April 30th, 2006 by admin
Í ljósi þess að DV er svo gott sem búið að leggja upp laupana, óska ég hér með eftir fjársterkum aðilum til að koma að útgáfu nýs dagblaðs í samstarfi við mig og fleiri sem hafa sterkar skoðanir á öllu og engu.
Blaðið myndi heita DG sem stendur fyrir Dómur Götunnar og myndi sérhæfa sig í slúðri um Baugsmafíuna og aðra drullusokka sem fara illa með peninga og völd ásamt annari hefðbundinni subbublaðamennsku, en þó með nýju og hárbeittu ívafi.
Allavega er ég langt komin með að ná samningum við ljósmyndara sem hefur mikinn áhuga á að sérhæfa sig í héraðsdómsljósmynun, þannig að ég er vongóður!
Góðar Stundir
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
April 29th, 2006 by admin
Posted in Uncategorized | 7 Comments »
April 24th, 2006 by admin
Hvern djöfulinn á það að fyrirstilla að sýna einhverja helvítis aumingja sprauta sig með einhverju drullumalli í sjónvarpinu og það á þeim tima sem fjölskyldan er gjarnarn samankomið við altarið?
á maður svo að vorkenna þessu fólki sem virðist þó búa við ágætis kjör, hefur að minnsta kosti þak yfir höfuðið, en segist samt ekki eiga fyrir sprautunálum sem kosta þó ekki nema fáeinar krónur og fást í öllum apótekum borgarinnar?
Efnin eru einnig í háum gæðastaðli, framleidd í fínum verksmiðjum einhverstaðar úti í heimi, vottuð af þartilgerðum heilbrigðisyfirvöldum og skrifuð út af háskólamenntuðum fáráðlingum í hvítum sloppum.
Ég held það ætti bara að senda þetta pakk á sjóinn í nokkra mánuði!
Posted in Uncategorized | 5 Comments »
April 20th, 2006 by admin
Ég hef verið alveg hauglatur að ljósmynda undanfarið, en núna á víst að heita komið sumar og þá er nú kannski von til að maður bregði undir sig betri fætinum eða jafnvel báðum og skundi eitthvað að mynda.
Mest langar mig þó að fara til útlanda og öfunda hann herra P alveg ógurlega af að vera staddur í Memphis af öllum stöðum.
Ég sé t.d fyrir mér að ég gæti skemmt mér konunglega að vera í Indlandi í viku eða tvær aleinn með myndavélina mína……Kannski þessi blessaði Guð sem allir eru að tala um geti kippt í einhverja strengi svo sá draumur minn geti orðið að veruleika, hann er jú góður ekki satt?
hvað veit ég svosem!
Allavega óska ég ykkur gleðilegs sumars
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
April 18th, 2006 by admin
Talandi um Pönk og nýbúnir páskar finnst mér vel við hæfi að deila Þessu með ykkur svona til að bjóða upp á alternative páskaboðskap!
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
April 17th, 2006 by admin
Einu sinni var ég pönkari.
Það þýddi einfaldlega að ég hlustaði á Crass, íklæddist leðri sem lyktaði af pachouli, var með undarlegar hárgreiðslur og lét illa.
Það var engin sérstök pólitísk ástæða fyrir þessu atferli mínu eða göfug hugsjón sem braust út á þennan hátt, meira knýjandi þörf á að vera öðruvísi og á móti því sem fjöldinn aðhafðist.
Sumir vilja reyndar halda því fram að ég sé svokallaður pönkari enn þann dag í dag hvernig sem á því stendur, verandi eins glæsilegur og þeir sem þekkja mig vita.
Svosem finnst mér anarkismi afar falleg heimsspeki þó svo ég leggi mig ekki í líma við að haga lífi mínu skv henni, en einnig finnst mér áhugavert að velta fyrir mér hversvegna fólk sem aðhyllist slíkt skuli kjósa að klæða sig á þann hátt sem raun ber vitni?
Gæti hugsanlega verið að þeir næðu til fleirri ef þeir gengju í burstuðum skóm og greiddu hár sitt í spíss?
Samt held ég þegar ég skoða málið hlutlaust að ég hafi mikið frekar verið bara ódæll ungur piltur en sannur pönkari?
Ég allavega átti í mesta basli með að skilgreina þennan fjanda fyrir áhugasömum vini mínum um daginn merkilegt nokk!
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
April 13th, 2006 by admin
Ég ætla að leyfa mér að spá því að metsölubókin fyrir næstu jól komi til með að bera titil á borð við FangaMál, TalsvertMál eða bara HiðverstaMál.
Þar með væri hringnum lokað með hinni heilögu þrennningu og ónefndur maður gæti farið að snúa sér að einhverju öðru en braski með heróín og bókaútgáfu.
Annars eru bara páskar núna sko og nógur tími til að velta þessu fyrir sér þannig að…..
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
April 11th, 2006 by admin
“I have always felt that you should not borrow knowledge from others, because personal experience and development are of utmost significance.”
- Vangelis
Posted in Uncategorized | 4 Comments »
April 9th, 2006 by admin
Ég má til með að minnast á skemmtilega tónlist sem ég rakst á í gegnum kreppta tilvist mína á Myspace
eftir u.þ.b eina mínútu af hlustun fyrsta lagsins varð mér á að kasta upp yfir lyklaborðið í bræði yfir dónaskapnum að ganga svona langt í stælingu á Tom Waits.
En verandi jafn opinn og asnalegur og ég er einmitt þá hlustaði ég áfram og eftir að hafa hlýtt á þessi fjögur lög sem eru í boði þarna mitt í veldi hans Murdoc (sem btw promazin vinur minn hefur einstak dálæti á) var ekki laust við að ég væri bara hrifinn.
Ekki það hrifinn þó að ég hafi skundað beinustu leið á Amazon að kaupa skífurnar, heldur þannig hrifinn að ég gæti alveg hugsað mér að fá þær lánaðar.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
April 6th, 2006 by admin
við bísuðum gjarnan saman við tveir Birkiland og ég.
í borginni og tróðum glapstigu og margan gæfulausan veg.
við seldum litla bæklinga og salan hún var treg.
en sumrin í vatnsmýrinni voru hlý og yndisleg.
við gengum saman marga villigötu fram á nótt.
við gerðum skurk um næturþelið þegar allt var orðið hljótt.
við vorum hundeltir og okkur gert margt ósegjanlega ljótt.
og að því búnu þá var lögreglan á okkur sótt.
Ef ég gæti smíðað svona kveðskap þá myndi ég barasta geta dáið hamingjusamur einn í rúminu mínu vitandi að ég hef skipt sköpum í lífinu!
Posted in Uncategorized | 3 Comments »