meðan ég beið stytti ég mér stundir við hefðbundnar jólaiðkanir eins og ofát flatmögun og almennt iðjuleysi.
og svona til að minna mig á að mannkynið er dæmt til glötunar þá horfði ég á Babel sem sannfærði mig enn frekar eins og þess væri þörf.

Aftur á móti bind ég sterkar vonir við að frelsarinn komi að vitja vor á hverri stundu svo það er ekkert að óttast

Posted in Uncategorized | 3 Comments »

Jólakveðja

December 23rd, 2006 by admin

Þar sem ég er umhverfisvænn með eindæmum (eða latur, ekki viss hvort það er) þá sendi ég ekki út nein bévítans Jólakort!
Aftur á móti langar mig að óska velunnurum mínum, fjölskyldu og fjandmönnum gleðilegra Jóla.

Þúsund og ein þökk fyrir að deila með mér súrefni eða bandvídd á árinu sem er að deyja drottni sínum.

Lifið Heil

Posted in Uncategorized | 4 Comments »

pæling

December 20th, 2006 by admin

Er ekki málið að Guðmundur Jónsson sýni alþjóð á sér getnaðarliminn svo hægt sé að bera hann saman við myndskilaboðin sem sýnd voru í kompás um daginn?

Posted in Uncategorized | 5 Comments »

Skapa fötin manninn eða maðurinn fötin?

December 17th, 2006 by admin

Hversu mikið er hægt að skilgreina persónuleika sinn með klæðaburði?
gerum við það meðvitað eða ómeðvitað að flokka okkur í einhverja bása með lörfunum sem við hengjum utan á okkur?

Einhver spurði mig um daginn hvort ég væri rokkari alveg upp úr þurru, og þegar ég fór að ganga á hann hversvegna hann væri með þessar móðgandi athugasemdir í minn garð gaf hann þá skýringu að klæðaburður minn gæfi slíkt í skyn.
Einnig hafa einhverjir sérstaklega eftir að ég lét skerða hár mitt um daginn að ég sé “pönkaður” og eitthvað í þá veru, sem væri svosem alveg í lagi ef því fylgdu ekki einhverjar kvaðir og skyldur.
það er ekki pönk að gera þetta og ekki pönk að gera hitt.

Þegar ég var talsvert yngri þá reyndi ég eftir bestu getu að fylgja svona steríótýpum út í ystu æsar passaði mig að misstíga mig ekki í að vera Pönkari, Rokkari eða hvað sem ég var í það skiptið …..

Núna aftur á móti hef ég komist talsvert til vits og ára og geri bara það sem mér fjandans sýnist og leiðist satt best að segja að vera ýtt inn í hinn eða þennnan básinn eftir því hvernig ég klæði mig eða klippi þann daginn, það verður bara að hafa það að það sé ekki pönk að fara í ljós, spa, sund eða hvað svo sem mér dettur í hug að gera.

Getur kannski einhver sagt mér í hvaða kadegoríu manndýra nýju skórnir mínir myndu setja mig í, held að Sigurjón og Árni gætu helst svarað því.

Posted in Uncategorized | 6 Comments »

Mannlegt ATferli

December 17th, 2006 by admin

Það kemur fyrir að ég villist inn á svokallaða skemmtistaði hér í borginni um helgar eftir að rökkva tekur.
Þar getur að líta að mínu mati eitt af furðulegri atferlum mannskepnunnar.

Svo virðist sem þetta gangi að mestu út á að ganga fram og til baka eftir þartilgerðum gólfum, upp og niður stiga og hrista sig á sérstökum afmörkuðum gólfum, helst með glas eða litla glerflösku í hönd.
Andrúmsloftið er einhvernveginn allt annað en í smáralindinni á þriðjudögum klukkan fimmtánhundruð, það virðist vera eitthvað þegjandi samkomulag um að það sé við hæfi að láta allt flakka sem annars er ekki gert.
Kvendýrin eru gjarnan djörf í fasi, flíka beru holdi jafnvel á sérstaklega völdum líkamshlutum og engu líkara en um mökunarferli sé að ræða.

Mesta furðu mína vekur þó að skemmtunin virðist vera meiri eftir því sem fleirri eru samankomnir á sama fermeterinn og hámarkinu virðist náð þegar enginn getur sig hreyft fyrir mannmergð og hávaðinn gjarnan svo skerandi að nánast útilokað er að eiga samræður við næsta mann jafnvel þótt líkami hans nuddist upp við þinn án þess að þú fáir rönd við reist.

Ég held að fólk ætti líka að nudda sér upp við hvort annað bara í strætó, í kringlunni og bara hvar sem er, vinda sér að ókunnugum og hefja samræður eða vera með skítkast eftir því sem við á….

Allavega er rannsóknum mínum á þessu undarlega atferli hvergi nær lokið og má eiga von á nánari útlistum og sálgreiningu á þessu merkilega fyrirbæri sem er frægt um víða veröld og heitir Næturlíf Reykjavíkurborgar.

Óðar stundir

Posted in Uncategorized | 3 Comments »

Fortíðin lifir

December 16th, 2006 by admin

það er kominn archive linkur hérna fyrir ofan þannig að ef einhverjum leiðist ógurlega mikið þá getur sá hinn sami flett sig í gegnum þessa fáeinu veflóka sem ég hef dritað á þetta vefsvæði í gegnum árin.

Annars vil ég mæla sérstaklega með að menn kynni sér þessar afar áhugaverðu samsæriskenningar um jólanazistasveininn svona til að koma sér í rétta gírinn fyrir hátíðarnar, a.m.k skemmti ég mér hreint konunglega yfir þessu þarna um árið þegar menn voru með mönnum og spilafíklar átu bjúgu um miðjar nætur.

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

Yfir-lýsing frá stjórn félagsins

December 14th, 2006 by admin

Um daginn sagði ég skilið við myndavélina sem ég hef brúkað við smíðar á flestum mínum myndum.
Einhverjir brugðust ókvæða við og kváðu ótækt að ég hætti að taka ljósmyndir sökum einskærrar náðargáfu minnar á þessu sviði sem ég tek auðvitað undir hátt og snjallt.
Ég viðurkenni fúslega að ég hef nokkrum sinnum lagst grátandi í gólfið og barið niður bæði höndum og fótum hrópandi til Guðs að ég myndi aldrei taka myndir framar, en slíkt er þó ekki upp á teningnum í þetta skipti.

Þrátt fyrir afar slakan árangur í að læra af reynslu einhversskonar tel ég að mér hafi orðið ljóst að stórar yfirlýsingar um hitt eða þetta eru mjög líklegar til að bíta mann í hælinn einn vondan veðurdag, svo ég hef ákveðið að kasta slíku fyrir róða og valhoppa stað þess í spíss inn í eilífðina og taka því sem að höndum ber með því barnslega sakleysi sem svo mjög einkennir mína manngerð.

En kjaftasögurnar sem ganga um mig innan sem utan samtaka iðnaðarins eru samt sem áður á rökum reistar og full ástæða til að kokgleypa þær allar eins og um væri að ræða þorláksmessuskötu af sterkari gerðinni.

Posted in Uncategorized | 4 Comments »

Engar Hetjur!

December 8th, 2006 by admin

Þetta er án efa eitt flottasta músíkmyndband sem ég hef séð lengi með einhverri hressustu hljómsveit síðari ára.

Posted in Uncategorized | 3 Comments »

stepp dans

December 8th, 2006 by admin

Ésú er bara í Fjögurra þrepa fjarlægð.
Hvaða gaur er þetta þá sem er heimtar átta að auki?
Jólasveinarnir voru einn og átta sem gerir níu svo ef maður tæki þá til viðbótar við Ésú þá væri maður næstum því akkúrat í 12 skv útreikningum mínum, en samt held ég að Jólasveinarnir séu í raun dímonískir, allavega sá ég einn slíkan sauðdrukkinn að þyggja munnmök frá dverg um daginn og við vitum öll að það er síður en svo í anda jólana,…. eða hvað?.

Svo skilst mér að það sé ekki nema eitt þrep ofan í duftið, annars er ég ekki alveg viss á því.

Hversu mörg þrep ætlar þú að stíga í átt að glæsileika þínum í dag?

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

hvað segir Jesú í dag?

December 7th, 2006 by admin

Jólin nálgast eins og óð fluga…
Ég held ég skrifi engin jólakort þetta árið fremur en í fyrra.
Það er kannski af því að konan mín er ekki skrifandi á íslensku og ættingjar mínir eru illa að sér í rússnesku?
Þessi hátíð verslunarmanna má fyrir mér fara norður og niður ef því er að skipta, en svosem skal ég gera það fyrir mína nánustu að reyna að haga klæðaburð mínum og háttsemi innan skynsemismarka yfir bláhátíðina.

Hvað ætli Jesú segi samt við þessu öllu?

Posted in Uncategorized | 6 Comments »