Update

August 24th, 2005 by admin

Eitthvað hefur bæst við af myndum í galleríið, þ.á.m nude sería sem ég skaut nú um daginn.

Posted in Uncategorized | 8 Comments »

haaaa

August 15th, 2005 by admin

Ok það er Nude keppni á DPChallenge
umsóknir um stöðu sem módel mitt óskast sendar á zeranico@gmail.com :D

Þess ber einnig að geta að í dag eru liðin 10 ár síðan samtsteypan sagði upp viðskiptasamning við ÁTVR og aðra sem versla með hugbreytandi efni.

Posted in Uncategorized | 7 Comments »

Leiðindi

August 12th, 2005 by admin

Ég held að það sé óhætt að fullyrða að Guðmundur Steingrímsson sé án nokkurs vafa leiðinlegasti sjónvarpsmaður sem birst hefur á skjánum og er ég þá ekkert að gleyma Gísla Martein.

Posted in Uncategorized | 3 Comments »

Ribbon day

August 8th, 2005 by admin

Gaman að segja frá því að ég og Heiða rúlluðum upp nýafstaðinni keppni á DPChallenge
Enn skemmtilegra í ljósi þess að ég sagði í votta viðurvist þegar keppnin var að hefjast að við myndum taka fyrstu 2 sætin sem varð einmitt raunin.

“HEINEKEN!!! Fuck that shit!! Give me Peps Blue Ribbon”

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

Almenn leiðindi

August 4th, 2005 by admin

sem áhugamaður um ljósmyndun og netverji mikill stunda ég talsvert spjallborð um slík málefni bæði innlend og erlend
Ekki mikið nema gott um það að segja ef frá eru taldar þrálátar umræður um ákveðin málefni sem virðast taka sig upp aftur og aftur og frá mismunandi vinklum eins og skæður vírus.

Lengi vel var LCD vs CRT vinsælt og dreifði sér eins og eyðni um ljósmyndarasamfélag alnetsins og er enn við talsvert góða heilsu mér og sjálfsagt fleirrum til ómældra leiðinda.
Annað subject sem einnig er fúlara en pestin sjálf en það er klassíska umræðan um hvort sé hentugra í vinnslu stafrænna mynda PC tölva eða Apple Macintosh tuðra.
Spjallþræðir um þessi málefni eru dæmdir til að verða bæði langir og alveg óendanlega tilgangslausir, rétt eins og gosdrykkjaáhugamenn myndu þrátta dægrin löng um hvort væri nú heillavænlegra hið klassíska Coke eða hið ekki eins vinsæla Pepsi….

Eitt kann þó að vera tilganslausara og leiðinlegra en þræðir sem þessir, en það einmitt er þetta tuð um þá!

Posted in Uncategorized | 4 Comments »