February 22nd, 2006 by admin
Hver man ekki eftir meistara Norris?
A Force of One, An Eye for an Eye, og Silent Rage eru titlar sem koma upp í hugann þegar ég hugsa til þess tíma þegar karlmennska mín öðlaðist sína fyrstu fyrirmynd og hefur ekki beðið bætur síðan.
En hversvegna eru allir búnir að gleyma Chuck?
Er ekki full ástæða til að sú kynslóð sem nú er að vaxa úr grasi og komast á þann aldur að henni fer að vaxa hreðjar kynni sér verk þessa holgervings karlmennskunar?
Ég ásamt fleirri áhugamönnum um stórkostlegar kvikmyndir og karlmennsku erum alvarlega að íhuga að setja á laggirnar klúbb sem hefði það eitt að markmiði að heiðra og virða herra Norris og sé ég fyrir mér að fólk gæti komið saman með reglulegu millibili, horft á kvikmyndir hans, skeggrætt málin og jafnvel snætt poppkorn.
að lokum vil ég benda áhugasömum aðdáendum á að heimsækja http://chucknorrisfacts.com/
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
February 19th, 2006 by admin
Það gleður mig óneitanlega að þjóðin skuli hafa húmor fyrir að senda Silvíu Nótt til þáttöku í júróvisjon sirkusnum.
Best væri ef Ísland yrði útskúfað úr keppninni um aldur og ævi sökum dónaskaps……..annars hef ég enga afsökun fyrir að hafa yfir höfuð skoðun á málinu.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
February 17th, 2006 by admin
Ég er á förum til fjarlægra landa
að finna þar ástir og meyjar og gull.
Meyjar og gull.
Útþráin seyðir mig út yfir hafið
Einskis ég sakna því mamma er full.
Þú ert full, víst ertu full.
Ég ræð mér ekki fyrir kæti yfir þessari textagerð!
Skundið nú öll sem eitt í næstu hljómplötuverslun og fáið ykkur eintak af Hús Datt
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
February 16th, 2006 by admin
Mér finnst múslimar geðveikir
Mér finnst kaþólska asnaleg
Mér finnst að Ríkisstjórnin ekki vera að standa sig
Mér finnst að þegar það er rautt ljós þá eigi þeir sem bíða að brosa til hvors annars og jafnvel kinka kolli
Mér finnst að maturinn ætti að vera gefins
Mér finnst blómin falleg
Það var kátt hérna um laugardagskvöldið á Gili
það kvað við ölll sveitin af dansi og og spili
Hann Ási Láki æringi austan af landi var úti í túnfæti, dragspilið þandi
Æ dúddelí dúddelí dæj.
Já tékkið á Megasukk!
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
February 16th, 2006 by admin
Fyrsta myndin tekin í stúdíóinu góða er kominn í gilleríið.
það þjóðráð að óska eftir sjálfboðaliðum til módelstarfa á Barnalandi af öllum stöðum virðist hafa borið árangur framar vonum.
Mæður Íslands eru eflaust þær fallegustu í heimi!?!?!
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
February 8th, 2006 by admin
Jæja sá hluti þessa vefs sem inniheldur ljósmyndir hefur verið færður í það horf sem ég get sætt mig við um þessar mundir, og þykir mér líklegt að þetta sé form sem ég kem til með að halda mig við á næstu misserum.
Í stað þess að sóða hér inn heilum seríum kem ég til með að bæta við einni og einni mynd sem mér einhverra hluta vegna finnst til mikils koma.
Lifið Heil
svona aukreitist má ég til með að benda á fyrirtaks bloggara sem ég tel miklar líkur á að eigi eftir að breyta öllu lýðnetinu eins og við þekkjum það, en fyrrnefnt blog má finna á vefslóðinni www.sultukall.blogspot.com
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
February 3rd, 2006 by admin
Maður með hund gengur inn í kynlífshjálpartækja slash klámverslun.
Ég: Góðan Dag
Maðurinn: Daginn
Ég: Er þetta klámhundur?
Maðurinn: Já!
Segiði svo að ég sé ekki fyndinn!
Posted in Uncategorized | 8 Comments »
February 1st, 2006 by admin
Myndagallerínu var slátrað.
Það kemur aftur að hluta, en þá bara eitt albúm líkt og meistari Sigurjón er með á sínu ágæta vefsetri.
Þó lofa ég ekki að myndirnar verði í sama gæðaflokk og hans myndir.
Einnig er það að frétta að félagið hefur leigt aðgang að forláta ljósmyndastúdíói þannig að það er ekki lengur gild afsökun að hafa ekki slíka aðstöðu til afnota……..
Posted in Uncategorized | 1 Comment »