pæling…..

February 26th, 2005 by admin

Ónefndur vinur minn vill meina að flestar rokkímyndir séu sprottnar af hugmyndum Tom of Finland…..
Ef þið vitið ekki hver sá mjög svo pervertíski einstaklingur er þá er alltaf ráð að slá því barasta inn á Google

Hvað haldið þið, eru rokkímyndir bara gay?

Posted in Uncategorized | 5 Comments »

Dauði ofan frá 1979

February 26th, 2005 by admin

Ég má til með að vekja athygli á dúett einum sem rataði inn um hlustir mínar nú um dagana og heillaði mig á þann hátt sem fáum tónlistarmönnum hefur tekist að gera.

Sveit þessi ber það óvenjulega nafn
Death from above 1979 sem er vel við hæfi því tónlistin er einnig á margan hátt óhefðbundin.

Hljóðdæmi má finna á vefsíðu þessara snillinga sem er hægt að heimsækja t.d með því að smella á nafn þeirra hér að ofan…..

Eru bassahetjur það sem koma skal?

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Hreinsun

February 22nd, 2005 by admin

Allsherjar tiltekt hefur farið fram í myndagalleríinu og öllu verið hent á dyr.
Pælingin var að sía út drasl og reyna að hækka gæðastaðalinn á því sem hér er borið á borð í formi ljósmynda.

Eitthvað hefur verið pikkað inn á nýjan leik og sem fyrr er það hauskúpan hér til vinstri sem mun leiða ykkur í sannleikan um það sem þar er til sýnis.

Less is more! sagði einhver og mun ég reyna að hafa það að leiðarljósi þegar kemur að því að birta myndir á alnetinu í framtíðinni!

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

Artan

February 22nd, 2005 by admin

Líklegt þykir að hljómsveit sú sem ég leik á rafbassagítar í muni bera það ágæta nafn Artan.
Nafn þetta mun vera dregið af Artane® en ekki talin þörf á að notast við e í endann á því sérstaklega þar sem framburðurinn myndi vefjast fyrir þorra fólks.

Merking þessa ágæta nafns kann að vefjast fyrir mörgum og er það ein af helstu ástæðunum fyrir valinu, en sennilegt er þó nafnið kunni að vekja blendnar tilfinningar hjá þeim sem vita hvernig í pottinn er búið

Ekki á ég von á að sveit þessi komi til með að fara hátt á neinum grundvelli en þetta er fyrst og fremst gert til gamans.
Þó gæti verið að eitthvað af þeim óhljóðum sem við félagar fremjum yrðu útgefin á lýðnetinu þegar nær dregur vori…..

Lifið Heil

Posted in Uncategorized | 4 Comments »

Pæling…

February 18th, 2005 by admin

Ég er að hugsa um að henda út öllum myndunum í galleríinu hér á vefnum um helgina og byggja það upp frá grunni.
Vonir standa til að með þeim hætti geti ég jafnvel villt á mér heimildir og þótt vera bara þokkalegur LjósNyndari…

Satt að segja þykir mér fullmikið af rusli þarna og full ástæða til að endurvinna töluvert af þessu dóti þar sem einhver framför hefur átt sér stað í eftirvinnslu á stafrænum ljósmyndum í minni sveit….

Þangað til næst!

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

Nafn óskast….

February 16th, 2005 by admin

Já titillinn segir allt sem segja þarf, ég þarfnast nafns á hljómsveit þá er ég og þrír andlega fatlaðir vinir mínir höfum stofnað!
Við rembumst nú eins og rjúpa við staur að berja saman taktföst óhljóð og hver veit nema þegar fram líði stundir nema ég kvelji þá sem heimsækja þennan vef með þeim ósóma.

Í leiðinni langar mig að vekja athygli á sjálfsmynd sem ég sauð saman nú um daginn fyrir sjálfsmyndakeppni á þeim víðfræga og ömmuríska vef dpchallenge þar sem hún tengist óhjákvæmilega hlutverki mínu í þessari ónefndu hljómsveit, en hana má sjá —->Hér

Mér fannst liggja beinast við að kalla þennan kvartett einfaldlega Jón Bassi en sú nafngift féll ekki í góðan jarðveg hjá félögum mínum svo málið er í nokkurskonar hnút……

Góðar Stundir

Posted in Uncategorized | 8 Comments »

February 12th, 2005 by admin

Bresku gamalmenninn sem voru að spila á Gauk á stöng í gær voru það leiðinlegir að ég gafst upp eftir tæpt lag sem verður að teljast ansi slakur árangur….

Talandi um gamalmenni þá skal það útskýrt hér með að tónlistarmenn sem eru komnir yfir 30 ára aldurinn teljast til gamalmenna, og ættu að láta það vera að vera að standa í framapoti.
Þetta var mér gert ljóst í gær á miskunnarlausan hátt af virtum bassaleikara hér í bæ og hurfu allar vonir mínar um að meikaða í heimi tónlistar eins og dögg fyrir sólu..

Þó kann að vera að hann hafi eitthvað verið að miiiiiiis

Posted in Uncategorized | 3 Comments »

Skandall

February 3rd, 2005 by admin

Hvað er málið með það að veita Reggí hljómsveit verðlaun fyrir bestu Rokkplötu ársin?
Ekki nóg með það heldur var Páli Rósakrans veitt verðlaun fyrir að teljast besti söngvarinn….

Þetta þykir mér sæta furðu og er afar ósáttur við þetta fyrirkomulag þessarar mafíu sem þessi verðlaun veitir ár hvert.
Það veit það hvert mannsbarn sem hér á sér lífsviðurværi að þó reggí geti verið gott þá flokkast það tæpast undir rokktónlist eins og við flest myndum skilgreina hana.

Af þessu tilefni vil ég lýsa afdráttarlausu frati á þessi verðlaun og allt sem þeim tengjast og skora í leiðinni á meðlimi Hjálma að skila þessum verðlaunum í rétttar hendur eins fljótt og auðið er, þ.e.a.s til Heilalögreglumanna sem til þeirra hafa heiðarlega unnið.

Nema það sé búið að skilgreina rokkið alveg upp á nýtt og gleymst að segja mér frá því?

Posted in Uncategorized | 5 Comments »

Ra-ss-gat

February 2nd, 2005 by admin

Nú eru úrslit ljós í keppni þeirri sem ljósmyndagjörningurinn Ra-ss-gat þreytti harða keppni.
Þar sem þetta var gjörningur og í raun eitt verk þykir mér eðlilegt að leggja stigin saman og ef það er gert þykir ljóst að þetta samstarfsverkefni (sem reyndar sumir kölluðu ólöglegt samráð við myndatökur) fór leikandi létt með sigur úr býtum með einkunnina 15.6 af 10 mögulegum…

Þetta ku vera í fyrsta sinn í sögu ljósmyndakeppna á netinu sem slíkur yfirburðarsigur hefur átt sér stað.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem hafa áhuga á að láta eitthvað af hendi rakna er bent á rússneska þjóðdansafélagið.

p.s úrslit í heild sinni má sjá Hér

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

speki 101

February 2nd, 2005 by admin

Vinnan göfgar manninn….líka þá sem nenna ekki að vinna!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »