June 26th, 2006 by admin

Ég er búinn að komast að því að ég hef líklega þjáðst af athyglisbrest, ofvirkni eða jafnvel einu öðru sem ég get engan veginn munað hvað heitir en félagi minn sem vinnur með brostin börn upplýsti mig um og mér fannst ofboðslega skæs, þegar ég var að vaxa úr grasi.
Ef bara ég hefði fengið við þessum brestum mínum rétta meðhöndlun og verið gefið rídalín væri ég sjálfsagt á þingi, sæti í stjórn klámbébánka eða eitthvað þaðan af betra.

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Kisuuuuuur

June 22nd, 2006 by admin

Þessar kisur langar að komast á kærleiksríkt og gott heimili sem fyrst. þau kunna á klósett og eru hvers manns hugljúfust. áhugasamir sendi póst á zeranico@gmail.com

Þess ber að geta að þetta mun líklega vera síðasta tækifærið að eignast kettling undan Ljósku þeirri alræmdu sem verður gerð ófrjó með þartilgerðri aðgerð nú á næstunni!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Spælingur

June 19th, 2006 by admin

Ég verð að viðurkenna að ég er gráti næst úr sorg yfir að hafa ekki verið færð píkubleik grjót fyrir störf mín í þágu jafnréttismála á sameinuðum grundvelli beggja kynja, og gildir þá einu hvort um er að ræða kynvillinga eða þá sem fljúga svona nokkurnveginn beina leið inn í eilífðina.

Gvuð hvað ég vona að mamma sjái þetta ekki!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Bíða?

June 17th, 2006 by admin

“Ég ætla að bíða með alla neyslu þangað til ég hef náð nógu miklum þroska”

Þetta segir barnsleg rödd í útvarpinu mér.
Er það virkilega svo að við höfum gefist upp fyrir þeirri hugmynd að það sé hugsanlega hægt að lifa þessu lífi án þess að neyta einhversskonar vímugjafa?
Hvenær er hægt að segja sem svo að maður hafi náð nógu miklum þroska til að maður geti mokað í sig stöffi sem gerir mann heimskan, dofin, ofvirkan, eða jafnvel gjörsamlega óstarfhæfan?

Er ekki verið að segja sem svo með þessari að mínu mati misheppnuðu auglýsingaherferð að neysla áfengis og vímuefna sé eitthvað sem sé þess virði að bíða eftir fyrir börnin okkar, og sem meira er að neysla sú sem um ræðir sé óumflýjanleg staðreynd í lífi hvers manns?

Reyndar er ég sjálfur auðvitað frekar bráðlátur og nennti ekkert að bíða, þannig að það kann að vera að þetta sé bara málið, en mikið finnst mér þetta ómerkilegt líf ef svona lagað þykir eitthvað sem vert er að byrja að bíða eftir strax á barnaskólaaldri!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

June 15th, 2006 by admin

“We have built up a certain brand equity over time since the launch of PlayStation in 1995 and PS2 in 2000 that the first five million are going to buy it [the PS3], whatever it is, even if it didn’t have games.”
- David Reeves, CEO, Sony Computer Entertainment Europe.

Segiði svo að forstjórar stórfyrirtækja séu ekki gæðablóð!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

á nærklæðunum einum saman.

June 14th, 2006 by admin

af því ég á stóra myndavél sem ég kann svona þokkalega á þá kemur fyrir að fólk biður mig að mynda allskonar dót sem er mjög mis spennandi í eðli sínu, og sumt reyndar bara alls ekkert spennandi.
Aftur á móti kom að máli við mig stúlka nú á dögunum sem hefur áhuga á að láta mig ljósmynda fyrir sig nærföt sem hún sjálf hannaði, sem ég held að gæti bara verið í meira lagi mótíverandi.

Þannig að ef einhver hefur hug á að gifta sig á nærbuxunum í Fischersundi þá skal ég íhuga að ljósmynda það.

Posted in Uncategorized | 5 Comments »

Freðmennska

June 13th, 2006 by admin

þetta líf það er rusl
safnast upp svo ég flý
ég bíð ekki eftir því
ég flý því ég ann því
ef ég stoppa er það flopp
og hamingjan fyrir bí
ég hleyp undan soranum
með bros út að eyrunum.

ég safna engum minningum
ég kastaði reglunum.

svo þegar þú klessir á vegginn
lokuð augun sjá ekki veginn
lífið sem þú hélst þú ættir
er þoka og gruggugt vatn
skuggar flæktir í hamingjunni
brosið dautt þegar lífið hættir
og mundu dag einn er fortíðin
allt sem þú átt
allt sem þú átt eftir.

ég safna engum minningum
ég er freðinn fáviti!

samvkæmt þessu er ekki ýkja slæmt hlutskipti að vera freðinn fáviti.
er þetta líf ekki annars óttalegt rusl?

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

Kreddukreppa

June 9th, 2006 by admin

Stundum þegar ég sit einn á glæstu heimili mínu í einu af betri hverfum borgarinnar leiðist mér ákaflega.
Á stundum sem slíkum dettur mér í hug að það gæti verið sniðugt og jafnvel stórskemmtilegt að eiga svokallaða kærustu.
Undir slíkum kringumstæðum er óbrigðult og mjög svo áræðanlegt að horfa á ákveðnar kvikmyndir….. sem dæmi get ég nefnt Bitter Moon og Closer í þessu samhengi en það virkar þegar allt annað bregst.

Allar ábendingar um annað sem gæti virkað á ranghugmyndir þess efnis að lífið geti verið stórkostlegt eru vel þegnar hér í athugasemdakerfinu hér að neðan

After all, there’s no point in hurting somebody who doesn’t mean anything to you.
- Bitter Moon

Posted in Uncategorized | 4 Comments »

666 the number of the ….

June 6th, 2006 by admin

Í dag er sjötti júní og árið er tvöþúsund og sex…
Alveg er ég viss um að hobbísatanistar nær og fjær halda þennan dag hátíðlegan, hvort sem þeir gera það með því að fórna ketti nágrannans til satans eða brenna nærliggjandi kirkjur, nú eða bara hella sig fulla og láta dólgslega sem ég held að sé reyndar alveg klassískt.
Ég aftur á móti ætla bara að mæta í vinnuna eins og aðra daga.
Samt langar mig að sjá The Omen ég man mér fannst hún ferlega spúkí í gamla daga.

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

June 5th, 2006 by admin

Nobody: I have prepared your canoe with cedar boughs. It’s time for you to leave now, William Blake. Time for you to go back to where you came from.
William Blake: Do you mean Cleveland?
Nobody: Back to the place where all spirits come from, and where all spirits return. This world will no longer concern you.

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

« Previous Entries