Þrumutussur

April 28th, 2005 by admin

í gamla daga lyktuðu pönkarar af megnri patchouli lykt, og má segja að sú lykt hafi verið eitt af einkennismerkjum íslenskra pönkara í kringum 1980, sem mér fannst alltaf ákaflega sjarmerandi ilmur.

Rokktarfar nútímans virðast flestir einnig lykta á einhvern sérstakan hátt sem ég næ ekki alveg að festa fingur á en er á svipaðan hátt sjarmerandi og patchouli ilmurinn í gamla daga.
Svartir T bolir með sjokkerandi staðhæfingum (oft tengdum Ésú krist) og hauskúpumyndum eru einnig vinsælir meðal þessa hóps fólks.

Allavega var þessi lykt í loftinu á Grandrokk á þriðjudagskvöld þegar bandaríska rokkhljómsveitin sem kýs að kalla sig því undarlega nafni Alabama Thunderpussy steig á stokk í kjölfar Brainpolice manna ,sem ég á reyndar eftir að taka almennilega í sátt eftir fráhvarf uppáhalds meðlims míns úr hljómsveitinni, en fóru þeir samt sem áður töluvert létt með að performa eins og þeirra hefur gjarnan verið hátturinn.
Sliguð af hárvexti og húðflúrum lék Þrumutussann lag eftir lag sem var til að byrja með nokkuð heillandi, en þegar líða tók á tónleikana fór mér aftur á móti að leiðast þófið og áður en síðasta riffið hafði hljómað var ég reiðubúinn að halda heim á leið.

Þekki ég ekki þetta svokallaða Stoner rokk ýkja mikið að Brainpolice undanskildum en ef þessi sveit á að teljast í hópi bestu sveita í þessari kadegoríu tel ég að Brainpolice hljóti að vera þar fremstir á meðal jafningja.

Til gamans má geta þess að hreyfimynd frá þessum tónleikum má finna á þeim ört vaxandi vef mulinn.net

Góðar stundir

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

B-Hliðar

April 27th, 2005 by admin

Give to God what belongs to God
And give the rest to me
Tell our gracious host to fuck himself
It´s time for us to leave

Ég er að missa mig af fögnuði yfir B-Sides & rarities sem var útgefið nú fyrir skömmu af Nikulás Helli og fræjunum slæmu.

Þarna má finna B hliðar the Bad Seeds frá upphafi sem er dágóður biti að kyngja og langt frá að um eitthvað uppsóp sé að ræða.
Við fyrstu hlustun vakti það sérstaka kátínu mínu að finna þarna lagið Little Jane´s gone sem ég heyrði fyrst þegar Cave lék í Breiðvangi hér um árið.

Tékk it

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

Notice

April 22nd, 2005 by admin

Af gefnu tilefni vil ég taka fram að ég tek ekki að mér ljósmyndun af neinu tagi, hvort sem er gegn greiðslu eður ei.

Rassgat

Posted in Uncategorized | 13 Comments »

April 22nd, 2005 by admin

“It´s only after you´ve lost everything, that you´re free to do anything”

Efnishyggjuþrældómur er drulla.
fjölbýlishús í breiðholtinu eru sing sing nútímans, og plast kortin skömmtunarmiðar.

Markaðsfræðingar og fjármálaspekúlantar hafa ráðstafað okkur um óákveðin tíma, þangað til annað kemur í ljós ber þér að þegja og gera það sem þér er sagt!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

The Return of the Internet

April 21st, 2005 by admin

Ríkt hefur hálfgert ófremdarástand hér á heimili mínu nú undanfarið sökum sambandsleysis við Lýðnetið
Nú hefur sá vandi aftur á móti verið leystur, og má því eiga von á að ég muni “Taka á því” eins og menn segja gjarnan þegar hugur er í þeim.

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

í hund og kött

April 16th, 2005 by admin

So messed up, I want you near
In my room I want you here
Now we´re gonna be face to face
And I´ll lay down in my favorite place

Now I wanna be your dog
Now I wanna be your dog
Now I wanna be your dog
Well, come on!

Mér finnst þettta lag alger helvítis snilld, það er eitthvað svo skemmtilega pervertískt við textann og hvernig meistari Iggy Pop stynur honum út úr sér.

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Mótmælandi Íslands

April 13th, 2005 by admin

Mig langar að deila með ykkur smá dreifibréfi er maður, sem betur gefnir menn en ég kjósa að kalla Mótmælanda Íslands, gaf mér eftir að hafa veitt mér góðfúslegt leyfi til að smella af honum fáeinum ljósmyndum.
Sitt sýnist hverjum um innihaldið, en það ku vera eftirfarandi:

Jón Auðuns var að “ferma” börn.
Ég fékk slátur “Gvuðs” úr berum lúkunum á Jóni Klárki og fór með blóðstampinn og kjötstykkið fram á upphækkaða pallskörina og sýndi viðstöddum vitnum hvort tveggja.
Ég tók úr vasa mínum sorppoka úr glæru plasti, merktan sem slíkan, tók opið í sundur, og lét kjötið af arabanum falla ofan í hann; þar á ofan dembdi ég dreyranum úr stapinum.
Til þess að aldagamall óþverrinn ekki seytlaði útúr sorppokanum, tók ég opið á honum og knýtti kyrfilega fyrir það með sterkum spottaenda.
Frammi fyrir fólkinu flutti ég þetta ávarp:

Áheyrandar Mínir

Þið eruð vottar þess að ég, Helgi Hóseasson, Skipasundi 48 Reykjavík, kasta kjöti og blóði Ésú í þennan belg sem er merktur SORP, til staðfestingar á því, að ég ónýti hér með skírnarsáttmála þann, sem gerður var fyrir mína hönd, reifabarns, og ég vélaður til að játa á mig 13 vetra við þá Éhóva, Ésú og Heilagananda, alla til heimilis á Himnum og nú hér staðda.
Enn fremur vottið þið, að nafn mitt Helgi, er ekki teingt Himnafeðgum né Heilögumanda, ég er laus allra skuldbindinga við þá og mótmæli þeim mannhatussjónar-miðum sem eru uppistaða og ívaf þess endemis kristins dóms

Þakk fyrir
___________________________________________

Segiði svo að ekki séu til hugsjónamenn!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Skáldlegheit 101

April 12th, 2005 by admin

Ég má til með að deila með ykkur smá ritmáli sem ég rakst á blogvefnum hjá vinkonu minni henni Þórdísi.
Jafnvel þó það komi fyrir að ég sé ögn skáldlegur þá er þetta samt skörinni hærra í skáldlegheitum en ég kemst nokkurtíma.

Hefur þér einhverntíma liðið eins og þegar þú opnaðir munninn hafi hjartað þitt oltið út úr þér, en í stað þess að vera gripið þegar það hrundi af vörum þínum, þá datt það í gólfið á milli fóta mannneskjunnar sem þú ákvaðst að treysta?
Svo standið þið þarna og horfið á hjartað þitt slá ótt og títt við fætur ykkar, og það rennur upp fyrir þér að í raun og veru varstu ekki að deila hjartanu þínu, þú varst að æla á gólfið.

En mundu - þú sóar aldrei tíma þínum þegar þú ákveður að deila hjartanu þínu, jafnvel þó að það sé ekki gripið í hvert skipti. Það þróar með sér fallhlíf í tímans rás.

Verum óhrædd.

Höldum áfram að stökkva.

Þar hafiði það gott fólk

p.s skáletraður texti er umrædd tilvitnun og ritstuldur!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Skandall

April 7th, 2005 by admin

Borið hefur á því að menn hafi kvartað yfir skort á skrautlegum geðhrifum hér á vefnum.
Sú var vissulega tíðin að geðveikin draup hér af hverju strái og umhverfið var að mestu svartlitað öfugt við nú.

Hvar mér varð fótaskortur skal ég ekki sagt hafa en eitt er þó víst að mér þykir afar leitt að heyra að geðveiki mín sé í rénum.

Hvað er til ráða gott fólk?

Posted in Uncategorized | 7 Comments »

Vögguvísa

April 4th, 2005 by admin

svona af því ég er búinn að vera svo væminn núna upp á síðkastið þá má ég til með að mæla með Þessu svona áður en þið gangið til náða

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

« Previous Entries