January 30th, 2006 by admin

Ég var að velta fyrir mér fólki sem Reynir án árangur að taka sitt eigið líf.
Sumir reyna jafnvel aftur og aftur án árangurs……

þegar ég sjálfur stend frammi fyrir verkefni sem ég er ekki alveg viss um hvernig best er að leysa af hendi, enda ég yfirleitt á því að leita á náðir Google, sem nánast undantekningnalaust er með svör á reiðum höndum.
Snögg leit að ofangreindu leiddi t.d í ljós 101 Leið til að kála sér og myndi ég telja að allir gætu fundið leið við sitt hæfi í þessum langt frá því tæmandi lista.

Lengi lifi Google

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

WAR

January 25th, 2006 by admin

Between the world and me: pressure-splitting seams.
Imminent danger in the headlines.
Glamour on the T.V.
Chasing fools gold.
Growing cold.
Drowning in anxiety.
Lack of reason: pushing symbols and clever phrasing.
False notions of ritual, credentials, comfort, safety.
Relentless and crowding.
It’s hard to breathe.
They’ll give you the disease, then they’ll sell you the cure to set you free.

Modern Life is War - Takk fyrir mig……

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

January 24th, 2006 by admin

Er ríkisstjórnin óvinurinn?
Hvenær er hægt að segja sem svo að björninn sé unninn?
Umboðsmaður alþingis er skíturinn.
það einnig virðist svo vera að skrattinn sé dottinn í brunninn
og sopinn til sjávar runninn.

Jakkalakkar eru ekki allir þar sem þeir eru séðir

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

January 20th, 2006 by admin

ég hef strax ákveðnar efasemdir með þessa hugmynd mína að smella einni mynd á dag hérna á vefinn og þá sérstaklega sökum anna við dagleg störf og því kannski verður afraksturinn eitthvað í slakari kantinum:/.
það slítur ægilega sundur fyrir manni daginn að þurfa að mæta til starfa.
En saaaamt verður maður að halda þetta út í allavega mánuð.

Viðbót: eða EKKI!

Posted in Uncategorized | 8 Comments »

DV

January 15th, 2006 by admin

Mér er enn í fersku minni þegar rokkhljómsveitin Mínus steig á stokk á stóra sviðinu á austurvelli, þjóðhátíðardaginn 17. júní síðastliðinn.

Söngvari sveitarinnar sem er best þekktur sem Krummi í Mínus tók upp eintak af því vægast sagt umdeilda sorpriti DV, bar eld að og lét eftirfarandi orð falla með mikilli áherslu……Djééé Vaffff, ……Ekki lesa …..Ekki kaupa..
Svo svona til að leggja enn frekari áherslu á fyrirlitningu sína á blaðinu þá stappaði hann stígvéluðum fótum sínum á leifarnar.

Í gær aftur á móti virtist þessi sami Krummi vera búinn að taka umræddan fréttamiðil í sátt, það var allavega ekki að sjá annað en að hann hefði tekið vel á móti Blaðamann og ljósmyndara blaðsins og meira að segja var elduð dýrindis máltíð í því tilefni.

Ætli Krumma hafi bara verið svona illa við Mikael Torfason Meintan morfínfíkil og ofstækismann sem allir vita að hefur sagt starfi sínu sem ritstjóri DV lausu, eða var hann kannski bara búinn að gleyma þessari andúð sinni í hita athyglinnar?

Það er gott til þess að hugsa að hugsjónamenn séu samir við sig!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

January 13th, 2006 by admin

Ég skulda milljón í banka og ég bý inn í vogum, með barþjón hann færir mér súrmeti í trogum á jólum og páskum og játa með soghljóðum að Jón gamli það sé það besta……
- Megas

Ok svo ætla ég að byrja á þessu Photo a Day dæmi um komandi helgi!

Posted in Uncategorized | 3 Comments »

Chicks with big Breasts

January 11th, 2006 by admin

Er ég sá eini sem sé kómíkina í þessari Frétt?

Hvers vegna mega kjúklingarnir ekki vera barmmiklir líka?
Einhvern veginn finnst mér ómögulegt að taka þessa konu alvarlega hversu mikið sem ég reyni….

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

eitthvað að mis

January 9th, 2006 by admin

Eitthvað hefur skolast til í heimildaöflun þeirra Fréttablaðs manna þegar þeir birtu frétt þess efnis að Nick Cave hefði troðið upp sem leynigestur á tónleikum í Laugardalshöll síðastliðið Laugardagskvöld.
Enda held ég að Cave sé hatrammur stóriðjusinni og myndi aldrei láta kenna sig við svona vitleysu!

Tónleikarnir voru samt sem áður vel heppnaðir og tel ég líklegt að ég hendi seríu af myndum frá þessu tækifæri á netið jafnvel strax í kvöld.

Þess má geta svona aukreitis að raforkukostnaður fyrir kvöldið hleypur eflaust á þriðja hundrað þúsund, ásamt því sem velflestir listamennirnir sem komu þarna fram og sjálfsagt gestir líka þömbuðu öl úr áldósum í talsverðu magni……..sagði einhver tvískinnungur?

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

af Gestrisni og Mannasiðum

January 6th, 2006 by admin

Tarantino ætti að skammast sín að drulla svona yfir gestrisni íslenskra stúlkna í opinberum fjölmiðlum.

Ég veit ekki betur en að fjöldi fólks hafi lagt sig í líma við að gera dvöl hans hér á landi sem eftirminnilegasta, en þó er ekki að sjá annað en að efst í skítugum huga hans séu einhverjar ólukkudrósir sem honum tókst að véla til sóðalegra athafna sem hæfa fólki af hans sauðahúsi.

Ég óska því hér með eftir því við lögregluembættið á keflavíkurflugvelli að hann verði settur á lista yfir óæskilega gesti og verði hér eftir meinaður aðgangur að landinu rétt eins og vítisenglum og öðrum fjöndum sem koma til að slátra og eyða.

Það hryggir mig verulega að þessi ágæti kvikmyndagerðarmaður skuli ekki vera betur að sér í mannasiðum en raun ber vitni.

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

Símaskráin

January 5th, 2006 by admin

nú reynir á samstarfsvilja þeirra Já manna sem starfrækja símaskránna.

Beiðni hefur verið send þess efnis að skrá mig undir starfsheitinu ljósnyndari, og bíður hún úrvinnslu.
Þetta er hluti af markaðs og áróðursherferð félagsins sem hyggur á mikla framsókn á árinu 2006!

Posted in Uncategorized | 5 Comments »

« Previous Entries