Breytingar
Eins og sjá má þá er þessi vefur að ganga í gegnum gagngerar breytingar og má eiga von á að sjá hann endurfæðast smátt og smátt á komandi misserum.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
Eins og sjá má þá er þessi vefur að ganga í gegnum gagngerar breytingar og má eiga von á að sjá hann endurfæðast smátt og smátt á komandi misserum.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
Real men use Das Keyboard!
Er það kannski bara nördaskapur að finnast þetta ofursvalt?
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
Það er nokkuð ljóst að Myspace er eitthvað það heitasta sem gengur á skrílsnetinu þessa dagana.
svo virðist sem enginn sé maður með mönnum nema halda úti í það minnsta eitt stk svona síðu, og er undirritaður þar engin undantekning .
Mér finnst þetta stórsniðugt fyrir margar sakir en þó kannski sérstaklega þær að þarna má finna umtalsvert magn af hljómsveitum sem gaman er að kynna sér, svo er líka Forseti Vor þarna með sitt horn.
En hvort ég sjálfur held úti aðdáendasíðum þarna fyrir hönd föngulegara stúlkna líkt og Sigurjón virðist halda verðið þið lesendur mínir bara að dæma um sjálf.
Ég hallast þó helst að því að blessaður pilturinn öfundi mig af þeirri gríðarlegu kvenhylli sem ég nýt í þessari hliðstæðu veröld.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
Hi, well my name is Clareanne and I weigh 30 stone. I love being fat. I want to get a lot fatter, so much so that I cant move anymore. My belly is covered with stretch marks and I love it. It wobbles when I walk and I can’t touch my toes. I want to put on a lot of weight. I have put on 17 stone in just 8 years!
Clareanne er einungis ein af mörgum með þetta sérkennilega áhugamál að vilja fitna meira en góðu hófu gegnir.
Það væri sosem ekkert svo ægilegt ef það væri ekki til fullt af fólki sem er meira en til í að hjálpa fólki eins og henni að verða eins feitt og mögulegt er.
Tékkið http://fantasyfeeder.com/ fyrir meira af þessari ægilegu geðveiki.
Væri einhver þarna úti til í að fita mig kannski?
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
Háhælaðir skór færu mér eflaust ekki vel.
Jafnvel þó ég myndi raka á mér fótleggina og leggja mig fram.
Samt er ég ekki frá því að strípur gætu gert mér kleift að verða meira successfull í lífinu.
Svo hef ég líka heyrt að fólk sem er hresst eigi nánast undantekningarlaust auðveldara líf en við hin sem göngum um með allar heimsins áhyggjur á herðunum.
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
Future Future þykir mér fínt kaffi, en hverjum er svosem ekki sama um það.
Mikið hlakkar mig annars til að sóða í mig Baba Ghannouj í boði herra P í félagsskap andans sem svífur yfir vötnum á morgun.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
You dont need to repeat this.
there is not any ceromony any more.
everyone is gone.
can you say this outloud to yourself?
you are alone at the time, and the time now is always.
always was a word you used in promises.
it is valueless.
all officers and unlisted men will be provided with a copy of their own true loves that they will never see again, and all these copies will be returnable trough the proper channels.
Old Man Gloom
Posted in Uncategorized | 4 Comments »
Ég hef verið frekar latur við að fara á tónleika upp á síðkastið, en síðastliðið föstudagskvöld fór ég að sjá Dikta og Ampop mér til talsverðrar gleði.
Í gær var svo stefnan tekinn beinustu leið á Grandrokk þar sem Myra, Changer, I Adapt og Doomriders frá Boston léku fyrir dansi.
Myra hafði ég ekki séð fyrr og er óhætt að segja að ég hafi orðið mjög hrifinn, einnig eru Changer með mikið breytt lineup og er það að mínu viti að virka mun betur en áður gerði.
rúsínan í pylsuendanum, Doomriders voru einnig stórkostlegir og finnst mér magnað að einn og sami maðurinn (Nate Newton) geti verið í þrem hljómsveitum af þeirri stærðargráðu sem mér þykir Converge, Old Man Gloom og nú síðast Doomriders sannarlega vera.
Í kvöld aftur á móti stendur til að fara að sjá slóvenskt fasista diskó á Nasa í boði Laibach, og er óhætt að segja að ég viti ekkert út í hvað ég er að fara, en það er nú oftast bara mest gaman…..
Já og tékkið endilega á testósterón rokkurunum Doomriders á Myspace
myspace.com/doomriders
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
Óttasleginn maður gerir ýmislegt undarlegt í örvæntingu sinni.
Sumir kunna t.d að halda að ofbeldismenn séu bara eitthvað klikkaðir, en í raun eru þeir bara óttaslegnir.
Ég held að allir menn séu óttalsegnir.
Sumir kannski kjarkaðir líka, en samt óttaslegnir.
En hvað er það sem við óttumst?
er það það að upp um okkur komist?
Að gúmmelaðið sem við göngum með inn í okkur eins og fullvaxta fóstur verði öllum mönnum opinbert?
Að við verðum hafðir að háði og spotti samferðamanna okkar?
Hversu langt ert þú tilbúinn að ganga til að koma í veg fyrir að ótti þinn fái að líta dagsins ljós, jafnvel þó hann sé eins augljós og sjáaldur augna þinna?
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
“Every man and every Woman is a star”, that is an aggregate of such experiences, constantly changing with each fresh events, wich affects him or her either consciously or subconsciously.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »