March 31st, 2005 by admin
Dan: Everybody wants to be happy
Larry: Depressives don´t. They want to be unhappy to confirm they´re depressed.
If they were happy they couldn´t be depressed any more. They´d have to go out into the world and live. Wich can be depressing!
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
March 30th, 2005 by admin
Heiðu tókst nokkuð sem mér tækist sennilega ekki nema þá kannski ef ég myndi ræna banka, og það er að komast á baksíðu Morgunblaðsins.
Ekki nóg með það heldur er einnig umfjöllun og mynd í innviðum blaðsins (nánar tiltekið á bls 22) í dag um þessa stórkostlegu konu:)
Það er ekki ónýtt að þekkja svona fólk!
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
March 27th, 2005 by admin
Hver er tilgangur lífsins?
Fyrir sumum getur það verið kattardýr og öðrum eitthvað allt annað.
Líklegast er þetta sú spurning sem hefur brunnið hvað heitast á mannskepnunni frá því hún uppgötvaði að hún er með vitsmuni sem eru súperíör miðað við aðrar skepnur í dýrarríkinu.
Margir eyða ævinni í að leita svara við þessari gátu og lifa kannski minna fyrir vikið?
Að lifa minna er hugtak sem ég heyrði nýlega og finnst ákaflega táknrænt fyrir ástand sem við sjálfsagt öll dettum í á einhverjum mislöngum tímabilum lífs okkar.
Þó kann að vera að það sé nauðsynlegt að lifa minna um stundarsakir og velta fyrir sér árángursríkum leiðum til þess einmitt að Lifa meira, en samt held ég að við gerum allt of fjandans lítið af því að bara lifa og vera til!
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
March 25th, 2005 by admin
Whoever appeals to the law against his fellow man is
either a fool or a coward.
Whoever cannot take care of
himself without that law is both.
For a wounded man shall
say to his assailant, “If I live I will kill you, if I die
you are forgiven”.
Such is the Rule of Honor.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
March 23rd, 2005 by admin
Mig langar einungis að vekja athygli á þessu sjónarmiði vinar míns.
Þess ber einnig að geta að þessi sami vinur minn er einmitt staddur í útlandinu að greiða fyrir leið Milosevic hingað til lands.
Þeir geta þá telft við hvorn annan á kleppi hann og Fischer!
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
March 22nd, 2005 by admin
Söngl í vélum sem eru til þess sérstaklega hannaðar að féflétta sótsvartann almúgann, lykt af pylsum sem eru búnar að liggja í pilsnerblönduðu vatni lengur en góðu hófi gegnir.
Rigningin spilar blús á veðraðar gluggarúðurnar af slíkri fimi að sjálfur kóngurinn færi hjá sér.
Salernið er lokað vegna skemmdarfýsnar fyrrverandi gesta og er þeim sem þurfa að losa sig við líkamsúrgang vinsamlegast bent á að snúa hægðum sínum annað og greiða fyrir það með peningum
Gestir sem hafa kvittað fyrir viðveru sína í kalda viðarbekkina líkt og um gestabók væri að ræða eru mýmargir og misvel skrifandi og allt rennur saman í eitt
Allir sem koma eru að fara, að bíða eftir einhverju mismikilvægu og fullvissan um að tilganginum verði náð skín úr augum og fasi.
Sumir koma í pörum og jafnvel má sjá ungmenni í kippum sem tala hátt og bera sig vel, en þeir sem koma einir eru þöglir og virðast óttaslegnir rétt eins dýr í viðbragðsstöðu.
Minningar úr löngu týndu lífi láta á sér kræla.
þegar biðin var löng og næturnar lengri var oft fýsilegur kostur að halla sínu höfði og Bíða eftir strætó !
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
March 19th, 2005 by admin
ef Guð er ekki til og ástin er lygi, hvert fljúga þá dúfurnar þegar vetrar og ekkert er æti
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
March 15th, 2005 by admin
mér skilst að þetta sé svaðalega góður skítur!
Ég tel að það væri mikil bragabót fyrir róna reykjavíkurborgar ef mjöður sem þessi væri seldur á viðráðanlegu verði í áfengisútsölum borgarinnar.
það er óþverraskapur og ekkert annað að láta aumingja kallana sóða í sig kökudropum og öðrum viðbjóði sér til dægrastyttingar…..
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
March 9th, 2005 by admin
Converge hafa aflýst tónleikum sínum hér á Íslandi sökum snjóstorms í BNA……nánar um það hér
Hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað?
Converge! …..You Failed me!
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
March 7th, 2005 by admin
“To me rock´n´roll means fucking and nothing else. People don´t know what rock´n´roll is, its a soundtrack for sex.”
Lux Interior
Getur verið að þessi maður hafi á réttu að standa og hafi þar með fundið the true meaning of rock´n´roll?
Posted in Uncategorized | 1 Comment »