Attention!

November 24th, 2006 by admin

Það er gaman frá því að segja að hljómsveitin Rhondda and the Runestone Cowboys mun opna lokakvöld Battle of the Bands sem fara mun fram í Tónlistarþróunarmiðstöðinni við Hólmaslóð í kvöld.
Að sjálfsögðu eru allir sem hafa áhuga á hljóðrænum hryðjuverkum eindregið hvattir til að mæta en áætlað er að herlegheitin hefjist kl 20:00 að staðartíma.

Þeir sem vita ekkert um hvað ég er að tala eru líklegast með tóngreind á við ullarsokk og væru af þeim sökum líklegast betur settir heima hjá sér.

Over and out

Posted in Uncategorized | 5 Comments »

Þakkargjörð

November 23rd, 2006 by admin


Þess ber að geta að ég var beittur gífurlegum þrýstingi af óprúttnum aðilum varðandi innsetningu á þessu myndskeiði af nafna mínum Ben að fremja tónverk.

Svosem má færa rök fyrir því að hann sé vel að þessu komin í ljósi þess að hafa verið sniðgenginn eins ömurlega og raun ber vitni í nýafstöðnum plebbaverðlaunum sem veitt voru um dagana og hann átti skuldlaus.

Góðar Stundir

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Vertu hress, ekkert strezz

November 17th, 2006 by admin

Í gærkvöld sem oftar var ég staddur á heimili mínu fyrir framan sjónvarpið í leit að lífshamingjunni, en eins og allir vitibornir menn vita er hana þar helst að finna.
Um stund fannst mér að ég hefði ferðast aftur í tímann og væri fyrir einhverja töfra kominn til ársins 1986 þegar Hemmi Gunn var töff, en smám saman varð mér ljóst að slík var síður en svo raunin.

Hvernig einhverjum datt í hug að slíta Hemma úr öndunarvélinni og smella honum á skjáinn með svo keimlíkum hætti og ég á að venjast úr ömurlegri bernsku minni er mér gjörsamlega hulin ráðgáta og er óhætt að segja að aulahrollurinn sé ennþá að hríslast um beinaberan líkama minn, sem er vart á bætandi í ljósi kuldans sem nú ræður ríkjum í höfuðstaðnum.

Getur ekki einhver skotið loku fyrir þetta helvíti áður en saklaust fólk hlýtur varanlegan skaða af?

Posted in Uncategorized | 5 Comments »

Náungakærleikur

November 13th, 2006 by admin

Ég þegi þunnu hljóði, segi fátt en geri kannski meira.
Ótrúlegir hlutir gerast og enn ótrúlegri hlutir í þann mund að fara að gerast.
Digital djöfullinn hefur sleppt af mér hreðjatakinu um stundarsakir a.m.k en óvíst um framhaldið.
Lífið sem eitt sinn virtist litlaust og fábrotið er í dag í fjölskrúðugri kantinum.

Það var samt kona áðan ein í bílnum sínum og komst hvorki lönd né strönd, gaf það til kynna með blikkandi ljósum að ökutæki hennar væri eitthvað að bregðast henni.
hún sat bara þarna alein í myrkrinu á meðan ég eins og allir hinir smeygði mér framhjá og kærði mig kollóttan um hvort hún væri hugsanlega hjálparþurfi.
Kannski situr hún þarna enn í blikkbeljunni sinni og fær sig hvergi hreyft?

Ætti ég að skammast mín?
Er ég ekki bara höggvin í sama knérörið og sjálfselskir meðbræður mínir sem ég eitt sinn fyrirleit svo mjög og úthrópaði sem vesæla vísitölukrypplinga?
Ég fór samt í kirkju um helgina og tendraði ljós að kristinna manna sið!

Posted in Uncategorized | 4 Comments »

Rhondda & The Runestone Cowboys

November 2nd, 2006 by admin

Stórhljómsveitin Rhondda & The Runestone cowboys mun stíga á stokk í fyrsta sinn í kvöld á sóðabúllunni sem kennir sig við Amsterdam, sem þykir vel við hæfi.
Tóndæmi og sitthvað fleirra s.s meðlimaskipan má finna á Mæspeis síðu hópsins.

Einnig munu hljómsveitirnar Doris Hates Men, CoBurn, og Númer Núll leika fyrir dansi.

Þeir sem eru áhugasamir um að verða vitni að því að undirritaður geri sig að opinberu athlægi eru eindregið hvattir til að mæta, en áætlað er að hljóðmengunin standi sleitulaust frá kl 22:00 fram til miðnættis að staðartíma.

Posted in Uncategorized | 4 Comments »