Áherslusnuð

July 27th, 2006 by admin

Undanfarin misseri hef ég mest megnis verið að mynda innnan veggja stúdíós hér í borginni, sem er vissulega gaman og mikið af því að læra.
Aftur á móti hef ég tekið meðvitaða ákvörðun um að hvíla slíkar tökur um tíma a.m.k.

Af því tilefni skundaði ég í miðborgina og stal skemmtilegu portraiti sem má sjá neðst í Portfolio-inu…….
Ég á erfitt með að gera upp á milli þess að ljósmynda raflýstar yngismeyjar annarsvegar og grófgerða karlmenn á miðjum aldri við hráar aðstæður hinsvegar, en hvorutveggja er gefandi og þónokkuð sefandi

Draumur minn að koma upp myndarlegu safni götumynda gæti hugsanlega orðið að veruleika þegar fram líða stundir, en þangað til ætla ég að bregða mér afsíðis og njóta þess til hins ítrasta að vera vitleysingur.

viðb: Svei mér ef þetta gæti ekki verið mr. Bojangles þarna á myndinni en ég er einmitt með þetta lag á heilanum akkúrat núna.

I knew a man Bojangles and he’d dance for you in worn out shoes
Silver hair, a ragged shirt and baggy pants, that old soft shoe.
He’d jump so high, he’d jump so high, then he lightly touched down.
Mr. Bojangles, Mr. Bojangles, dance.

Posted in Uncategorized | 5 Comments »

Sagði hann

July 26th, 2006 by admin

doðrantar af visku sem safnast upp og úldna segja skuldina vera að bólgna
frelsið sem þú hefur líkt og dýr í löngu bandi, skorpnar upp og verður að hlandi ef þú kemur ekki að landi.

það er gott að geta hlegið þegar útsalan er búin og fíflin eru farin heim

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Könnun

July 24th, 2006 by admin

Þar sem mig grunar að hingað villist ákafafólk í vefsmíði og almennri smekksemi langar mig að gera smá könnun og athuga hvort einhver viðbrögð fáist.

Þannig er mál með vexti að stórvinur minn og snillingurinn hann Segurður fullyrti rétt í þessu fullum fetum í lyktarlausu samtali við mig að honum hefði tekist að gera vef sinn þannig úr garði að útlit hans bæri höfuð og herðar yfir einmitt þennan stórglæsta vef minn sem þú lesandi góður ert einmitt staddur á einhverra hluta vegna en ekki hans…….

Málið er s.s einfalt og ætti ekki að vefjast fyrir neinum.
Hvor vefurinn er smekklegri á að líta www.siggisiggibangbang.com eða www.zeranico.com?
Atkvæðasöfnun fer fram í kommentakerfinu hér a neðan sem öllum ætti að vera greinilegt og gerist þess ekki þörf að gera sérstaklega grein fyrir atkvæði sínu eða færa fyrir því rök.

Yfir og út

Posted in Uncategorized | 17 Comments »

Dánarfregnir og jarðarfarir

July 23rd, 2006 by admin

Ég er haldinn þeim hvimleiða brest að vera alltaf með einhverjar fáeinar bloggsíður sem ég les spjaldana á milli og kíki á yfirleitt daglega.
Sumir eru hressir og skrifa svona nánast daglega pistla um eitthvað misgáfulegt en á þennan hátt finnst mér ég vera í nánu sambandi við þetta fólk sem ég hef meira að segja sumt aldrei hitt.

Svo kemur sá galli á gjöf njarðar að þetta hyski sem ég er búinn að taka ástfóstri við tekur upp á að skrifa kannski ekkert svo dögum og jafnvel vikum skiptir……
Það þykir mér með öllu ótækt nema hreinlega að viðkomandi sé bara dauður.

Þetta raskar ró minni talsvert og gerir að verkum að ég sef illa og þarf í sumum tilfellum að róa á ný mið og finna blogg til að sefa sál mína.

Já þið vitið alveg upp á ykkur skömmina…..

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

and I quote….

July 21st, 2006 by admin

I have found little that is “good” about human beings on the whole.
In my experience most of them are trash, no matter whether they publicly subscribe to this or that ethical doctrine or to none at all.
That is something that you cannot say aloud, or perhaps even think.

- Sigmund Freud

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

hvað ert þú svo að gera þessa dagana

July 20th, 2006 by admin

hvað gerir mann að manni?
Hvar hann er að vinna og hvað hann er með í laun, hvort hann á íbúð eða býr í leiguhúsnæði, hvernig bíl hann á og allt þar fram eftir götunum.
Ég er ekki saklaus af því að spurja menn hvað þeir séu að vinna þegar ég hitti þá á förnum vegi eftir að hafa kannski ekki séð þá lengi, jafnvel þótt mér sé alveg skítsama hvað fólk gerir til að draga fram lífið.

Auðvitað er þetta kurteisishjal en kommon það hlýtur að vera hægt að brydda upp á einhverju áhugaverðara kurteisishjali en svona endemis bulli þó vinnan kunni að vera áhugaverð.
Það er tiltölulega auðvelt að drepa svona samtöl í fæðingu með að segjast vinna í fiski nú eða bara segjast hreinlega ekki nenna að vinna eins og einn vinur minn gerði, þá fer umræðan alveg úr takt og viðmælendur fara í hálfgert panik og vita ekkert út í hvað þeir eru komnir….

Einnig eru svona hlutir lykilatriði þegar fólk er að velja sér aðila til að eiga í nánu tilfinningasambandi við sem er jafnvel enn súrara.

Ég er að minnsta kosti sami maður og ég var þegar ég vann verkamannastörf, eða jafnvel ekki neitt þrátt fyrir að ásjóna þessarar umræddu viðmælanda minna kunni að gefa annað til kynna……

Ég skora á ykkur að segjast vera bara að týna dósir á nóttuni næst þegar einhver spyr ykkur hvað þið eruð að sýsla á daginn!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Rop

July 19th, 2006 by admin

Enn hefur verið föndrað til við útlit þessa vefs en nú var það meistari Sigurjón sem kom mér til hjálpar, kærkomið nokk og á hann þúsund og eina þökk fyrir það ásamt því að vera bara fyrirtaks piltur í flesta þá staði sem ég kem auga á.
Það er nú líka sennilega að hluta til honum að þakka að ég vinn á svona voðalega flottum og fínum vinnustað, sem er meira að segja í 101 Reykjavík sem þykir nú ekki dónalegt skal ég segja ykkur.

Þessa dagana eru liðin þrjú ár og pínulítið meira síðan ég fór að taka myndir mér til dægrastyttingar, ég myndi sennilega ekki vita það nema af því ég var að ljúka við að borga síðustu greiðslurnar af þriggja ára raðgreiðslusamning sem var undirritaður í blóði fyrir téðri myndavél sem ég nota enn reyndar…..en það er ekki smart að kaupa dýra hluti á raðgreiðslum, slíkt gerir skríll, og skríll get ég ekki fyrir nokkra muni verið til langframa…..

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Kátt á hjalla

July 18th, 2006 by admin

Í dag reykti ég kúbanskan vindil af sverari gerðinni og hallaði mér aftur í leðursófann minn.
Á meðan ég púaði vindilinn hugsaði ég “svona hefur Castro örugglega liðið þegar hann var rétt nýbúinn að hrifsa til sín völdin”
Það er nefninlega svo að ég er einræðisherra á mínu heimili, ég vaska upp þegar mér sýnist og loka setunni af því mér finnst það smart en ekki af því einhver lufsa segir mér að gera það.

Núna er þessi gleði aftur á móti mestmegnis runnin af mér og ég þarf að fara að sofa úr mér vindilinn til að takast á við enn einn strembinn dag á skrifstofunni…..

Ég tók nú samt til hendinni í myndagilleríinu, poppaði aðeins upp litinn á hlekkjunum og annað smálegt rétt svona til að leggja áherslu á kvenleika minn og innri fegurð.

Posted in Uncategorized | 3 Comments »

Ha ég

July 16th, 2006 by admin

Band of Horses eru á replay dauðans í stafræna grammófóninum mínum.
Andrés Önd er að verða vitlaus í sjónvarpinu og kattardýrin láta eins og þau séu á einhverjum spánýjum amfetamín koktail.

Það var einhver gaur í sjónvarpinu í gær sem sagði eitthvað á þessa leið, “Ég skil ekki þetta líf né konur og óttast hvorutveggja!”

Ég reyni samt að láta sem ekkert C og halda andlitinu en þið ættuð bara að vita hvað það er miklum erfiðleikum háð að vera ég!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Rokkstjörnur

July 13th, 2006 by admin

ef það væri svona íslenskt Rockstar Supernova dót hverjir ætli væru í bandinu?
Jói Motorhead á trommum kannski?
Og hvað kannski Ósk Norðfjörð kynnir?

Þeir mættu sko hafa verið í lykilhljómsveitum en samt alls ekki lykilmenn, helst svona gaurar sem villtust í hljómsveitirnar og enginn man eiginlega eftir og voru kannski reknir.

svo væri þetta allt auðvitað ægilega illa pródúserað á þann hátt sem brennir augun úr tóftunum…..

Posted in Uncategorized | 8 Comments »

« Previous Entries