Andlegt Líf 101

September 30th, 2006 by admin

Stundum þegar ég er eftir erfiðan dag á skrifstofunni á sóðabúllunni að drekka kaffið mitt verð ég var við fólk sem raskar ró minni talsvert.
yfirleitt er þetta fólk ekki í fastri vinnu eða virðist yfir höfuð eiga neitt líf annað en að sitja fyrir mönnum eins og mér í þeim tilgangi að sannfæra okkur um gríðarlegt andlegt gildi lífs síns og tilveru.
Gjarnan eru svona menn með stór plön um að fara einhvert í klaustur en síðasta svona keis var einmitt að fara alla leið til brandararíkjana í slíkar betrunarbúðir, vafalaust sér og öllum sínum náustu til óendanlegrar dýrðar.

Hvað varð um að taka við heildversluninni hans pabba, reyna að vinna sig upp í verkstjórann út á Granda og þvíumlíkt?
Hversu andlegt er að vera svona ógurlega andlegur að maður þarf að fara um hálfan hnöttinn, lesa kynstrin öll af bókum og kyrja sig hásan að því er virðist til þess eins að ganga í augun á fyrrverandi fyllibyttum á sóðalegum fundum samtaka iðnaðarins?

Mýmörg dæmi eru um að svona einstaklingar sjái sér ekki fært að stunda eðlilega vinnu sökum gríðarlegra anna við ástundun andlegs lífs og finnst ekkert sjálfsagðara en að hið opinbera standi straum af þessu rúnki þeirra í formi bóta einhversskonar.

Allavega finnst mér að svona fólki ætti undantekningalaust að vera úthýst af veitingastöðum þeim er ég ven komur mínar eftir skattpínda þegnskylduvinnu þá er ég stunda svo þeir geti fundið sinn innri mann, öðlast betri vitund nú eða bara blóðrúnkað sig Guðdómlega!

Amen

Posted in Uncategorized | 6 Comments »

Flick….

September 27th, 2006 by admin

Svona til að bæta gráu ofan á svart, hella olíu á eldinn, nú eða bara feta í fótspor sótsvarts almúgans, þá fór ég að halda úti svokallaðri Flickr síðu.
upphaflega setti ég þarna myndir sem sést hafa áður bæði hér og annarstaðar en svo skyndilega fékk ég þá afbragðs hugmynd að reyna nú kannski að vera með einhverslags öðruvísi myndefni en ég er með hér, og er er pælingin að reyna að halda því eitthvað áfram þó mér hafi lítið orðið ágengt enn sem komið er.

Þetta skiptir auðvitað sköpum fyrir þig og alla fjölskyldu þína þannnig að taktu sérstakan nótis af þessu.

Lengi lifi meðalmennskan!

Posted in Uncategorized | 7 Comments »

Sugar so sweet…

September 19th, 2006 by admin

Fyrirhugað er að endurvekja gömlu Sykurmolana og blása til konserts í nóvember næstkomandi.
Sykurmolarnir voru auðvitað eitt áhrifaríkasta band síns tíma tvímælalaust og voru mín fyrstu viðbrögð við þessum fregnum að þetta gæti orðið stórkostlegt framtak.
En þegar ég fór að hugsa málið aðeins betur þá minntist ég orða Einars þegar hann var spurður hvort ekki væri möguleiki á að Purrkur Pillnikk kæmi saman aftur, en svör hans voru á þá leið að það sem væri í fortíðinni ætti heima þar, og engin áhugi væri fyrir því hvað hann snerti að endurvekja slíka drauga.

Hvað er öðruvísi við það að koma saman aftur með Sykurmolum?
Feitari biti af deigi?

Hvað sem hverjum kann að finnast þá hef ég upp á síðkastið hlustað talsvert á gömlu Sykurmolana og allt eins mögulegt að ég leggi mitt af mörkum svo að Einar fái sinn skerf af deigi.

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Nicholas Edward Cave

September 17th, 2006 by admin

Ég held það sé óhætt að segja að enginn tónlistarmaður hafi haft jafnmikil og djúpstæð áhrif á mig og Nick Cave hefur gert undanfarin ca 10 ár eða meira.
Því var það mér mikil upplifun að vera viðstaddur tónleika hans í laugardalshöllinni í gær, þrátt fyrir að tækifæri til ljósmynda hann hafi farið útum þúfur……

merkilegast þótti mér líklega flutningur Mercy Seat sem mér finnst klárlega vera eitt af hans albestu lögum, en ómögulegt virðist vera að segja til um fyirfram hvernig það er matreitt live og illmögulegt að gera upp á milli ólíkra flutninga sem rekið hafa á fjörur manns.

Ekki spillti fyrir að með Cave væri í för Warren Ellis sem skákar hvaða gítarhetju sem er með exótískum fiðluleik sem á sér eflaust enga hliðstæðu í veröldinni.

Núna þarf ég bara að sjá Tom Waits spila á tónleikum þá gæti ég held ég dáið sáttur maður!

Viðbót: Verandi eins sjálfkynhneigður og raun ber vitni þá láðist mér að þakka Gyðjunni fyrir að leggja sitt af mörkum til að gera mér kleift að verða vitni að þessum stórmerka atburð íslensks tónleikahalds!

Posted in Uncategorized | 3 Comments »

Sódóma Kópasker

September 13th, 2006 by admin

Eigandi eins andlega vini og raun ber vitni hef ég komist að þeirri niðurstöðu að það kemur líklegast í minn hlut að sinna holdlegu lystisemdum þessarar jarðvistar.
Þetta geri ég vitanlega af einskærri óeigingirni með trega í hjarta, en þó með þeirri fullvissu að laun mín á himnum verði stórkostleg.

Það segir sig einfaldlega sjálft að það verður einhver sinna því sem er holdsins.

Posted in Uncategorized | 5 Comments »

Rúnaður Rímnaháttur skrælingjans

September 12th, 2006 by admin

The ballroom is darkend with our fears of tomorrow.
the walls are all bleeding with hatred and lies.
but the dancers keep dancing.
and the band keeps on playing.
do you think its time to leave or shall we dance one more song.?

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

Das Kapital

September 10th, 2006 by admin

Hvenær er listamaður búinn að missa sjónar á því hversvegna hann er að standa í listsköpun og er farinn að framleiða sorp fyrir fjöldann í stað þess að gefa blóð sitt svita og tár í listina?
Það er svosem ekki sjálfgefið að það gerist þegar slíkir menn/konur eru orðin það successful að þeir/þær geta farið að skeina sig á 100 dala seðlum en einhvernveginn virðist það samt sem áður haldast nokkuð í hendur.

“Margur verður af aurum api” á auðvitað vel við í þessu samhengi, en auðvitað er ég í kjöraðstöðu til að hafa stórar og stæðilegar skoðanir á svona málum þar sem ég hef enga reynslu af að vera ríkur og frægur listamaður.

En þetta var s.s umræðuefni síðasta hringborðsfundar í samnorræna félagsskapnum sem ég er einmitt heiðursfélagi í og voru ýmsir listamenn nefndir í þessu samhengi án þess að ég nefni nein nöfn, en ég get upplýst að fyrsti stafurinn í nafni listamannsins sem opnaði umræðuna er Bubbi.

Lengi Lifi katítalisminn

Posted in Uncategorized | 7 Comments »

Verkamenn

September 8th, 2006 by admin

Ég mæli með að fólk tékki þetta einhverntíma í vikunni, kínverjar eru hressir þrátt fyrir að þeir séu doldið stuttir í annan endan.

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

notice

September 6th, 2006 by admin

Sko þið sem eruð að koma hingað til að gægjast inn í sjúkan hugarheim minn ættuð bara að skammast ykkar.
Ég mun alls ekki láta uppi hvað gerist í raun og veru á milli eyrnana á mér því þá er ég viss um að mennirnir í hvítu sloppunum kæmu að taka mig.

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

Sunnudagur til Sælu

September 3rd, 2006 by admin

Hin fimm fræknu komu saman í tilefni dagsins og snæddu evrópskt brunch að hætti Vaffarans.
Eðli þessa félagsskaps samkvæmt get ég ekki tíundað í smáatriðum öll þau efni sem rædd voru við þetta tilefni, en óhætt er að fullyrða að það var farið um víðan völl, öll umræða mjög málefnaleg og allt að því heimspekileg.
þar sem ég er hvorki háskólamenntaður né snillingur af neinu tagi þá tók ég þann pólinn í hæðina að ganga fram af fundargestum með held ég ágætum árangri.

Umræðan um ástina fannst mér þó sennilegast hvað athygliverðust en það málefni er mér frekar hugleikið þessa dagana.
Niðurstaða fundarins liggur ekki alveg ljóst fyrir en ég þurfti snögglega og mjög skyndilega að yfirgefa samkvæmið vegna þeirra miklu og aðkallandi anna sem einkanna lífshlaup mitt svo mjög.
Fyrir þá sem ekki vita þá er það mjög flott karaktereinkenni að virðast mjög upptekinn og vinamargur, hafa marga staði að fara á og lítinn tíma, en ég held að það sé einhversskonar lykill að farsæld, hamingju og jafnvel ást þó hún kunni að endast stutt en hámenntað fólk segir mér a hún sé alveg fín þrátt fyrir það.

Lifið Heil

Posted in Uncategorized | 4 Comments »