August 31st, 2006 by admin
Ég var að spá, nú eru til í Reykjavík svona gaurar sem festust í paunkinu og eru eitthvað sem ég myndi kalla eilífðarpaunkarar.
það er frekar töff bara, og má nefna sem dæmi Frikka paunk og Sigga paunk þar fremsta í flokki.
Aftur á móti finnst mér frekar sorgleg staðreynd að það virðist ekki vera neinn svona eilífðar skrykkari?
Svoleiðis náungi myndi eflaust vera þú veist með grifflurnar, legghlífarnar og íklæddur don cano íþrótta ádfitti að ógleymdu því að hann myndi að sjálfsögðu skrykkjast svolítið til við hvert tækifæri.
Veit kannski einhver um svona tilfelli í íslensku samfélagi?
Þetta er eitthvað sem ég tel að myndi gleðja flesta ef ekki alla sem yrðu á vegi slíks manns.
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
August 30th, 2006 by admin
þetta myndi ég telja vera spurningu sem hver maður og hver kona þyrfti að vera með svör á reiðum höndum við.
Posted in Uncategorized | 5 Comments »
August 29th, 2006 by admin
ég er að spá hvað það séu margir sem misskildu síðustu færslu á þann hátt að ég væri kominn með einhverja kærustu upp á arminn?
veit um einn en nefni engin nöfn, væri ansi fyndið ef það væru fleirri.
Annars spyr ástin ekki um stétt né stöðu og allt það og því allsendis ekki loku fyrir það skotið að hún berji dyra hjá mér eins og hverjum öðrum, en það er svosem ekkert lykilatriði fyrir lífshamingju mína sem betur fer.
Ég hef a.m.k nóg að sýsla um þessar mundir sem gerir að verkum að þessi allt að því endalausa röð augnablika frá því ég vakna og þangað til ég sofna aftur er nokkuð bærileg og meira að segja frekar skemmtileg á stórum köflum.
En ef þig dreymir að herðabreiður skósmiður er að sýsla við útsaum fyrir neðan baðherbergisgluggann þinn er líklegt að þú komir til með að fá ferlegt líkþorn á einhverja af stóru tánnum innan fjögurtíu og þriggja vikna.
p.s orð rituð með appelsínugulum stöfum í svona pistli þýðir að það er hægt að smella með músabendlinum á orðið, og eins og fyrir töfra opnast einhver síða, nú eða bara mynd!
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
August 26th, 2006 by admin
Í kvöld er ég að fara með stóru ástina í lífi mínu út að borða á eftirlætis veitingastaðnum hennar.
Ég hygg að sjakket og vellyktandi sé við hæfi.
Posted in Uncategorized | 5 Comments »
August 24th, 2006 by admin
sko það er einhver könnun á mbl þar sem fólk er beðið að velja í hvaða hlutverki Johnny Depp sé bestur, sem væri alveg kúl ef þessir fávitar hefðu ekki sleppt William Blake.
Þið sem vitið ekki hver William Blake er ættuð bara að skammast ykkar og fara að lesa aftan á mjólkurfernur.
Marvin (Older Marshall): You William Blake?
William Blake: Yes, I am. Do you know my poetry?
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
August 24th, 2006 by admin
Ég er ekki frá því að mér finnist Pétur Ben einn af skemmtilegri tónlistamönnum sem byggja þetta ömurlega landsvæði.
ekki að mitt barnalega álit á því eða einhverju öðru sé eitthvað sem mun verða skrásett á spjöld sögunnar, en burtséð frá því þá er þessi knái nafni minn með útgáfutónleika í kvöld sem ég er staðráðinn í að vera viðstaddur.
Einhvernveginn er því þannig í pottinn búið að það er bara gaman að vera til og hef ég heimildir fyrir því að einhverjir séu hugsanlega á sama máli svo ég var að spá hvort þetta væri kannski eitthvað sem væri að ganga líkt og flensurnar og rigningin?
það er samt sól í búlgaríu hef ég heyrt.
Ég veit samt ekki hvað gangverðið á heróíni er á strætum peking, en ég hef áræðanlegar heimildir fyrir því að Absinthe sé stórkostlegt stöff.
Djöfuls mórall hlýtur samt að vera að skera af sér eyrað þrátt fyrir að maður sé auðvitað með 2 og kannski ekkert sérsaklega mikil fötlun að missa annað.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
August 22nd, 2006 by admin
það eru spennandi hlutir að gerast og að fara að gerast.
Hugsanlegt er að flottasta ljósmynd mín eigi eftir að líta dagsins ljós á næstu misserum…
Rómantíkin lætur á sér standa en sögusviðið er Reykjavík sem fyrr og öll aukahlutverk þétt skipuð.
verkefni úr óvæntum áttum gerðu að verkum að hallarekstur á ljósmyndadeild zeranico holdingz hefur verið réttur af a.m.k um stundarsakir og því mun ég eitthvað áfram gaufast í stúdíóljósmyndun, ef þið skylduð eiga gamalt fótanuddtæki sem ykkur langaði að eiga fallega stúdíómynd af.
Ævintýri helgarinnar verða ekki tíunduð hér af ýmsum ástæðum en óhætt er að segja að hún fröken B ber það ákaflega vel að vera orðin sextug …
Óðar ztundir
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
August 18th, 2006 by admin
Nú loksins er svo komið fyrir þessum vef að hlekkirnir hérna í leiðarkerfinu að ofan hafa allir sína fúnksjon.
Einnig hefur portfolio-ið fengið einhversskonar andlitslyftingu og er nú flokkað eitthvað niður.
Þetta er voðalega skæs allt saman og lekkert, en vitanlega á ég ekki heiður af nema broti af þessu dóti nema ef vera skildi fyrir ljósmyndirnar og minniháttar útlitshönnun ef svo mætti kalla..
Allar ábendingar um eitthvað sem betur mætti fara eru vel þegnar.
Ég sé fulla ástæðu til að láta þetta stíga mér til höfuðs og hyggst ég ganga hnarrreistur inn í helgina með bólgið egó sem mun svo líklega springa með miklum látum áður en langt um liður, en þó ekki fyrr en afmælisveislu frk B er afstaðin með öllu því húllumhæi sem slíkum veislum gjarnan fylgir.
Góða Helgi
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
August 16th, 2006 by admin
Þegar ég var ungur átti ég forláta leðurjakka sem voru mikið móðins meðal paunkara í þá daga.
Seinna meir átti ég einhverja fleirri svona jakka í ýmsum útfærslum en leðurjakkar voru að sjálfsögðu trademark fyrir hvítt hyski af mínu tagi.
Síðasti jakki úr þessari kadegoríu í minni eigu fór held ég fyrir lítið í einhverjum skítadíl inn í dimmu húsasundi í miðborginni og í sjálfu sér ekki ástæða til að tíunda þau viðskipti frekar.
Núna um daginn var ég aftur á móti sem svo oft áður við þegnskyldustörf hjá merkum vini mínum sem einmitt býr í miðborginni, við rýmingu á geymslurými.
Þar kenndi eðli málsins samkvæmt ýmissa grasa úr þessari öld og hinni, en bar þar hæst forláta Millet úlpa sem auðvitað var líka hámóðins á mínum sokkabandsárum.
En mesta kátínu vakti þó þessi líka stórglæsilegi leðurjakki sem birtist eins og úr tímavél nánast eins og nýr og óslitin með öllu, sem kannski skýrir hversu mikill paunkari þessi vinur minn var í raun.
Það skipti auðvitað engum togum að samningur var undirritaður á staðnum og jakkinn skipti um eigendur jafn fljótt og þarna í húsasundinu forðum, en eitthvað var þetta samt minna sem vinur minn fékk fyrir sinn en ég minn þarna í gamla daga, en mestu máli skiptir að viðskiptin fóru fram og báðir aðilar gengu glaðir í bragði frá samningaborðinu!
Ætti ég að láta mála hauskúpu aftan á hann kannski?
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
August 15th, 2006 by admin
Í dag eru ellefu ár síðan ég hætti að brengla skynjun mína með skipulögðum hætti.
Í tilefni dagsins settist ég í hádegisverðarhléi mínu frá daglegu amstri, á fínu og flottu skrifstofunni minni í 101 reykjavík, á bekk við Hlemmtorg.
Vitanlega var ég ekki búinn að sitja lengi þegar að mér vatt sér ungur maður þreytulegur að sjá og bar sig frekar aumlega fjárhagslega bæði og andlega.
Eitt augnablik datt mér í hug að vinda mér í bókabúðina sem einmitt er þarna hinum megin við götuna og ná mér í eintak af bókinni góðu sem svo vinsælt er að lemja svona kauða í höfuðkúpuna með, en það er eitthvað sem telst til eftirbreytni og viðeigandi í stöðu sem þessari.
En hvers hefði aumingja maðurinn orðið vísari við þessi höfuðhögg?
þetta var reffilegur náungi að sjá sem eflaust hefur margt til brunns að bera svo ég rabbaði bara við hann stundarkorn, og kvaddi hann svo glaðhlakkalegan við hlemmtorgið, hann að fara að útvega fé fyrir samloku og ég að sinna störfum mínum á skrifstofunni.
Hann sefur kannski úti í nótt en ég inni, það þarf enginn að sofa úti í henni Reykjavík okkar þar sem smjör drýpur af hverju strái.
Arbeit Macht Frei
Posted in Uncategorized | 8 Comments »