November 29th, 2005 by admin

Til að fyrirbyggja misskilning og að koma í veg fyrir að fólk haldi að ég sé að reyna að eigna mér texta eða annað sem ég birti hér á vefnum uppljóstra ég hér með að þegar um skáletraðan texta er að ræða þá er það fengið að láni, oftast frá stórkostlegum tónlistarmönnum sem hafa haft mismikil áhrif á mislukkað líf mitt.

Það að ég skuli ekki nefna höfund í slíkum tilfellum má kannski segja að sé tilefni til að halda að ég sé að gefa mig út fyrir að vera snillingur en svo er alls ekki!

Góðar Stundir

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Hljómsveitarnöfn

November 29th, 2005 by admin

Ok ég rakst á einhverja úttekt á vondum og góðum hljómsveitarnöfnum í held ég Sirkus þar sem eitthvað einvala lið snillinga lét ljós sitt skína hvað þetta mál varðar, ansi skemmtileg lesning.
Þar sem ég hef smávegis verið í hljómsveitum þá veit ég hversu ömurlegt það getur verið að finna nafn á slíkan hóp, þannig að það er alls ekki sjálfgefið að vel takist til.

Mig langar að koma með smá úttekt á hvaða nöfn mér finnst flott og hvers vegna.

Purrkur Pillnikk: einfaldlega besta íslenska hljómsveitanafn sem ég hef séð ásamt því að vera æðisleg hljómsveit.

Vonbrigði: svínvirkar bara jafnvel þótt kombakkið geri það ekki.

Sólstafir: mystískt og töff sem passar vel við tónlistina.

Ensími: einfalt og töff

Mínus: gælunafn á heróíni? einfalt er málið!

Hvaða nöfn eru að gera sig fyrir þig?

Posted in Uncategorized | 7 Comments »

the Dead Flag Blues

November 28th, 2005 by admin

The skyline was beautiful on fire
all twisted metal stretching upwards
everything washed in a thin orange haze

I said: “Kiss me. You´re beautiful
these are truely the last days”

You grabbed my hand and we fell into it
like a daydream or a fever.

We woke up one morning and fell a little further down
for sure it´s the valley of death

I open my wallet
and it´s full of blood!

Posted in Uncategorized | 3 Comments »

Last in line for the gang bang

November 23rd, 2005 by admin

Hver kannast ekki við að vera númer 30 í röðinni í þjónustusíma Símans sem við seldum um daginn…..
Aftur á móti hlýtur að vera lítið að gera á Þingi þegar það fólk sem þar starfar hefur ekki um annað að tala en það sem allir vita.

Kannski þetta verði til að bæta þjónustuna?

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Veð-mál

November 23rd, 2005 by admin

Ég held það borgi sig að hafa ykkur lesendur mína til vitnis um veðmál sem ég og háttvirtur Sigurjón höfum náð samningum um….

Það er s.s þannig í pottinn búið að sá okkar tveggja sem lýtur í lægra haldi í Free study keppni sem fyrirhuguð er á DPChallenge mun verða krafinn um pulsu og kók á einhverjum af betri sölustöðum slíks varnings hér á höfuðborgarsvæðinu.

Myndin sem ég hyggst láta þreyta þessa keppni, og vonandi tryggja mér fría pulsu verður aftur á móti ekki gerð opinber fyrr en að keppni lokinni en þess má aftur á móti geta að mér finnst hún með eindæmum sigurstrangleg.

Íslendingar éta SóðaPulsur

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Flock

November 17th, 2005 by admin

Full ástæða til að fylgjast með www.flock.com í framtíðinni.

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

Nostalgía

November 14th, 2005 by admin

Í framhaldi af því að dást að nýja vefnum hjá Árna og upprifjun hans á glæstum ferli hans í blogheimum datt mér í hug að skyggnast aftur til þess tíma er ég sjálfur hóf þessa ógeðslegu iðju.

Óhugnaðurinn hófst s.s þann 17. nóvember það herrans ár 2002 á eftirfarandi orðum:

Því ekki að deila með landanum einhverri af þeirri alkunnu snilld sem hreinlega vellur úr öllum vitum á mér og hefur gert mér kleyft að halda áfram að draga andann í þessu annars vonlausa samfélagi vitleysinga og hálfvita

Sitt sýnist hverjum um þetta og reyndar allt það sem á eftir fylgdi en það eru s.s þrír dagar í að þrjú ár séu síðan þessi firring hófst og sér ekki fyrir endan á.

p.s þessa sögufrægu færslu má sjá í allri sinni dýrð Hér og þarf vart að taka fram að þetta var fyrir tíma prom v1.0

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

November 14th, 2005 by admin

Hvað vakir fyrir mönnum sem stunda þá vafasömu iðju að Ríða húsum
Er þjóðfélagið á beinni leið til vítis?

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Númer Núll

November 11th, 2005 by admin

ég er að fíla Þetta lag hjá Gesti Guðnasyni og félögum í súpergrúppuni Númer Núll.

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Núverandi ástand.

November 10th, 2005 by admin

núverandi tími: 11:24

núverandi föt: Svartur alklæðnaður að hætti Johnny Cash

núverandi skap: Þolanlegt

núverandi hár: Fallegt

núverandi pirringur: Enginn

núverandi lykt: Ilmurinn af PCB

núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera: Vinna

núverandi skartgripir: Engir

núverandi áhyggja: Bilaðar tölvur

núverandi löngun: Taka við heildsölunni hans pabba

núverandi ósk: Verða forseti BNA

núverandi farði: Chanel nr:15

núverandi eftirsjá: að hafa látið plata mig út í þetta

núverandi vonbrigði: að vera ekki forseti BNA

núverandi skemmtun: Dr Spock

núverandi ást: Heiða Helgadóttir

núverandi staður: Kópavogur

núverandi bók: Handbók sósíópata 101

núverandi bíómynd: síðast var það Hostage vella með Bruce Willis

núverandi íþrótt: það er vetrarfrí

núverandi tónlist: Dr Spock


núverandi lag á heilanum:
Suckmycockspockyoufuck

núverandi desktop mynd: Jane Doe af Convergecult.com

núverandi áætlanir fyrir kvöldið: þrífa íbúð sem ég var að skila af mér mér til mikillar gremju

núverandi manneskja sem ég er að forðast: Ésú

núverandi dót á veggnum: hillur

Ég ætla bara að láta það vera að klukka einhvern og halda þessum leik áfram af þeirri einföldu ástæðu að ég er ekki nógu vel að mér í blogfræðum….
Rétt er þó að taka fram að þetta er allt saman honum Sigurjón vini mínum að kenna:p

Takk fyrir mig

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

« Previous Entries