September 27th, 2005 by admin
Þegar ég var barn og lék mér við önnur börn kom stöku sinnum fyrir að eitthvað slettist upp á vinskapinn.
Einhverju sinni langaði mig einhverra hluta vegna ekki að leika við einn jafnaldra minn meira og brást hann heldur illa við þeirri höfnum minni, og tók upp á að kasta í mig grjóti líklega til að leggja áherslu á gremju sína.
Þegar ég óx úr grasi hættu þessi grjóköst að mestu kannski sem betur fer og siðaðri samskipti tóku við.
Einu sinni voru Jón Gerald Sullenberg og Jón Ásgeir Jóhannesson voðalega góðir vinir og léku sér saman með peningana sína í sátt og samlyndi.
Eitthvað slettist upp á vinskapinn sem ég kann sem betur fer ekki að skýra nánar, en afleiðingin er a.m.k sú að upphófst mikið grjótkast sem ekki sér enn fyrir endan á.
Margir hafa ákveðið að taka þátt í þessu grjótkasti og má segja að einhverskonar grjótregn standi nú yfir í íslenskum fjölmiðlum og víðar út af þessu sérstæða máli……..
Endemis rugl segi ég og skrifa!
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
September 27th, 2005 by admin
Mér finnst einkar fyndrænt að sumt fólk skuli að því er virðist skipta um gír og koma fram við mig eins og ég sé stórkostlega fatlaður þegar það uppgötvar að ég drekk ekki brennda og bruggaða drykki……..
Mér finnst t.d fólk sem borðar ekki rúgbrauð svaðalega skrýtið og passa mig að minnast alls ekki á slíkan varning, og hvað þá neyta hans í viðurvist þessháttar einstaklinga
er það kannski svipað?
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
September 26th, 2005 by admin
Mér finnst alger synd og skömm að engin skuli hafa komið í verk að koma textum meistara Megasar á tölvutækt form og aðgengilegt um lýðnetið…….
Ég sé fyrir mér ófáar gleðistundir við að glugga í alla þessa snilld.
Spurning að verða sér úti um þetta og ráðast í verkið.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
September 23rd, 2005 by admin
Hún á ammæli í dag
Hún á ammæli í dag
Hún á ammæli hún Heiða
Hún á ammæli í dag!!!
Vei vei vei!!!!
Þess má til gamans geta að notendur dpcallenge lögðust á eitt og lyftu Heiðu upp í áður ókannaðar hæðir hvað varðar vinsældir notanda þar á bæ og er hún nú fyrst til að státa af því að hafa verið valin sem uppáhalds ljósNyndari af eitt þúsund notendum þessa umdeilda vefs.
Enn og aftur Til Hamingju Heiða!
Posted in Uncategorized | 5 Comments »
September 22nd, 2005 by admin
Hvað er list?
Er grámygla tilverunnar kannski bara enn eitt listaverkið sem við skiljum ekki?
Mér finnst afar teygjanlegt hugtak að vera listamaður/kona og finnst mörkin á milli þess að vera það eða vera það ekki liggja alveg ljóst fyrir.
Ég hef kosið að kalla sjálfan mig ýmislegt í gegnum tíðina en aldrei listamann, af ástæðum sem mér eru ókunnar….
Samt er ég að hugsa um að sækja um listamannalaun frá ríkinu á þeim forsendum að ég sé bull-listamaður, og er ég mjög bjartsýnn á að fá jákvæð viðbrögð.
Ert þú Listamaður?
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
September 20th, 2005 by admin
I need a purpose I need a reason
I need to know that there is trophy and meaning
To all that we loose and all that we fight for
To all our loves and our wars
Keep breathing
Keep living
Keep searching
Keep pushing on
Keep bleeding
Keep Healing
Keep fading
Keep shining on
This is for the hearts still beating!
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
September 19th, 2005 by admin
Það er af sem áður var að ég drullaði hverri færslunni á fætur annari á þennnan vef eins og ég ætti lífið að leysa.
Fólk sem talar mikið en segir samt ekki rassgat ætti frekar að halda kjafti og hlusta, en það er einmitt það sem ég hef ákveðið að reyna að temja mér……svo kannski ákveð ég eitthvað annað á morgun.
Allavega hefur bæst ein portrait mynd hérna á vefinn en sú mynd þreytti keppni á dpchallenge undir þeim skemmtilega titli Ronin og endaðí fjórða sæti..
Einhver spurði hvort ég væri dauður, en því miður er það ekki svo gott og mikil ósköp hlakka ég til
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
September 12th, 2005 by admin
Hver kannast ekki við það að skæla ofan í matinn sinn
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
September 8th, 2005 by admin
Ég má til með að benda öllum sem halda að þeir viti eitthvað um músík á að hlusta á Þetta
Þetta er eitthvað það svakalegasta sem ég hef heyrt um dagana.
þessi skítur er í boði sigurjon.com
Posted in Uncategorized | 6 Comments »
September 5th, 2005 by admin
Hver hefur ekki séð bandarískar stórslysamyndir, sem lýsa baráttuhug og samstöðu þessarar stórkostlegu þjóðar þegar hætta steðjar að, og skiptir þá einu hvort um er að ræða náttúruhamfarir eða innrás frá öðrum hnöttum.
Herinn er venjulega kominn á staðinn í tæka tíð með allan þann herafla sem hugsanlega gæti þurft til að leysa viðkomandi vanda og berjast allir í samheldni og óendanlegum kærleik til föðurlandsins hermenn jafnt sem óbreyttir borgarar til síðasta manns.
Rauveruleikinn er aftur á móti ekki svona fallegur.
á ögurstundu tekur fólk til við að kála hvort öðru og huga að eigin velferð og öryggi framar öðru……það er t.a.m enginn rómantískur bragur yfir New Orleans þessa dagana eins og var í bíómyndinni sem var á stöð 2 áðan. (Myndin hét því frábæra nafni 10.5 á Richter fyrir þá sem hafa áhuga)
Sjáiði fyrir ykkur haferíið í t.d kringlunni ef neyðarástand myndi skapast hér í borginni?
Posted in Uncategorized | 1 Comment »