May 28th, 2005 by admin

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

hmmm

May 27th, 2005 by admin

Mér finnst nokkuð merkilegt að menn skuli fá harðari dóm fyrir áform um amfetamínsölu en að ræna 12 ára stúlkubarn sakleysi sínu

pedófíla á að senda í betrunarvist til bandaríkjana hjá Bóbó og vinum hans í ríkisfangeslsi kaliforníu t.d.

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

May 26th, 2005 by admin

Það stefnir í að ég fari að ljósmynda eitthvað mér til gamans nú á næstunni eftir eilítið hlé…
Ef vel tekst til má vera að eitthvað verði birt hér á vefnum!

Like baby needs mom
Like susie needs dick
This baby needs some new kind of kick
I want some new kind of kick
I´m looking for something I ain´t had before
I´m looking and looking to find some new kind of kick!

- © The Cramps

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Nýyrði

May 25th, 2005 by admin

það er ekki á hverjum degi sem maður heyrir ný íslensk orð sem eru bæði hljómfagur og meika sens, en slíkt gerðist nú á dögunum.

Orðið sem um ræðir er Töffingji og segir merkingin sig í raun sjálf.
Að vera Töffingji þýðir s.s að viðkomandi aðili sem orðið er notað um, er hæfileg blanda af því sem við í daglegu tali köllum annarsvegar Töffari og hinsvegar Aumingji

Þetta nýmæli í íslenskri tungu ku vera í boði aðila sem kýs að kalla sig Fixxxer en kýs að öðru leyti að halda persónuupplýsingum um sig og fjölskyldu sína leyndum.

Ert þú Töffingji?

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Svívirða

May 22nd, 2005 by admin

Ég fór í kvikmyndahús í gærkveld aldrei slíku vant.
Allir vita að aðgangseyrir í þessi hús sem kvikmyndir sýna er umtalsverður, og myndi maður halda að þeir fjármunir sem öfluðust við miðasölu stæðu undir kostnaði á rekstri slíks húss og vel það.

Ég kom mér makindalega fyrir í þægilegu sæti og setti mig í hátíðarstellingar til að bera augum eina af þeim kvikmyndum sem beðið hefur verið eftir með hvað mestri eftirvæntingu á þessu ári.
eftir að ljósin fóru að dimma jókst eftirvæntingin og slátrun á útsprengdu poppmais hófst fyrir alvöru, en allt kom fyrir ekki!
Auglýsing á eftir auglýsingu og líklegast önnur hver var frá einhverri af þeim svínríku fjármálastofnunum sem vaða uppi eins og eldur í sinu, þröngvuðu sér inn um vit mín eins og þjófur að nóttu.

Þegar sýning myndarinnar loksins hófst má segja að maður hafi verið orðinn verulega slompaður af öllu þessu flóði auglýsinga, búinn með poppið og farinn að hugsa alvarlega um hvort maður sé nú örugglega að skipta við réttan banka og annað eftir því.

Ég væri satt að segja alveg til í að borga svona 200kr meira fyrir bíómiðann gegn því að sleppa við þessar auglýsingar, en þú?

Posted in Uncategorized | 5 Comments »

Das Kapital

May 20th, 2005 by admin

Aldrei hefði mér dottið til hugar að IBM hefði makað krók sinn með því að selja Hitler vélar (first generation computers) sem notaðar voru til að skrásetja óæskilegt fólk í fanga og útrýmingarbúðum nazista í seinna stríði.
Þessi staðreynd og ýmislegt annað áhugavert kemur skýrt fram í heimildar/áróðursmyndinni
The Corporation

Eftir að hafa séð þessa mynd fór ég óneitanlega að hugleiða hversu mikil völd þessi svokölluðu Corporations (íslenskt orð óskast) hafa í raun og veru, og hversu langt þau eru tilbúin að ganga til að öðlast þau og halda í.
Einnig er skemmtilegt að velta fyrir sér í þessu samhengi yfirvofandi einkavæðingu Símans, sem við öll jú eigum, en er rétt í þann mund að falla í hendur harðsvíraðra viðskiptajöfra sem sjálfsagt munu gera við hann það sem þeim sýnist “hagkvæmast”.

Allavega vakti þessi kvikmynd mig talsvert til umhugsunar og það er alltaf auðvelt að mæla með myndum sem maður er að pæla í mörgum dögum eftir að maður hefur innbyrgt þær.

Posted in Uncategorized | 3 Comments »

Ekki Rasismi

May 17th, 2005 by admin

mér finnst alveg merkileg þessi umræða um þetta morð sem framið var um helgina.
Allir virðast vera voðalega EKKI uppteknir af því að gerandinn hafi verið af framandi bergi brotinn.
Mér varð á að hlusta á umræðu á öldum ljósvakans í dag þar sem hlustendur hringdu inn og lögðu sérstaka áherslu á að þeir væru EKKI rasistar, og þeim þætti engu máli skipta þó morðinginn skuli hafa verið með annan litarhátt en þau sjálf.

Ég held aftur á móti að varla finnist þjóð sem haldin er meiri kynþáttafordómum en einmitt ísland…….eða hvað?

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Krókódílamaðurinn

May 11th, 2005 by admin

Krókódílamaðurinn
oní kjallaratröppunum
kemur auga á píu
og pían hún stendur
ekki á löppunum

með dökkan blett í klofinu
á demantsgrænu buxunum
dettur hún í fangið
á manni með höfuð fullt
af ógeðslegum hugsunum

Ætli Króki gamli sé farinn að sniglast um kópavoginn?

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

X-X

May 10th, 2005 by admin

Hversu aumkunnarvert er það hjá auðvaldsmafíunni að endurvekja X-ið núna skömmu eftir að vera búnir að skrúfa fyrir það sökum fjárhagslegrar óhagkvæmni, eða hvað það var nú sem þessir jakkalakkar fundu þessu til foráttu?

Sjálfsagt er nú hugur í þessum jöxlum og einbeittur ásetningur að kollsteypa X-Fm þar sem ljóst er að rekstrargrundvöllur fyrir rokkútvarpi virðist liggja fyrir.

Drulla

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Háfrónska Tungumálið

May 9th, 2005 by admin

Það má segja að mig hafi rekið í rogastans þegar ég í rælni leit í gestabókin sem er hlekkjuð við þennan vef meira af gömlum vana en eitthvað annað.
Áhugasamir um innihald innleggsins geta smellt á hlekkinn hér til vinstri og lesið það í fullri lengd, en það vekur athygli á einhverju sem kallast Miðstöð Háfrónska tungumálsins.
Mikil snilld væri ef það kæmist í tísku meðal ungs fólks að tala sem hreinasta íslensku, í stað þess að sletta engilsaxnesku á bandarískan máta í annari hverri setningu.

Hvers vegna einhverjum þótti ástæða til að vekja athygli mína á þessu er mér aftur á móti hulin gáta, en sá hinn sami á þó mínar bestu þakkir skilið!

Lifið Heil

Posted in Uncategorized | 5 Comments »

« Previous Entries