Er allt auðveldara á Mac?

June 30th, 2005 by admin

Það kemur í ljós núna þegar ég hef eignast mína fyrstu alvöru Apple tölvu!
So far so good.

Posted in Uncategorized | 3 Comments »

Roger That

June 28th, 2005 by admin

Með hækkandi sól og hagstæðu gengi á rúblunni hefur mér vaxið rolla um legg hvað ljósnyndun varðar.
Vanefnd loforð voru loksins efnd um helgina og má kannski eiga von á eitthvað af stafrænum bitum þjöppuðum saman í svokallað jpg snið hér á vefinn áður en langt um líður….

Hver veit svo nema ég fari að suða í fólki af öllum stærðum og gerðum í þessum ham um að lofa mér að fanga útlit þeirra á fyrrnefnt snið.

Yfir og út!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Cops on drugs

June 26th, 2005 by admin

ég myndi telja að þessir lögreglumenn væru frekar dópaðir á því bara…

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

June 24th, 2005 by admin

ef einhver veit um hugsanlega leið fyrir mig að verða mér út um gamla og úr sér gengna útstillingargínu þá yrði ég mjög þakklátur ef sá hinn sami mynda benda mér á slíkar leiðir annað hvort í athugasemdakerfinu hér að neðan eða bara í tölvupóst.

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Being human was OK, But being a cyborg has a lot more to offer

June 24th, 2005 by admin

Leiðist þér að vera meðalmaður/kona?
Finnst þér takmarkandi að vera af úrkynjaðri tegund Homo sapiens?

Hafðu ekki áhyggjur því Kevin nokkur Warwick kann að eiga svarið fyrir þig.
Kevin þessi ku vera heimsins fyrsta mannvera sem getur státað af því að vera svokallað Cyborg, eða að hluta til mannvera og að hluta vélmenni.
Kevin þessi er vísindamaður og hefur um alllangt skeið gert rannsóknir og tilraunir í málum sem þessum, og þegar síðast fréttist af kauða þá nægði honum að ganga inn í herbergi til að ræsa viðeigandi ljósabúnað sem jafnan er notaður til að sjá handa sinna skil.

Einnig hefur hann látið þær kenningar í veðri vaka að í umferð kunni að koma svokölluð Cyber Drugs sem dreift yrði um veraldarvefinn og með útvarpsbylgjum, og vitna ég hér beint í snillingin:
“The question is not whether virtual reality narcotics can be created, but how soon they can be put on the market.”

Svo vinur minn það er deginum ljósara að framtíðin er björt og full ástæða til að taka hverjum degi með fögnuð og gleði í hjarta.

Long live the Cyborgs

Áhugasömum er vinsamlegast bent á að skoða KevinWarwick.com

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Kristni 101

June 21st, 2005 by admin

Gaman að vita til þess að fólk sé enn að föndra við að Krossfesta hvert annað.

Spurning hvort ekki sé mál til komið að fara að reyna þetta á rumpulýð ýmisskonar sem hagar sér ekki skv bókstafnum?

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

June 20th, 2005 by admin

Hugsanlegt að það bætist við eitthvað af myndum en ég held ég hafi slysast til að taka kannski nokkrar góðar undanfarna daga.
Meðfylgjandi mynd er t.d eitthvað sem ég hef smekk fyrir enda módelið fyrsta flokks sem fyrr.

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Heimo

June 17th, 2005 by admin

Ok this is something I promised a friend of mine I´d do so please dont puke on me for trying to be somewhat of an internationalist for writing in english for the heck of it

I added a link to an American photographer called Heimo to the link section today and urge you to check out his work.
Among his work I found this photo wich I belive is taken somewhere here in Iceland not so long ago.

The problem is I´d like to know the exact location of that plane, and am willing to reward the one that can inform me of that with a handful of some of the best icelandic sweets.

Well that wasnt so hard, who knows I might do it again someday:p

Posted in Uncategorized | 3 Comments »

the Saab project

June 14th, 2005 by admin

Ég auglýsi hér með eftir mælaborðum úr öllum tegundum Saab bifreiða frá árgerð 1980 til 1990.
Planið er að flytja þau til Bandaríkjana og verða ríkur!

Þetta ku vera fyrsta skrefið í áttina að því að hætta að hugsa í hundraðþúsundköllum og byrja að hugsa í milljónum en það ku vera fengsæl leið til farsældar í fjármálum.

Einnig get ég tekið að mér að vera sérlegur ráðgjafi og samningamaður í viðskiptum með gamlar bifreiðar og skiptir þá engu hvort um er að ræða viðskipti með Saab eða aðrar evrópskar gæða bifreiðar

Lifið Heil

Posted in Uncategorized | 3 Comments »

Fagnaðarerindið

June 7th, 2005 by admin

Sem handhafi sannleikans hef ég ákveðið að deila Þessu með ykkur!
hlýðið á og fyrir yður munu opnast hlið sannleikans.

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

« Previous Entries