October 26th, 2005 by admin

Ég er búinn að fá nóg af þessu kattadóti hérna efst …..
Í sárabót fyrir þennan viðbjóð ákvað ég að henda nokkrum myndum frá Airwaves inn í galleríið og má finna þær Hér
Kannski meira seinna ef ég nenni……

Posted in Uncategorized | 3 Comments »

Myndir

October 14th, 2005 by admin

Eitthvað hefur lítið ratað spennandi á sensorinn hjá mér að undanförnu en engu að síður ákvað ég að setja nokkrar nýjar myndir hérna á vefinn.

Albúmið heitir einfaldlega haust og eru fyrri tvær myndirnar úr smá rúnt sem ég tók um suðurlandið um dasginn og seinni tvær úr svaðilför sem ljósmyndanördar sem sækja vefinn ljosmyndakeppni.is fóru í landmannalaugar.

Góðar Stundir

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

October 12th, 2005 by admin

Við eigum ekki að bjóða syndinni í kaffi, við eigum að segja burt með þig, mér býður við þér þú ert viðbjóður.
Ég vil ekki sjá þig nálægt húsinu mínu!

Einnig er gott að Hata ………………………..ranglætið.

Posted in Uncategorized | 3 Comments »

October 11th, 2005 by admin

Ég var að pæla í hvort einhverjir sem villast hingað inn væru í einhverjum vafa um hvernig þessi ágæti vefur virkar?
Einn benti mér á að honum þætti ekki vera nógu augljóst hvernig rata megi í myndagalleríið…….

allavega skal smellt á smettið á mér hér til vinstri til að komast í myndrænu ruslakompuna, og á “zeranico.com” þar fyrir ofan til að komast Heim…..Kannski verður þetta betra seinna hver veit……Pælingin er allavega að gera einhverjar breytingar á næstunni varðandi útlit vefsins og hugsanlegt að myndir verði vatnsmerktar með logoi en ágætur listamaður hefur boðist til að útbúa slíkt.

Posted in Uncategorized | 3 Comments »

Dótakassinn

October 8th, 2005 by admin

Það er alltaf gaman að kaupa sér nýtt dót….

Nýlega keypti ég mér linsu sem hefur eiginlega verið draumalinsan mín frá því ég fékk ljósmyndadellu (24-70mm f/2.8L fyrir nördana) og svo í gær fékk ég mér aðra sem var nokk ofarlega á óskalistanum (17-40mm f/4.0L).
Svo það verður erfitt að kenna vondum linsum um lélegar myndir lengur.

Spurning samt hvort ég þurfi ekki að fara að kaupa Ás?

Posted in Uncategorized | 9 Comments »

af Sjálfrennireiðum og Svikahröppum

October 6th, 2005 by admin

Sjálfrennireiðar eru líklegast í dag þarfasti þjónn mannsins og kemst maður illa af án slíkrar græju í nútíma þjóðfélagi.
Þetta dót er aftur á móti helvítis drasl og á til með að bila þegar þess er síst von.

Um dagana lenti ég einmitt í því að druzlan sem kemur mér jafnan á milli staða tók upp á því að hætta að vilja keyra.
Ég eins og sannur meðalmaður fór með dótið til þartilgerðs læknis sem kvað upp stóra dóminn.
Tímareimin er farinn, og þetta kostar á vel á annað hundrað þúsund Sagði þessi virti læknir og var ekki laust við að það glitti í dollaramerki í augum mannsins.

Eins og flestir vita þá kemst maður skammt án þess að þekkja mann sem þekkir helst annan mann sem getur bjargað málum með svörtum lit og þar fram eftir götum og strætum svo það var brugðið á það ráð að fara með hræjið til slíks manns.

Þegar sá maður skoðaði aftur á móti rennireiðina kom í ljós að umrædd reim var ekki einu sinni til staðar í þessu módeli heldur keðja og var hvergi bilbug að finna á henni.
Kostnaðurinn var því ekki vel á annað hundrað þúsund heldur innan við hálft hundrað brynjólfa mér til ómældrar gleði.
Aftur á móti er ég að spá hvort ég sendi austurevrópska glæpahunda í heimsókn til læknisins sem hugðist gera mig talsvert fátækari en ég fyrir er……….

Mikið væri nú gott ef við notuðum bara hesta til að komast á milli staða, það myndi einfalda málið alveg heilmikið!

Posted in Uncategorized | 3 Comments »