kill or be killed

October 23rd, 2006 by admin

Hefurðu litið á börnin þín
Limlest blóðug sæt og fín
Börnin þín
Börnin þín
Hefurðu litð á börnin þín?

Ég var að spá í afhverju eitthvað pakk út í heimi er að skipta sér af því að við skulum veiða hvali.
út frá því fór ég svo að spá í af hverjum við erum yfir höfuð að veiða hvali, ég meina skiptir það einhverjum sköpum fyrir þjóðarbúið?
Reyndar er svoldið töff að senda þessu hvalelskandi pakki fingurinn með þessum hætti en samt verður það eilítið aumkunarvert þegar maður fer að spá í þessu aðeins betur.

Ástæðan fyrir því að ég er að röfla þetta er aðallega sú að einhver af þessum hvalelskandi mönnum sendi mér einkaskilaboð á hinum fróma vef myspace.com þar sem hann bað mig vinsamlegast að drepa ekki hvali!
Allir sem þekkja mig vita auðvitað að ég drep enga hvali frekar en önnur dýr og brást ég því ókvæða við þessum persónulegu aðdróttunum.
Að sjálfsögðu gerði ég þennan bandaríkjamann umsvifalaust persónulega ábyrgan fyrir fjöldamorðum í írak svo eitthvað sé nefnt en reyndar eru þær veiðar bandaríkjamanna eflaust að skila mun meiri hagnaði en þessar hvaladruslur sem við erum að draga að landi svo líklega verðum við að horfa í gegnum fingur okkar með það lítilræði…. því öll vitum við að þegar öllu er á botninn hvolft snýst þetta um peninga, svo ef enginn verður ríkur af þessum hvalamorðum þá hlýtur það að segja sig sjálft að þau eru ekkert annað en mannnvonska og durtsháttur sem við ættum bara að skammast okkar fyrir.

Góðar ztundir

Posted in Uncategorized | 6 Comments »

Entertainment Tonight

October 15th, 2006 by admin

kærkomnir vinir mínir þeir McNamara og Troy sem ég hef sótt bróðurpart minnar lífsspeki til og ég hef sárt saknað eru nú aftur komnir til að veita mér af visku sinni og innri fegurð.
Mig tekur þó afar sárt að nú sé látið í veðri vaka að Christian Troy kunni að vera kynferðislega hneigður til sterkara kynsins, en hann er að sjálfsögðu fyrirmynd mín í almennri karlmennsku og dugsemi, eða eins og portkonan hún frú Þuríður myndi segja “hann kann sko að **** hann Christian”.

Það kann að skjóta skökku við og vekja furðu að ég skuli hneigjast til sjónvarpsefnis af þessu tagi en ég get fullvissað ykkur um að ég er ekki nándar eins andlegur og sögur fara af!

****) sóðaorðbragð sem ekki þykir við hæfi að hafa eftir!

Posted in Uncategorized | 4 Comments »

Áfram Ísland

October 11th, 2006 by admin

Enn á ný hefur einhver fyrir hönd íslands tekið meðvitaða ákvörðun að keppa til verðlauna í skítugri Lágkúru sem tekur miðið beinustu leið í neðri byggðir.
Þetta er mér mikið aðhlátursefni og kemur til með að metta í mér hrokann alla vikuna ef ekki lengur, en hvað gerir maður svosem ekki fyrir milljón dali?

Lengi lifi lágkúran, áfram Ísland

Posted in Uncategorized | 5 Comments »

Pjetka

October 5th, 2006 by admin

það er að koma þreföld plata með Tom Waits í þessum mánuði, það er einnig að koma ný breiðskífa með Converge ásamt því sem ég hef hafið áslátt á bassagítar í rokkhljómsveit.
Ég snæddi villibráð í gærkveld og reykti eplatóbak úr þartilgerðri vatnspípu undir rússneskum svanasöng íðilfagra kvenna, svo það sjá allir sem vilja í hendi sér að líf mitt er geysispennandi um þessar mundir.

Ég ætla samt að bíða svolítið með að fagna þar sem bitur reynsla hefur kennt mér að ekkert er það gott að það boði ekki eitthvað illt.

Einhverra hluta vegna virðist þetta quote úr þrekvirkinu Fight Club vera viðeigandi í dag

You’re not your job.
You’re not how much money you have in the bank.
You’re not the car you drive.
You’re not the contents of your wallet.
You’re not your fucking khakis.
You’re the all-singing, all-dancing crap of the world.

Yfir og út

Posted in Uncategorized | 4 Comments »

Prentað Eitur

October 3rd, 2006 by admin

Ég held ég sé eins illa upplýstur og mögulega er hægt að vera.

Dagblöðin sem lúra sér inn um bréfalúguna mína óséð þegar flestir sofa svefni hinna réttlátu koma ekki til að létta mér lund eða skemmta mér, heldur einungis til að ræna mig frelsi, og sáldra ótta og viðbjóð í fallega innréttað sálarlíf mitt.
Þessvegna stafla ég þeim í virðulegan búnka við útidyrnar í stað þess að hleypa þeim lengra inn á fallegt heimili mitt þar sem þau geta valdið usla og sundrung.
Pælingin er að skila þeim aftur til föðurhúsana þegar ég er kominn með svona c.a hundrað kíló af þessu eitri og spyrja í leiðinni hvort þeir hafi nú ekki eitthvað annað og betra að gera við prentsvertuna, eins og t.d prenta peningaseðla handa mér?

Einnig hafa æðri máttarvöld séð til þess að sjónvarpsútsendingar nást ekki í bönkernum hjá mér svo mér er ekkert að vanbúnaði að fara að rækta fallega sál mína til betri vegar og án utanaðkomandi áreitis.

Ég er samt með slæma samvisku!
Ég er með svart naglalakk og skelf af ótta þegar ég sé gluggaumslög af óþekktum uppruna, Ég óttast að upp um mig komist og ég verði rekinn út af leiksviði lífsins líkt og gjarnan var gert í barnaskólanum í gamla daga.

Pælingin er samt að vera minni vísitölukrypplingur og skítbuxi í dag en í gær.

Posted in Uncategorized | 7 Comments »