July 28th, 2005 by admin
Auglýsingaáróður tengdur verslunarmannahelginni er nú í hámarki.
Aldir ljósvakans keppast um að segja þér hvar mesta stuðið verði, á milli þess sem því er komið að það að sé ljótt að nauðga.
Mér finnst þau hálf fyndin þessi slagorð gegn nauðgunum sem ganga fjöllum hærra fyrir þessa helgi ár hvert og maður veltir fyrir sér árangrinum.
Ég sé fyrir mér sauðdrukkinn ungling sem er rétt í þann mund að svívirða stúlku á líkum aldri sem liggur áfengisdauð í grasi gróinni brekku, en dokar við og man eftir því að Nei þýðir nei og nauðgun sé glæpur.
Allt líf hans rennur fyrir augum hans og hann gerir sér ljóst að hann er í þann mund að fara að gera eitt af stærstu axarsköftum lífs síns.
í stað þess að ná fram kynferðislega brengluðum vilja sínum á stúlkunni kyssir hann hana ofurlétt á ennið og dansar inn í nóttina hamingjusamari en nokkru sinni fyrr.
Lifi áróðursmaskínan
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
July 26th, 2005 by admin
Ég skildi ekki þá
Ég skil ekki enn
En ég skil þó að stundum eru menn ekki menn.
Merkilegt nokk þá dreymdi mig þetta lag í nótt sem leið.
Með stýrur í augum vafraði ég um króka og kima alnetsins og viti menn lagið er til á stafrænu formi Hér
Njótið
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
July 23rd, 2005 by admin
Flokkun á myndum í galleríinu hefur enn frekar verið einfölduð, og er nú einungis um 3 flokka að ræða.
Einhvernveginn verð ég fljótt leiður á þessum myndum og oftast ekki nema kannski ein sem mér finnst standa uppúr hverri seríu þegar um er að ræða seríur….
Þó finnst mér líklegt að ég hendi inn seríum áfram og leyfi þeim að standa á meðan ég er að fá ógeð á þeim og pikka eina sem mér finnst skást og set í þann bás sem viðeigandi þykir.
Ef ske kynni að einhver hefði áhuga á ljósmyndun minni þá bendi ég á profíla mína á annarsvegar dpchallenge og hinsvegar photo.net en þeir eru hlekkjaðir hér til vinstri…..
Lifið Heil
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
July 23rd, 2005 by admin
Þessa dagana fer um eins og eldur í sinu vírus sem sýkir kommentakerfi á blogsíðum netverja.
Talið er að hann sé af norskum uppruna og má helst þekkja hann á sóðalegum myndum sem hann gjarnan skilur eftir sig í fyrrnefndum kerfum.
Sérfræðingar vinna nú hörfðum höndum við að ráða niðurlögum þessa andskota og eru allar ábendingar um hvað gæti helst borið árangur við þessar nornaveiðar vel þegnar.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
July 18th, 2005 by admin
Útgáfa fyrstu skífu hljómsveitarinnar Lights on the Highway er að verða að raunveruleika.
Sennilegt þykir mér að þarna sé á ferðinni ein besta plata ársins en þó kann að vera að ég sé hlutdrægur.
Fyrir mér er þetta stórmerkileg útgáfa fyrir þær sakir að umbúðirnar prýða ljósmyndir sem teknar voru af mér.
En mergurinn málsins er samt sem áður sá að skífan er væntanleg í verslanir eftir helgi og fyrirhugaðir eru útgáfutónleikar á fimmtud í næstu viku á Gauk á stöng.
Ég vil nota tækifærið og óska piltunum í Lights on the Highway til hamingju með stykkið jafnframt því sem ég hvet ykkur til að mæta á gaukinn á fimmtud
Lights on the Highway.com
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
July 14th, 2005 by admin
Angurværir tónar Without Gravity hljómuðu á einu öldurhúsi bæjarins í kvöld.
Einhvernveginn kunni ég betur við fyrra nafn sveitarinnar en svo sem skiptir það engu höfuðmáli.
Þegar ég var ungur maður og áhugasamur um breytingu á ástandi hugans kom fyrir að ég andaði að mér eitruðum reyk mér til dægrarstyttingar sem kannski kemur málinu ekki við að öðru leyti en því að mér þykir tónlist þessi bera keim af þessu skemmtilega ástandi sem kom í kjölfar þessarar reykneyslu.
Endalausar tengingar í eitrunarástand hugans kunna að koma einhverjum einkennilega fyrir sjónir en þannig er það nú bara og finnst mér tónlist þessari best lýst á þennan hátt.
Nýjasta afurð þessara pilta hefur fengið mikla spilun á mínu heimili og var þetta því kærkomin og góð skemmtun fyrir þær sakir, að ógleymdum nýjum lögum sem flutu með og lofa góðu.
Tóndæmi má finna á slóðinni withoutgravity.net
Það er gaman til þess að hugsa að það eru ekki nema fáein ár síðan mér fannst íslensk tónlistarmenning í heild sinni vera argasta sorp og lágmenning, en í dag gæti ég sjálfsagt nefnt hátt í tylft íslenskra hljómsveita og tónlistarmanna sem falla mér einkar vel í geð.
Spurning hvort ég hafi þroskast eða bara sýkst af soranum?
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
July 11th, 2005 by admin
er ég gay ef mig langar að sofa hjá þessum manni?
Posted in Uncategorized | 5 Comments »
July 7th, 2005 by admin
I started thinking about London
How nothing good ever came from this town
And if the Thames werent so filthy
I would jump in the river and drown.
Einhverra hluta vegna kom þetta textabrot upp í huga mér í dag.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
July 6th, 2005 by admin
Það var óvænt ánægja að fá að smella nokkrum myndum á Foo Fighters og Queens of the stone age í gærkveld.
Kannski sería bráðum.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
July 3rd, 2005 by admin
klingur í teskeiðum.
skvaldur.
þefur af áfengi, og skítugu fólki.
rigningin úti gerir það að verkum að túristarnir sveipa sig regnkápum sem þeir keyptu á uppsprengdu verði sjálfsagt í einhverri sjoppuni við þjóðveginn, en þeir eru glaðir í bragði.
Þeim kannski finnst rigningin góð af einhverri undarlegri ástæðu sem mér er ókunn.
Ég veit allavega að dagurinn í dag er einum vini mínum stórkostlegur og verður í minnum hafður svo lengi sem hann og hans nánustu lifa.
Kraftaverkin gerast enn þann dag í dag, og má segja að þau gerist á hverjum degi.
Fólk fæðist og deyr jafnt í dag sem og í gær.
Það er bara þegar einhver nákominn okkur gerir annað hvort sem töfrarnir eru áþreifanlegir
Til Hamingju með Daginn
Posted in Uncategorized | 3 Comments »