Félagsmál

May 30th, 2006 by admin

Ljóst þykir eftir lestur þessa þráðs að einhverjir telja sig skarta þeim eftirsótta titli sem LjósNyndari sannarlega er, en samkvæmt félagatali Félags Íslenskra LjósNyndara er einungis einn félagi og fer hann hér á kostum, en títtnefndur Broadbandjes.us fer með formennsku og önnur tilfallandi störf hjá félaginu.
Verið er að skoða hvort hugsanlegt sé að þeir sem fari offari og presenteri sig í óleyfi sem LjósNyndarar verði hreinlega löfsóttir, en einnig eru fordæmi fyrir því að slíkir menn hafi hreinlega verið teknir alfarið úr umferð.

Reyndar skal tekið fram að öllum er frjálst að sækja um aðild að fyrrnefndu félagi og öðlast þennan eftirsótta titil.
Félagsgjöld og aðrar kröfur til gildra lima verða vart tíunduð hér, en áhugasamir geta gert vart við sig t.d í kommentakerfinu hér að neðan!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Smásímafólk

May 28th, 2006 by admin

Þegar ég var 6 ára voru ekki til neinir GSM símar.
Það var ekkert sjónvarp á fimmtudögum og engar voru leikjatölvur svo ekki sé minnst á skaðræðis Windows skrýmsli sem tröllríða hverju heimili nú eins og vírus sem kominn er til þess eins að sundra og eyða.

Núna á ég dóttur sem er einmitt 6 ára.
það þarf auðvitað ekkert að tíunda að hún er snillingur og fegurst allra stúlkna í gervallri sveitinni, en einmitt í gær fékk hún sinn fyrsta farsíma.
Auðvitað gapti ég eins og önd yfir þessum ranghugmyndum dóttir minnar að líf hennar yrði mun bærilegra ef hún hefði slíkt fjarskiptatæki í sinni umsjá, en er það ekki einmitt hlutverk feðra og mæðra að hneyklast og tuða yfir uppátækjum unga sinna?
í annan stað get ég auðvitað manna best skilið að fólk og jafnvel smáfólk skuli heillast af litlum og sniðugum tækjum sem framkvæma undur og stórmerki eins og hendi sé veifað.

Hátækni fyrir alla!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

May 24th, 2006 by admin

mbl.is greinir frá því að Nick Cave komi til með að spila á tónleikum í Reykjavík í september.
Það þýðir að ég get frestað því að kála mér fram yfir jól í það minnsta!

Posted in Uncategorized | 3 Comments »

Living with War

May 23rd, 2006 by admin

Það er oftast ekki mikið upp úr útvarpshlustun að hafa, en þó kemur fyrir að maður rekst á eitthvað dót sem jafnvel færi framhjá mann ef maður hefði ekki verið að hlusta.
sem dæmi má nefna að ég hefði ekki haft hugmynd um að Neil Young hefði verið að gefa út skífu nú nýlega, sem er bara hárbeitt og hress þrátt fyrir háan aldur kallsins, ef ekki hefði verið fyrir úbvartið sem alla jafna básúnar síbylju og auglýsingum.

Það er eitthvað svo gratt við þennan gítar kallsins sem ég hef heillast ógurlega af allt frá því ég sá Dead Man hérna um árið.
Ekki skemmir fyrir að textar þessarar plötu sem ber titil þessa pistil eru til þess fallnir að vekja fólk, og þá kannski sérstaklega Ameríkana til umhugsunar um eitt og annað sem betur mætti fara í þessu brölti öllu.

Það er sumsé ekki sjálfgefið að aldraðir rokkarar séu sponsoraðir af olíufyrirtækjum og jeppaumboðum.

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

May 20th, 2006 by admin

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

Þorskar á þurru Landi

May 20th, 2006 by admin

COD Music stóð fyrir ansi hressum tónleikum í gærkveld og fram undir morgun.
þar var undirritaður staddur með myndavél og alrómaðan þokka á lofti, öllum nærstöddum til talsverðar fryggðar …..
Vel má vera að eitthvað af myndum af atburðinum rati hingað áður en vetur konungur hefur innreið sína.
Sérstaklega langar mig þó að hrósa hljómsveitinni sem kallar sig því undarlega nafni Benny Crespo´s Gang en ég skemmti mér alveg sérstaklega vel þegar þau voru á pallinum þó vissulega hafi þessi atriði öll verið einkar hressandi og greinilegt að COD eru líklega með einhver hressustu bönd á íslandi í dag á sínum snærum.

Mér sýnist sem svo að undirlag þessa pistils sé það að á meðan Englar sofa svefni hinna réttlátu þá eru týndu börnin úti að hlusta á rokk og láta illa…. eða hvað?

Mikið er ég samt fegin að búa ekki þarna niðri í miðri sódómunni þar sem mannslífið kostar eina pulsu, svefndrukknir laugavegsbúar skjóta á bifreiðar og almennur subbuskapur virðist vera einkar heimakær.

Svið eru Góð

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Haaaaa

May 18th, 2006 by admin

Ég veit ekki hvað skal segja….
Líf mitt er bara svo gríðarlega uppfullt af spennu og dramatík að ég kem vart upp bókstaf á þetta blessaða blogg.

Hæst ber þó sennilega sú staðreynd að ég hef skipt bæði um vinnustað og starfsvettvang sem lítur út fyrir að vera breyting til hins betra svona í fyrstu allavega.
Það að sjálfsögðu kallar á ímyndarbreytingu, nýjan síma, nýtt msn netfang, aðra Powerbook tölvu og þar fram eftir götunum.

Held ég verði svaka skæs þegar ég verð stór!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Grupo Corpo

May 13th, 2006 by admin

Af því ég er svo hámenningarlegur og opinn í alla enda hvað listfengi varðar þá brá ég mér á brasilíska danssýningu í borgarleikhúsinu í gær.
Hópurinn sem sprangaði þarna um sviðið fyrir mig og Forseta Íslands heitir víst Grupo Corpo og verð ég að viðurkenna að mér var talsvert skemmt yfir þessum fagra limaburði.
Tónlistin í seinni hálfleik snerti mig sérstaklega og stóð ég mig að því að velta því fyrir mér hvort jafnvel væri hægt að kaupa hana á þartilgerðum plastdisk sem ég þó hristi af mér á leiðinni út.

Segiði svo að ég sé bara kjaftfor pönkari.

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

Músík vikunnar ….

May 11th, 2006 by admin

þetta LastFM þykist mér svolítið sniðugt fyrirbæri þó ég hafi þráast við og haldið því fram að þetta væri drasl þegar góðvinur minn var að ota þessu að mér um daginn……
Allavega geta þeir sem hafa snefil af áhuga á að vita hvað ég er að hlusta á nú fylgst náið með því yfir lýðnetið …

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Doing the work of the Lord

May 10th, 2006 by admin

“I believe that God wants everybody to be free. That’s what I believe. And that’s been part of my foreign policy. In Afghanistan, I believe that the freedom there is a gift from the Almighty. And I can’t tell you how encouraged I am to see freedom on the march.”

*The Third Bush-Kerry Presidential Debate, George W. Bush, October 13, 2004
Arizona State University, Tempe, Arizona.*

“Hence today I believe that I am acting in accordance with the will of the Almighty Creator: by defending myself against the Jew, I am fighting for the work of the Lord.”


*Mein Kampf, Adolf Hitler, Ralph Mannheim, ed., New York: Mariner Books, 1999, page 65.*

Fann þetta á fyrrnefndu myspace svæði Crass…. þessi gif mynd á nú eftir að gera hvern mann vitlausan og fær eflaust ekki að vera lengi, en kúnstug þó!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

« Previous Entries