Plötualbúm Ársins

December 31st, 2005 by admin

Mér finnst nú alveg magnað að sorpritið Sirkus skuli hafa útnefnt hómóerótíska plötualbúm þeirra Trabant manna besta albúm ársins, sérstaklega í ljósi þess að ég hér fyrir stuttu vakti athygli á gömlu albúmi sem er lygilega líkt og vermdi sæti á lista yfir verstu albúm allra tíma.
Satt að segja finnst mér Orleans albúmið skárra svei mér þá.
Er lágkúran að komast í tísku?

Svo ég viðri mínar skoðanir á málinu þá held ég að Sigurrós eigi flottasta íslenska plötualbúm þessa árs sem nú er að renna sitt skeið.

Rassgat!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

December 28th, 2005 by admin

Jólin eru búin það liggur ljóst fyrir.
Einnig er á tæru að vefur þessi hefur verið óvirkur frá því fyrir jól af tæknilegum ástæðum sem ekki verða raktar hér að svo stöddu.
Ekki liggur fyrir hversu margir sáu sér enga aðra leið færa en að taka sitt eigið líf í fjarveru vefsins, en það ætti að skýrast nú þegar líður á daginn.

Ítarlegur áramótaannáll og önnur hefðbundin leiðindi verða að bíða betri tíma, en alter ego mitt lifir þrátt fyrir hrakfarir og tvísýnt átstand um tíma!

Góðar Stundir

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Vísindi

December 14th, 2005 by admin

Ég varð alveg hlessa í dag þegar ég komst að því að engin af vinnufélögum mínum vissi hvað “vaginal rejuvenation” væri.
Segiði svo að maður viti ekki eitt og annað sem kynni að vera bryddað upp á í fínum samkvæmum meðal betri borgara.

Reyndar er ég alveg bit á því að procedure sem þetta skuli ekki hafa fagnað meiri vinsældum hér á landi en raun ber vitni, eins hégómagjörn þjóð og við erum, sbr alheimset í kísilbrjóstum svo eitthvað sé nefnt.
Ég sé hæglega fyrir mér stofnun sem gæti borið það alþjóðlega nafn “Vaginal Rejuvenation Institute of Iceland” sem myndi skila methagnaði frá fyrsta ári í bissness, og Íslenskar konur gætu loksins fengið ómetanlegt tækifæri á að upplifa hvernig er að vera með það sem kallast á fagmáli Designer Vagina!

Góðar Stundir

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

December 13th, 2005 by admin

Forsíðan á nýjasta tbl Stúdentablaðsins eftir Jón Pál Halldórsson er mér að skapi.
Skemmtileg tilbreyting frá ljósmyndum sem yfirleitt prýða forsíður blaða af þessu tagi.

Þess ber einnig að geta að Jón þessi heldur úti heimasíðu á vefslóðinni www.jon-pall.com þar sem sjá má ýmis verk eftir þennan mikla snilling, en hann hefur m.a fengist við að flúra húð, t.d á undirrituðum.

Stórkostlegur grafíklistamaður þarna á ferð!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Miss World

December 12th, 2005 by admin

Mig langaði til að rausa einhver ósköp um þann umdeilda titil sem ungfrú heimur óumdeilanlega er, er en ákvað þess í stað að vitna í Baggalút í þessu sérstæða máli.

“Í stuttu og hálf móðursýkislegu spjalli við Baggalút náði Unnur að stynja því upp milli ekkasoganna og grátkastanna að sigurinn væri sér afar dýrmætur og án efa stökkpallur fyrir sig inn í eftirsóknarverðan heim hinna ríku og frægu.

Áður hafa þær Hólmfríður Karlsdóttir, leikskólakennari og Linda Pétursdóttir, einstæð móðir, hreppt þennan sama titil.”

Þetta finnst mér segja allt sem segja þarf!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Shellac

December 9th, 2005 by admin

Þessa dagana er fátt annað en feitmeti með súpergrúppunni Shellac sem ratar í mín eyru.
Fyrir þá sem ekki vita þá skipar þá sveit enginn annar en snillingurinn Steve Albini, sem hefur tekið upp ekki ómerkari menn en Nirvana og Ensími svo eitthvað sé tiltekið.

Norskur ráðgjafi minn í subbutónlist á allan heiður af þessari uppgötvun minni.
Ég hreinlega stenst ekki freistinguna að deila með ykkur einu lagi með sveitinni og má nálgast það Hér fyrir þá sem áhuga hafa.

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

Hugvekja

December 6th, 2005 by admin

Við búum í kristnu þjóðfélagi hvort sem okkur líka betur eða verr.
Margt af því sem við tökum okkur fyrir hendur og teljum sjálfsagt er byggt á kristnum grunni eða einhverju sem kirkjan bjó til.

Fermingar, giftingar, skírnir, jarðarfarir og slíkur ófögnuður er kirkjunnar stöff.
Svo er til eitthvað sem heitir lífsspekifélagið (eða eitthvað svoleiðis) sem hefur predikað svokallaðar borgaralegar fermingar sem verða sífellt vinsælli.
nú aftur á móti tala þessir menn digurbarkalega um borgaralegar giftingar.
Þetta finnst mér furðulegur fjandi og á erfitt með að henda reiður á hvað fólk sem hefur ákveðið að segja skilið við kirkjuna, hennar gildi og hefðir, skuli sjá þörf fyrir að halda í hefðir sem eru hákristnar.
Ekki það að fólk hafi ekki látið pússa sig saman fyrir tíð kirkjunnar en fermingar voru að mínu viti ekki til í heiðindóm nema þá kannski í formi einhversskonar manndómsvígslu en þá fékk fólk enga helvítis pakka og umslög með peningaseðlum.

Svo mætti nú alveg banna fólki sem ekki stenst kristnifræðipróf á c.a fimm ára fresti að halda upp á jól, slíku banni yrði hæglega fylgt eftir með ströngu eftirliti lögreglumanna dulbúnum sem jólasveinar.

Er kannski tími til kominn að afnema hina íslensku þjóðkirkju og innleiða eitthvað allt annað og árángursríkara?

They say there´s enough religion in the world to make men hate each other, but not enough to make them love. - Louis Cyphre

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

December 5th, 2005 by admin

Pælingin var að tauta um tölvur …….
Hver hefur gaman af því fyrir utan einhverja tölvunörda?
Er líf mitt virkilega svo sneytt öllu sem gæti þótt áhugavert að það eina sem kemur upp í huga mér er nýja tölvan mín.

Hvað með svöngu börnin í afríku, nú eða bara í Reykjavík?
Eiga þau tölvur?
stendur þeim ekki bara á sama?

Ég er held ég nokkuð viss um að lífshamingjan er ekki fólgin í Fartölvum hversu öflugar sem þær kunna að vera en mikið helvíti er samt gaman að þeim!

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

For better of for worse

December 2nd, 2005 by admin

Gaman að bera saman fimmta versta plötualbúm allra tíma við albúm nýjustu breiðskífu Trabant manna.

annars má finna 10 verstu albúm cover allra tíma Hér

Hvort finnst ykkur betra (verra)?

Þetta skúbb er í boði Stalín

Posted in Uncategorized | 1 Comment »